Óttast að farsóttir breiðist út 27. desember 2004 00:01
Yfir tuttugu og eitt þúsund manns eru taldir af eftir flóðin og jarðskjálftana í Suðaustur-Asíu í gær. Óttast er að farsóttir breiðist nú út en flóðavatn mengar vatnsból og lík þeirra sem fórust rotna á víðavangi. Þúsundir hafa verið grafnar í fjöldagröfum og með öllu er óljóst hverjir þar liggja. Tala þeirra sem fórust mun án efa hækka í dag þar sem þúsunda er ennþá saknað en björgunarmenn leita nú líka í rústum heimila og hótela og á hafi úti. Kraftur flóðöldunnar var slíkur að jafnvel hefur þurft að veiða lík ofan úr trjám. Staðfest er að ríflegatuttugu og eitt þúsund eru af frá Indlandi til Indónesíu. Við þetta bætast hundar og kettir, búfé og fiskar sem liggja eins og hráviði út um allt. Fnykurinn er á stöðum sagður óbærilegur og óttast að farsóttir breiðist út. Vatnsból eru menguð og heilbrigðisstofnanir, þar sem þær eru til staðar, eru engan vegin í stakk búnar að takast á við hörmungarnar. Hjálparstofnanir hraða nú neyðargögnum og starfsfólki á svæðið sem verst urðu úti og telja sérfræðingar Alþjóða Rauða krossins þörf á neyðarhjálp upp á tæplega fimmhundruð milljónir króna. Einna verst er ástandið á Sri Lanka þar sem allt að fimmtán metra há flóðaldan skall á ströndinni þar sem hundruð þúsunda búa. Aðrar eins náttúruhamfarir hafa aldrei áður gengið yfir eynna og því eru yfirvöld með öllu ófær um að eiga við vandann. Flóðaldan eirði engu. Tíu metra há bylgja réðst með miklum hraða á strendur landanna og æddi allt að kílómetra inn á land. Hún bar með sér hús og kofa, bíla og allt annað sem varð á vegi hennar. Bílar þeyttust inn í anddyri hótela og þeir sem voru á ströndinni soguðust á haf út. Aðrir voru, samkvæmt fréttaskeytum, nánast kramdir og þar sem aldan var kröftugust, á hafi úti, brytjaði hún fiskibáta í spað. Þar var aldan allt að þrjátíu metra há og á ríflega níuhundruð og fimmtíu kílómetra hraða. Hún mölvaði báta og olli flóðum eftir austurströnd Afríku, sex þúsund kílómetra í burtu. Mannfallið var eftir því: á Sri Lanka segja yfirvöld yfir tíu þúsund hafa farist, átta hundruð þúsund misstu heimili sín; á Indlandi er talan komin upp í ríflega sex þúsund, þar af 200 útlendingar; í Indónesíu fórust í það minnsta fjögur þúsund og níuhundruð; á Taílandi ríflega átta hundruð, langflestir erlendir ferðamenn. Nokkrir tugir týndu lífi í Malasíu, Myanmar og Bangladesh. Óljósar fregnir berast frá Maldív-eyjum. Nú liggur fyrir að skjálftinn var níu á Richter en ekki 8,9 eins og fyrst var talið. Nokkrir eftirskjálftar hafa orðið og öldugangur er enn nokkuð óreglulegur, sem vakið hefur ugg eftirlifandi, en sérfræðingar segja litlar eða engar líkur á að önnur eins flóðbylgja myndist og gangi yfir svæðið.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira