Grátbiður um hjálp 22. október 2004 00:01
Margaret Hassan, sem situr í haldi mannræningja í Írak, grátbiður bresk stjórnvöld að kalla hersveitir sínar heim frá Írak á myndbandsupptöku sem arabísk sjónvarpsstöð sýndi í dag. Margaret Hassan er yfirmaður mannúðarsamtakanna CARE og hefur búið í Írak í þrjátíu ár. Hún þekkir þar mjög vel til og lítur á sig sem Íraka, þó að hún sé upphaflega írsk. Mannræningjar rændu henni í Bagdad á þriðjudaginn var. Í dag birti sjónvarpsstöðin al-Jazeera myndbandsupptöku þar sem Margaret Hassan biður sér griða. Hún segir þetta geta verið síðustu stundirnar í lífi sínu og ákallar bresku þjóðina um að biðja Tony Blair forsætisráðherra að kalla bresku hersveitirnar frá Írak í stða þess að bæta við herliðið. „Þess vegna er fólki eins og Bigley og mér rænt.,“ segir Hassan og vísar þar til breska gíslsins Kenneths Bigleys sem tekinn var af lífi á dögunum. „Ef til vill dey ég eins og herra Bigley. Ég grátbið ykkur. Ég grátbið ykkur,“ segir Hassan um leið og hún brestur í grát. Í gær ákváðu bresk stjórnvöld að verða við beiðni Bandaríkjastjórnar um að senda sérsveitir til starfa í Bagdad.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira