Flestir hafa látist í Kína 28. desember 2004 00:01
Jarðskjálftinn í Indónesíu á sunnudaginn sem varð að minnsta kosti 55 þúsund manns að bana í Asíu og Afríku er eins og staðan er í dag níundi mannskæðasti jarðskjálftinn frá því árið 1900. Mannskæðasti skjálftinn á síðustu öld var sumarið 1976 í borginni Tangshan í norðausturhluta Kína. Þá létust um 255 þúsund manns í jarðskjálfta sem mældist 7,5 á Richter-skala. Nokkrum dögum áður en skjálftinn skók borgina voru ýmis teikn á lofti um að jarðskjálfti væri í vændum. Vatnsyfirborð í vatnsbrunnum hækkaði og lækkaði þrisvar sinnum og dýr hegðuðu sér undarlega. Heimildir eru um að þúsundir hænsna hafi ekki étið neitt dagana fyrir skjálftann stóra og hlaupið um í örvæntingu. Annar mannskæðasti skjálftinn síðan árið 1900 var líka í Kína. Í desember árið 1920 létust um 200 þúsund manns þegar jarðskjálfti sem mældist 8,6 á Richter skók héraðið Gansu í miðvesturhluta Kína. Skjálftinn náði yfir um 40 þúsund ferkílómetra svæði og lagði stóran hluta 10 bæja og borga í rúst. Þegar skjálftinn varð voru ekki til heimildir um stóran skjálfta á þessu svæði í yfir 300 ár. Tólf árum seinna, eða í desember árið 1932, skók annar stór skjálfti héraðið. Þá létust að minnsta kosti 70 þúsund manns. Mannskæðasti jarðskjálfti sem orðið hefur í Evrópu varð í Messina á Sikiley í desember árið 1908. Nótt eina milli jóla og nýárs vöknuðu íbúar hafnarborgarinnar við gríðarlegar drunur. Jarðskjálftinn, sem mældist 7,2 á Richter, varð í það minnsta 70 þúsund manns að bana. Þó að skjálftinn á sunnudaginn hafi verið gríðarlega mannskæður er ekki langt síðan þúsundir manna létust vegna álíka náttúruhamfara. Annan í jólum í fyrra fórust um 28 þúsund manns þegar jarðskjálfti reið yfir borgina Bam í suðausturhluta Íran. Mannskæðasti jarðskjálfti mannkynssögunnar varð hins vegar 23. janúar árið 1556. Þá er talið að um 830 þúsund manns hafi látist í jarðskjálfta sem skók héraðið Shensi í Kína.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira