200 Svíar taldir af 28. desember 2004 00:01
Allt að 200 Svíar eru taldir vera meðal þeirra sem fórust á Taílandi. Fjöldi Norðurlandabúa var á ferðamannasvæðum þar sem nánast enginn hefur fundist á lífi. Sjónarvottar segja þúsundir ferðamanna hafa farist. Sænskur sendierindreki á Taílandi sagði fjölda Svía vera saknað. Sænskir fjölmiðlar segja óttast um líf allt að tvöhundruð, þar af um þrjátíu barna. Ekki er vitað hvar um sextán hundruð Svíar, sem voru í fríi á hamfarasvæðinu, eru niður komnir. Þrettán Norðmenn eru látnir svo vitað sé, tíu Svíar og tveir Danir. Aðeins hefur tekist að bera kennsl á hundrað og tólf útlendinga af þeim sem fundist hafa látnir á Taílandi. Fjöldi erlendra ferðamanna er sagður hafa farist í hamförunum, ekki síst á Taílandi þar sem mikill fjöldi Evrópubúa var í sólarlandaferð. Ekki færri en sjöhundruð útlendingar eru taldir þar af. Í ferðamannabænum Khao Lak á Phuket-eyju hefur Reuters-fréttaþjónustan eftir hóteleiganda að um 5000 ferðamenn hafi verið þar, einkum Þjóðverjar og Norðurlandabúar, og hann telur að meirihluti þeirra hafi farist. Af 300 gestum á hótelinu hans hafa aðeins fundist lík hundrað. Blaðamenn hins sænska Aftonbladet segja Khao Lak líkjast helvíti á jörðu. Pálmatré, bílar, hús og bátar af ströndinni hafi þeyst mörgu hundruð metra inn í land og allt annað hafi verið flatt út.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira