Tala látinna komin í 60 þúsund 28. desember 2004 00:01
Sextíu þúsund manns hafa fundist látnir eftir flóðbylgjuna í Suðaustur-Asíu. Óttast er að jafnmargir eða fleiri kunni að látast af völdum smitsjúkdóma vegna hörmunganna. Einna verst var ástandið í dag á Srí Lanka þar sem ekki færri en nítján þúsund hafa farist. Helen Ólafsdóttir, sem starfar þar fyrir íslensku friðargæsluna, segir eyjaskeggja aldrei hafa séð annað einsog þó hafi þeir átt í 20 ára stríði. Nú er unnið hörðum höndum að því að safna saman líkum því óttast er að farsóttir breiðist út. Tala látinna á Srí Lanka hefur vaxið frá 12 þúsundum upp í 18 þúsund í dag og mun jafnvel hækka enn að sögn Helenar. Sjálf var Helen í hættu því hún var í sólbaði á ströndinni þegar aldan kom á fleygiferð. Hún segir að henni hafi fyrst fundist einkennilegt hvað aldan hafi náð langt og hélt að um væri að ræða einungis eina staka öldu. Svo þegar allt virtist ætla að fara á kaf tók hún og samferðafólk hennar til fótanna. Allt að milljón Srí-Lankamenn missti heimili sín í hamförunum sem léku alla austurströnd eyjunnar mjög grátt. Á Indlandi er ástandið lítið betra; þar er talið að um tólf þúsund hafi farist og lítið er vitað um afdrif um þrjátíu þúsund íbúa á eyjunum Andaman og Nicobar sem eru ekki langt frá miðju skjálftans. Stafðest hefur verið að sjö þúsund eru þar látnir. Á Indónesíu telur varaforseti landsins töluna vera á milli tuttugu og tuttugu og fimm þúsund. Þegar hefur verið staðfest að í kringum nítján þúsund hafi týnt þar lífi og sífellt fleiri látnir finnast eftir því sem björgunarsveitir komast nær hamfarasvæðinu. Staðfest er að yfir eitt hundrað þúsund manns eru slasaðir í Indónesíu. Á Taílandi hafa um fimmtán hundruð fundist látnir, þar af eru ekki færri en sjö hundruð erlendir ferðamenn. Í ferðamannabænum Khao Lak á Phuket-eyju eru tugir líka enn á víð og dreif á götum, í trjám og á floti í vatni. Phuket og eyjan Phi Phi eru sagðar hafa nánast jafnast við jörðu en þar voru einnig þúsundir, einkum evrópskra ferðamanna. Á Malasíu, Maldíveyjum, Sómalíu, Tansaníu og eyjunni Myanmar hafa tugir látist og nokkrir fórust á Bangladesh og í Keníu. Talsmenn alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar óttast að tugir þúsunda muni látast af völdum smitsjúkdóma í kjölfar hörmunganna. Jafnvel er talið að fleiri muni látast af þeim sökum en þegar hafa látist vegna flóðanna. Fjárhagslegt tjón vegna hamfaranna er ekki talið minna en eitt þúsund milljarðar íslenskra króna.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira