Óttast að 55.000 hafi látist 28. desember 2004 00:01
Staðfest hefur verið að 36.900 fórust í hamförunum í Suðaustur-Asíu á sunnudag. Tuga þúsunda er saknað og óttast er að ekki færri en 55.000 hafi farist. Ákaflega erfitt er að meta hversu margir fórust þegar flóðbylgja skall á í kjölfar öflugs jarðskjálfta á sunnudag en talan hefur hækkað mikið í morgun. Fyrir stundu greindu yfirvöld á Srí Lanka frá því að tala látinna væri komin upp í 18.700 og þar er talið að endanlega tala verði ekki lægri en tuttugu og fimm þúsund. Suður- og austurstrendur landsins eru nánast þaktar aur, líkum og rústum. Á suðausturströnd Indlands þar sem ástandið er afar slæmt er óttast að tugir þúsunda hafi látist og ekkert er vitað um afdrif um þrjátíu þúsund íbúa á eyjunum Andaman og Nicobar sem eru ekki langt frá miðju skjálftans. Sem stendur er opinber tala þeirra sem týndu lífi tæplega 9.500. Á Indónesíu telur varaforseti landsins töluna vera á milli 20.000 og 25.000 en fram til þessa hefur verið staðfest að ríflega 4.700 fórust þar. Sífellt fleiri látnir finnast eftir því sem björgunarsveitir komast nær hamfarasvæðinu. Á Taílandi hafa um fimmtán hundruð fundist látnir, þar af eru ekki færri en sjöhundruð erlendir ferðamenn. Í ferðamannabænum Khao Lak á Phuket-eyju eru tugir líka enn á víð og dreif á götum, í trjám og á floti í vetni. Phuket og eyjan Phi Phi eru sagðar hafa nánast jafnast við jörðu en þar voru einnig þúsundir ferðamanna, einkum evrópskra. Nú er talið að fjöldi þeirra sem fórst geti náð 55.000 áður en yfir líkur. Sögurnar sem berast eru skelfilegar: fregnir berast af fólki sem gekk ásamt börnunum sínum eftir ströndum þegar aldan hrifsaði börnin til sín en skildi foreldrana eftir; fólk sópaðist á haf út úr dyragættum heimila sinna og heilu þorpin hurfu. Stærsta hjálparaðgerð sögunnar stendur nú yfir í löndunum sem urðu fyrir barðinu á flóðbylgjunni. Hundruð björgunarskipa, flugvéla og þyrla flytja eftirlifendur á brott frá helstu stöðunum sem bylgjan lék grátt. Yfirmaður neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, Jan Egelund, telur kostnaðinn hlaupa á milljörðum dollara, hundruð milljarða króna. Hamfarirnar séu einhverjar þær mestu í sögunni sökum þess hversi víðfemt svæði varð fyrir bylgjunni og hversu mörg lönd hörmungarnar snerta.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira