2700 saknað frá Norðurlöndunum 29. desember 2004 00:01
Alls tvö þúsund og sjö hundruð Norðurlandabúa er saknað á hamfarasvæðunum í Asíu, þar af um fimmtán hundruð Svía og tæplega fimm hundruð Norðmanna. Ef fer sem horfir stefnir í eitt mesta mannfall sænskra og norskra ríkisborgara á friðartímum. Búið er að koma upp loftbrú frá hamfarasvæðunum, aðallega frá Tælandi og Sri Lanka, til að flytja slasaða Norðmenn og Svía heim. Fólk virðist smám saman vera að átta sig á alvarleika þessara hamfara og þjóðarsorg er að leggjast yfir hin Norðurlöndin. Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð og Sri Lanka, segir meiri ferðamennsku hafa verið frá Svíþjóð til Taílands en frá öðrum Evrópuþjóðum og því sé þetta jafnvel enn sárara í Svíþjóð en annars staðar. Hann segir stöðugar fréttir í útvarpi og sjónvarpi af atburðunum í Asíu og meðal annars séu sagðar hjartaskerandi fréttir af börnum sem tapað hafi foreldrum sínum. Sænski drengurinn Hannes Bergstrom sem er tæpra tveggja ára og fannst aleinn og meðvitundarlaus nálægt sundlaug á Phuket eyju á Tælandi er nú kominn til fjölskyldu sinnar. Hann hefur verið kallaður kraftaverkadrengurinn í sænskum fjölmiðlum því björgun hans undan flóðbylgjunni þykir kraftaverki líkust. Amma hans og föðurbróðir fundu hann eftir að mynd af honum var sett á netið og í dag hitti hann föður sinn sem liggur slasaður á sjúkrahúsi. Óttast er að móðir hans hafi látist en hennar er enn leitað.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira