Líkin talin í kapp við tímann 29. desember 2004 00:01
Í líkhúsi í indverska bænum Cuddalore stendur læknir og les upp tilkynningu til fólks sem bíður í anddyrinu að það þurfi að bera kennsl á lík fjögurra kvenna og fimm ára gamals drengs. Hjón bera kennsl á drenginn og bresta í grát. Þau eru beðin um að fara, næsta fólki er hleypt inn og merkimiði eru settur á handlegg drengsins. Staðfestum fórnarlömbum flóðbylgjunnar hefur fjölgað um eitt. Embættismenn í ríkjunum við Indlandshaf sem urðu fyrir barðinu á flóðbylgjunni á sunnudag hafa ekki undan við að telja líkin og bera kennsl á þau. Talningarmennirnir standa steingerðir á svip frammi fyrir foreldrum, börnum eða systkinum hinna látnu sem eru fengnir til að bera kennsl á hina látnu. Svipbrigði þeirra bera ekki með sér sorg eða uppnám; það er fyrir öllu að telja líkin og koma þeim til greftrunar sem fyrst. Tölur um fjöldi látinna í hamförunum fara stigvaxandi en verða þó aldrei meira en áætlað mat og endanlegar tölur um fjölda þeirra sem hafa látist munu ef til vill aldrei fást. Vinnubrögð við talningu á hinum látnu eru ólíkar á milli landa. Á Indlandi hefur verið sett saman öflugt lið starfsmanna úr heilbrigðisgeiranum, lögreglunni og skattaeftirlitsmönnum sem skrásetja nákvæmar upplýsingar um hina látnu í stílabækur. Þar kemur fram nafn fórnarlambsins og aldur, nöfn foreldra þess, heimilisfang og tvö auðkenni. Loks er tekin ljósmynd af líkinu. Í Indónesíu eru líkin oft dysjuð án þess að vera talin eða borin kennsl á þau. Stjórnsýslan er í óreiðu, líkin dreifð um þrettán þúsund eyjaklasa, margir hverjir einangraðir frá umheiminum. Meira en áratugur er síðan yfirvöld tóku manntal og gögn um fæðingar og andlát eru óáreiðanleg. Félagsmálaráðuneytið í Indónesíu segir 32 þúsund manns hafa látið lífið, heilbrigðisráðuneytið segir 27 þúsund. Opinberar tölur eru fyrst og fremst áætlað mat og ljóst er að nákvæm tala yfir fjölda látinna mun aldrei fást.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira