Júsjenko sigurvegari kosninganna 27. desember 2004 00:01
Viktor Júsjenko bar sigurorð af keppinaut sínum, forsætisráðherranum Viktor Janúkovítsj, í forsetakosningum í Úkraínu í gær. Svo virðist sem þessi umferð hafi farið fram án kosningasvindls. Sigur Júsjenkós kom ekki á óvart; skoðanakannanir, bæði fyrir þessa umferð sem og þá síðustu, bentu eindregið til þess að hann nyti meiri stuðnings en Janúkovítsj. Síðast voru brögð í tafli sem leiddu til þess að Hæstiréttur Úkraínu ógilti niðurstöðuna og skipaði fyrir um endurtekningu. Óvissan fólst því einkum í því hvort að reynt yrði að beita brögðum á ný. Talsmenn ÖSE segja svo ekki hafa verið og þegar níutíu og fimm prósent atkvæða höfðu verið talin sögðu talsmenn yfirkjörstjórnar að forskot Júsjenkos væri svo mikið að Janúkovítsj gæti ekki unnið það upp. Þá var Júsjenko með 53 prósent atkvæða en Janúkovítsj 44 prósent. Talsmenn hans voru þó á því að ekki væru öll kurl komin til grafar og að enn ætti eftir að skýra ýmislegt. Til að mynda hefðu þrjár milljónir ólöglegra atkvæða verið greiddar og hugsanlega yrði leitað til dómstóla vegna þeirra. Júsjenko sagði í nótt að Úkraína hefði verið sjálfstæð í fjórtán ár en fyrst nú væri hún frjáls. Hann hefur meðal annars heitið því að taka upp nánari samskipti við Evrópusambandið og Vesturlönd, nokkuð sem komið hefur illa við kaunin á Rússum. Júsjenko segir einnig nauðsynlegt að hreinsa til hjá því opinbera þar sem spilling og sóun séu áberandi. Efnahagsmál verða jafnframt áberandi á dagskránni. Júsjenko hefur sagt að hann muni áfram rækta tengslin við stjórnvöld í Moskvu en stór hluti Úkraínumanna er af rússnesku bergi brotinn og lítt hrifinn af umbótahugmyndum Júsjenkos. Þó að kjör Júsjenkos sé afgerandi er hann þó ekki einráður og verður valdaminni en Leonid Kútsma, fráfarandi forseti, hefur verið. Hann mun því meðal annars þurfa að vinna þingið á sitt band til að geta hrint fyrirætlunum sínum í framkvæmd.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira