Erlent

Á þriðja tug hafa fallið

Á þriðja tug liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í Írak undanfarinn sólarhring. Níu fórust í sjálfsmorðsárás á sendiráð Jórdaníu í Bagdad í gærkvöldi, þar af sjö manna fjölskylda sem bjó í næsta húsi. Uppreisnarmenn vörpuðu sprengjum á hersveitir í Mósúl og læknaprófessor var myrtur í Bagdad. Fimm óbreyttir borgarar féllu nærri Najaf þegar bílsprengja var sprengd skammt frá þeim og bandarískri hervagnalest. Loks kveðast Bandaríkjamenn hafa gripið tvo lykilmenn í hryðjuverkahópi Abus Musab al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaeda í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×