Friðarviðræður komnar í strand 23. desember 2004 00:01
Friðarviðræður stjórnvalda og uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan eru komnar í strand. Á aðra milljón manna hefur misst heimili sín í héraðinu og Alþjóða Rauði krossinn óttast að með sama áframhaldi verði þrjár milljónir manna hjálparþurfi á næsta ári. Fréttamaður Stöðvar 2 var á ferðalagi í Darfur-héraði. Átökin í Darfur-héraði í norðvestur Súdan hafa nú staðið í tæp tvö ár. Þau snúast í stuttu máli um að blökkumenn í héraðinu hafa gert uppreisn gegn stjórnvöldum og stjórnarhernum vegna ofríkis araba og misskiptingu efnislegra gæða. Friðarviðræður stjórnvalda og uppreisnarmanna sigldu í strand í gær og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir tímabært fyrir samtökin að hugsa upp á nýtt hvernig taka beri á málum. Óeirðirnar í Darfur hófust fyrir tæpum tveimur árum í borginni Kutum. Stjórnarherinn hefur borgina enn á valdi sínu en rétt nokkra kílómetra fyrir utan hana heyrast reglulega skothvellir og bardagar. Dominik Stillhart, yfirmaður Alþjóða Rauða krossins í Súdan, segir að síðustu vikurnar hafi verið mikið um átök og erjur í Darfur og það geri allt hjálparstarf auðvitað erfiðara. Síðan átökin hófust í febrúar í fyrra hafa uppreisnarmenn brennt yfir 400 þorp í Darfur og talið er að rúmlega hundrað þúsund manns hafi týnt lífi í átökunum. Hátt á aðra milljón manna hafa misst heimili sín og dvelja í flóttamannabúðum víðsvegar um héraðið og Alþjóða Rauði krossinn, sem heldur uppi víðtæku hjálparstarfi víðsvegar um héraðið, óttast að ástandið fari hraðversnandi á næstu vikum, takist ekki að stilla til friðar. Stillhart segir efnahagslífið hafa hrunið. „Hefðbundnar atvinnugreinar hafa orðið fyrir skakkaföllum og við gerum ráð fyrir að 2-3 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda árið 2005,“ segir Stillhart. Í Hassahissa-flóttamannabúðunum búa hátt í 30 þúsund manns og hafa gert það frá því í sumar. Þetta er allt fólk sem kemur úr nærliggjandi þorpum sem lögð hafa verið í rúst vegna átakanna sem geisa í Darfur. Alls eru á milli 100 og 150 flóttamannabúðir í héraðinu sem er á stærð við Frakkland og hafast tugþúsundir manna við í stærstu búðunum. Þetta er fólk sem hefur misst allt sitt, þorp þeirra hafa verið brennd og þurrkuð af yfirborði jarðarinnar, konum hefur verið nauðgað og margir ástvinir þeirra drepnir. Engu að síður blasir við manni bros, jákvæðni og velvilji hvert sem litið er. Erland Linklater, yfirmaður Alþjóða Rauða krossins í Kutum, segir fólkið vera yndislegt. Það haldi kímnigáfunni í öllu mótlætinu og það sé hreint ótrúlegt. „Manni hlýnar um hjartaræturnar við að sjá hvernig það bregst við þeim aðstæðum sem það býr við,“ segir Linklater
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira