Enn stríðshrjáð tveimur árum eftir lok bardaga 13. desember 2004 00:01
Vannæring, skortur á heilbrigðisþjónustu og skærur hrjá enn milljónir íbúa Kongó fjórum árum eftir að endir var bundinn á meiriháttar átök í mannskæðasta stríði heims frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Nýleg rannsókn á vegum bandarískra hjálparsamtaka gefur til kynna að enn þá látist þúsund manns daglega af orsökum sem rekja má til stríðsins. International Rescue Committee áætlar að 3,8 milljónir manna hafi farist í Kongó frá árinu 1998. Flestir hinna látnu, um 98 prósent, létust ekki í stríðsátökum heldur af völdum fylgifiska þeirra, hungurs og viðráðanlegra sjúkdóma sem ekki fékkst lækning við. "Á sex árum hefur heimurinn glatað fólksfjölda á við alla íbúa Írlands eða Los Angeles," sagði Rick Brennan, einn af skýrsluhöfundum, þegar hann freistaði þess að setja mannfallið í Kongó í samhengi. Stríðið í Kongó braust út þegar Rúandaher hélt inn í landið árið 1998 til að herja á rúandíska vígamenn sem höfðust við í landinu. Vígamennirnir voru menn sem staðið höfðu fyrir þjóðernishreinsununum í Rúanda 1994 og stóðu enn fyrir árásum inn í Rúanda. Fleiri ríki drógust inn í stríðið í kjölfarið og hefur það af þeim sökum, og vegna hins mikla mannfalls, stundum verið nefnt heimsstyrjöldin í Afríku. Nú óttast margir að átök brjótist út á nýjan leik. Ástæðan er sú sama og fyrir sex árum. Rúandastjórn kvartar undan því að stjórnvöld í Kongó og sveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna geri ekki nóg til að brjóta rúandíska vígamenn í Kongó á bak aftur. Rúandískir ráðamenn hóta því að senda herlið til Kongó til að berja vígamenn niður ef ekkert verður að gert og er talið víst að það geti leitt til frekari átaka. Fregnir hafa borist af því að Rúandaher sé þegar kominn til Kongó, þessu hafa erlendir sendimenn haldið fram og eftirlitssveitir Sameinuðu þjóðanna staðfest. Þessu hafna þó stjórnvöld í Kigali, höfuðborg Rúanda, og kalla óhróður Kongóstjórnar og Sameinuðu þjóðanna. Hvort tveggja bresk og bandarísk stjórnvöld hafa lýst áhyggjum af yfirlýsingum Rúandamanna og segja það hættulega þróun ef Rúandaher heldur inn í Kongó.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Sjá meira