Innlent

Osturinn afhjúpaður

Nýtt leiktæki, sem heitir Osturinn, var afhjúpað við Rimaskóla, í dag. Hönnuður tækisins er ellefu ára nemandi, við Skólann Hönnuðir eru á öllum aldri. Í tilefni af tíu ára afmæli Rimaskóla, á síðasta ári, efndi skólinn til verðlaunasamkeppni meðal nemenda sinna um hönnun nýs leiktækis á lóð skólans. Nemendur völdu svo flottasta tækið, sem var afhjúpað, í dag, á ellefu ára afmælisdegi hönnuðarins, sem heitir Vala Fanney Ívarsdóttir. Vala segir að sér hafi bara alt í einu dottið þessi uppfærsla í hug og ekki hafi komið annað til greina en að skýra tækið ostinn. Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, er að vonum ánægður með þennan árangur, og einnig með hugmyndir annarra nemenda, sem hann segir margar hafa verið mjög skemmtilegar. Osturinn er fimm metra langur og tveggja metra hár. Það var Barnasmiðjan við Gylfaflöt sem smíðaði ostinn, með góðum stuðningi Osta og Smjörsölunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×