Menning

Hagnaður Nýherja

Hagnaður Nýherja nam einni milljón króna eftir skatta á öðrum ársfjórðungi samanborið við 28,5 milljón króna hagnað á sama fjórðungi á síðasta ári. Hagnaðurinn fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir var 53,7 milljónir króna en 72,6 milljónir króna á öðrum fjórðungi á síðasta ári. Tap eftir skatta á fyrri árshelmingi ársins 2004 nam 30,9 milljónum króna samanborið við 61,4 milljón króna hagnað á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur tímabilsins námu 2,338 milljónum króna og jukust um tæplega fimm prósent ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Horfur eru þó jákvæðar fyrir þriðja ársfjórðung vegna aukinnar eftirspurnar á upplýsingatæknimarkaðinum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×