Menning

Álagningaseðlar aðgengilegir

Álagningarseðlar þeirra sem töldu fram á netinu verða aðgengilegir á þjónustusíðunni rsk.is með kennitölu og veflykli og verður vefurinn opnaður þann 28. júlí. Seðlar til þeirra sem ekki hafa afþakkað pappír verða póstlagðir í lok júlí en reikna má með að vegna frídags verslunarmanna fái margir þá ekki fyrr en þriðjudaginn 3. ágúst, viku eftir að þeir verða aðgengilegir á rsk.is. Ríkisskattstjóri hvetur því alla þá sem ekki hafa þegar afþakkað álagningarseðil á pappír til að fara inn á þjónustusíðuna rsk.is fyrir 12. júlí og gera það til að spara óþarfa kostnað.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×