Menning

Sumarhúsalán í boði

Hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar bjóðast nú sérstök sumarhúsalán til kaupa eða endurbóta á sumarhúsi. Lánað er til allt að 15 ára og getur lánshlutfall verið allt að 60 prósent af markaðsvirði sumarhússins. Lánið er tryggt með veði í sumarhúsinu og er veittur 50 prósenta afsláttur af lántökugjaldi. Hægt er að velja á milli breytilegra eða fastra vaxta og fara þeir meðal annars eftir veðsetningahlutfalli. Þjónustufulltrúar Sparisjóðs Hafnarfjarðar veita allar nánari upplýsingar um lánið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×