Stjórnvöld brugðust of seint við 30. desember 2004 00:01
Stjórnvöld í Svíþjóð og Noregi eru harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast seint við afleiðingum hamfaraflóðanna í Suðaustur-Asíu. Forsætisráðherra Svíþjóðar segir að á annað þúsund Svía kunni að hafa farist. Ekki er vitað um afdrif á fimmta hundrað Norðmanna. Sænsku konungshjónin og Göran Person, forsætisráðherra Svíþjóðar, tóku þátt í minningarathöfn í Stokkhólmi í dag, um þá Svía sem farist hafa í hamfaraflóðunum í Suðaustur-Asíu, en þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Svíþjóð og Noregi á nýársdag, þar sem þetta er mesta mannfall í þessum löndum á friðartímum. Langflestir þeirra erlendu ferðamanna, sem fórust í flóðunum, voru Svíar, Norðmenn og Þjóðverjar, en talið er að hundruð Dana og Finna séu einnig meðal fórnarlambanna. Göran Person hefur staðfest að á fimmta tug Svía hafi látið lífið í flóðunum, en sænsk yfirvöld óttast að sú tala hækki í á annað þúsund, þar sem talið er að um fjórtán hundruð Svía sé saknað. Sænskir fjölmiðlar og ferðaskrifstofur segja hins vegar ekki vitað um afdrif allt að 4500 sænskra ferðamanna á flóðasvæðunum. Sænskir hjálparstarfsmenn hafa gagnrýnt stjórnvöld í Svíþjóð fyrir að bregðast ekki nægilega skjótt við ástandinu. Um tuttugu Norðmenn hafa fundist látnir eftir hamfarirnar í Tælandi, en um fjögur hundruð og þrjátíu er enn saknað. Loftbrú er á milli Skandinavíu og Tælands til að flytja hjálpargögn og sækja særða ferðamenn og aðra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna. Jamtin Carin, þróunarmálaráðherra Svíþjóðar, segir stjórnvöld hafa verið nokkuð sein að taka við sér, en hins vegar geri þau nú allt sem í þeirra valdi stendur til þess að mæta aðstæðunum. Meðal annars verði sendir læknar og sálfræðingar á svæðið til þess að aðstoða fólk. Hins vegar sé afar erfitt að koma til móts við alla, því að gríðarlegur fjöldi Svía sé á svæðinu.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Sjá meira