Alnæmi heftir framþróun ríkja 10. júlí 2004 00:01
Alþjóðavinnumálastofnunin gerir ráð fyrir að allt að 50 milljón manns á vinnufærum aldri muni láta lífið úr alnæmi á næstu fimm árum. Telur stofnunin að slíkt eigi eftir að hafa alvarleg efnahagsleg áhrif víða um heim og telur mjög brýnt að auka baráttuna gegn þessum skæða faraldri hið fyrsta. Þetta kemur fram í nýrri ítarlegri skýrslu stofnunarinnar sem birt er í dag en þá hefst í Bankok í Taílandi ráðstefna fjölda alþjóðlegra stofnana um alnæmi og þau áhrif sem sjúkdómurinn hefur. Í skýrslunni er sérstaklega litið til þeirra áhrifa sem alnæmisfaraldurinn getur haft á atvinnulíf margra þjóða og er niðurstaðan sú að þessi gríðarlegi fjöldi sé ekki eingöngu hræðilegur harmleikur heldur einnig að vel sé hugsanlegt að slíkt geti heft til muna alla þjóðfélagslega og efnahagslega þróun í mörgum löndum. Tekur skýrslan til 50 landa og sýnir að í dag eru rúmar 36 milljónir atvinnufærra manna sýktar. Um aldurshópinn 15 til 49 ára er að ræða enda er það sá hópur að mati Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem vinnur hvað mest og skilar hvað mestu til þjóðarbúsins. Alvarlegast þykir að heilum 24 árum eftir að sjúkdómurinn fyrst uppgötvaðist er baráttan við faraldurinn á fallandi fæti og ekki er nóg að gert í rannsóknarvinnu til að lækna eða á annan hátt sporna við þessari þróun. Staðreyndin sé sú að sífellt minni fjármunum sé veitt til forvarnarstarfa um heim allan þrátt fyrir að fjöldi smitaðra aukist. Alþjóðavinnumálastofnunin segir ástandið langverst í Afríku en þar búa langflestir þeir sem smitaðir eru af HIV-veirunni. Bendir stofnunin á að þegar hafi sjúkdómurinn haft mikil efnahagsleg áhrif á fjölda landa í álfunni og geri þeim enn erfiðara um vik að brjótast úr þeim böndum fátæktar sem einkennir mörg afrísk ríki. Sömu sögu má segja af Asíu en tilfelli eru þó mun færri og hafa því ekki haft jafn eyðileggjandi áhrif og raunin er í Afríku.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Sjá meira