Erlent

20 milljónir safnast á Íslandi

Alþjóða Rauði krossinn sendi út stærstu hjálparbeiðni um áratugaskeið í gær en talin er þörf á um þremur milljörðum króna til hjálparstarfs samtakanna á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Rúmlega tíu þúsund manns á Íslandi hafa hringt í söfnunarsíma Rauða krossins. Ríkisstjórnin, Pokasjóður, deildir Rauða krossins og fyrirtæki hafa einnig stutt hjálparstarfið með framlögum og alls hafa safnast um 20 milljónir króna. Á vegum Rauða krossins er leitað að ástvinum Íslendinga á flóðasvæðunum í gegnum leitarþjónustu Alþjóða Rauða krossins. Hjálparstarf er unnið um alla Asíu, sérstaklega þar sem ástandið er verst; á Srí Lanka, Taílandi og Indónesíu. Hjúkrunargögn fyrir 120 þúsund manns hafa verið send til Srí Lanka og verið er að skipuleggja aðstoð við 150 þúsund manns í austur- og norðurhluta landsins, sem er á valdi skæruliða. Flugvél Rauða krossins flaug frá Naíróbí til Srí Lanka á þriðjudag með 105 tonn af hjálpargögnum sem eiga að mæta þörfum 50 þúsund manns



Fleiri fréttir

Sjá meira


×