Kvótar ESB minnkaðir 22. desember 2004 00:01
Fiskveiðikvótar Evrópusambandsins verða minnkaðir á næsta ári en ekkert verður úr algjöru þorskveiðibanni á stórum svæðum eins og vísindamenn höfðu lagt til, í þeim tilgangi að koma í veg fyrir hrun stofnsins. Þessi niðurstaða náðist eftir mikið þjark hjá ráðherrum sambandsríkjanna en Alþjóða hafrannsóknaráðið lagði til í haust að þorskveiðar yrðu alveg bannaðar í Norðursjó í eitt ár eða lengur til að byggja upp stofninn. Ráðherrarnir höfnuðu líka hugmyndum um að loka alveg ákveðnum veiðisvæðum og tóku í stað þess upp takmarkað veiðibann á viðkvæmum svæðum. Fiskifræðingar hafa varað við því að stofnar margra helstu tegunda séu sums staðar orðnir svo litlir að hætta sé á að þorskur, lýsingur og koli deyi út. Skoskir fiskimenn fagna því að ekkert varð úr þorskveiðibanni í Norðursjó sem þeir segja að hefði riðið mörgum útgerðum að fullu. Íslenskir fiskútflytjendur geta sjálfsagt fagnað líka því sumir þeirra hafa bent á að erfitt hefði orðið að selja þorsk í Bretlandi ef veiðibann í Norðursjó hefði verið samþykkt því almenningur hefði þá sjálfsagt álitið allan þorsk í útrýmingarhættu, sama hvaðan hann kæmi.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira