Annan vill ekki fara til Darfur 23. desember 2004 00:01
Tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að stilla til friðar í Darfur-héraði í Súdan hafa ekki skilað neinum árangri, segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna. Hann telur rétt að hugsa upp á nýtt hvernig taka beri á málum. Ástandið í Darfur-héraði í Súdan fer versnandi. Friðarviðræður stjórnvalda og uppreisnarmanna sigldu í strand í gær og verður ekki sest að samningaborði fyrr en í janúar. Í yfirlýsingu frá öðrum megin uppreisnarhópnum var áhyggjum lýst af því að stjórnvöld í Khartoum noti tækifærið og reyni að útrýma íbúum Darfur. Stjórnvöld segja aftur á móti að Ísraelsmenn sjái uppreisnarmönnum fyrir vopnum og að Þjóðverjar hafi skotið yfir leiðtoga þeirra skjólshúsi. Um tvær milljónir íbúa héraðsins hafa flúið heimili sín, þúsundur hafa fallið í átökum og þúsundir til viðbótar hafa látist úr sjúkdómum sem hægt hefði verið að lækna. Hjálparstofnanir eiga hins vegar erfitt um vik þar sem starfsmenn þeirra verða í sífellu fyrir árásum og neyðarbirgðum er rænt. Sum hjálparsamtök hafa kallað starfsfólk sitt heim þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi þess. Á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna kom til tals að Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna, héldi til Darfur líkt og hann gerði síðasta sumar til þess að reyna að tryggja öryggi og aðgang hjálparstarfsmanna. Annan vísaði þeim hugmyndum hins vegar á bug og sagði að líkindum tímabært fyrir Sameinuðu þjóðirnar að hugsa upp á nýtt aðferðafræði sína í Súdan. Horfast þyrfti í augu við að þær aðferðir, sem beitt hefði verið, hefðu ekki skilað tilætluðum árangri.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira