Innlent

20 börn í aðgerð árlega

Allt að því tuttugu börn eru lögð inn á skurðdeild Barnadeildar Landspítalans ár hvert vegna brunasára og eru langflest þeirra yngri en fjögurra ára. Þá eru ótalin þau sem sækja meðferð á göngudeild vegna brunasára. Eins árs gömul stúlka sem brenndist illa í baðvaski í Reykjanesbæ nýverið hefur verið flutt á sjúkrahús til Danmerkur til meðhöndlunar brunasára sinna. Þriggja ára barn skrúfaði frá heitu vatni og lét renna í baðvask þar sem stúlkan sat og er hún með annars og þriðja stigs bruna á helmingi líkamans. Í Danmörku verður reynt að græða á hana nýja húð en það er ferli sem getur tekið margar vikur. Langflest brunaslysin sem verða á smábörnum hér á landi eru vegna kranavatns sem getur valdið skaðlegum bruna á augabragði. Í raun má segja að eldhúsið og baðherbergið séu hættulegustu staðir heimilisins, með krönum og rafmagnssnúrum sem börnum þykir gaman að fikta í. Takkar á eldavélum og pönnusköft sem skaga fram eru einnig spennandi. Vegna þess hversu viðkvæm húð barna er eru áverkarnir mun dýpri og alvarlegri en ef um fullorðna manneskju er að ræða.  Herdís L. Storgaard, verkefnastjóri hjá Lýðheilsustöð, segir það taka fullorðinn einstakling aðeins brot úr sékúndu að kippa að sér hendinni ef hann snertir heitan flöt. Hjá litlum börnum tekur það hins vegar frá einni og hálfri mínútu upp í tvær og hálfa.  Bruni af völdum heitra vökva eins og kaffi og súpu er einnig algengur hér á landi. Ekki þarf mikið magn til að djúp brunasár myndist. Smá skvetta úr kaffibolla getur t.d. þakið um 20% prósent líkama barnsins.  Á heimasýðu lýðheilsustöðvar er að finna leiðbeiningar um það hvernig forðast megi slys á heimilum. Þess má einnig geta að aðstandendur og vinir stúlkunnar úr Reykjanesbæ standa fyrir söfnun fyrir foreldra hennar. Styrktarreikningurinn er í Landsbankanum í Keflavík. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×