Hjálparstarfið komið í fullan gang 31. desember 2004 00:01
Hátt í 130 þúsund manns eru nú taldir af eftir hamfarirnar við Indlandshaf á annan í jólum og er talið víst að sú tala eigi eftir að hækka töluvert. Fjöldi flutningabifreiða með matvæli, lyf og líkpoka er nú kominn á hamfarasvæðin og birgðum er kastað úr flugvélum til afskekktra þorpa. Í dag er hjálparstarfið í Asíu komið í fullan gang eftir skrykkjótta byrjun. Risastórar bandarískar herflutningavélar lenda nú hver á eftir annari í Medan-borg á Indónesíu þar sem matvælum, vatni og lyfjum er komið í flutningabíla sem aka eiga með vistirnar til Ache-héraðs þar sem fjöldi látinna er í kringum áttatíu þúsund. Flutningur hjálpargagna til héraðsins hefur verið ómögulegur hingað til vegna braks sem liggur á vegum og brýr hafa sópast burt á mörgum stöðum. Það tekur flutningabílana sextán klukkustundir að komast til Banda Ache, höfuðborgar héraðsins. Ástralskar og nýsjálenskar herflugvélar fljúga beint til borgarinnar með vistir og taka slasaða með sér til baka. Heilbrigðisráðherra Indónesíu segir að líklega séu fleiri en hundrað þúsund látnir í landinu. Tala látinna á Indlandi hefur lækkað úr þrettán þúsund niður í tæp ellefu þúsund eftir að fólk sem talið var af á Andaman- og Nicobar-eyjum fannst heilt á húfi. Kínverjar hafa heitið sextíu milljónum dala til hjálparstarfsins sem reynir á þolrif heimsbyggðarinnar að sögn Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann hélt blaðamannafund í New York í gær og sagði þar að heimsbyggðin öll yrði að sameinast í hjálparstarfinu. Flóðbylgjan hefur tekið meira en 125 þúsund líf í þrettán löndum. Einn milljón manna er heimilislaus og fimm milljónir manna án lífsnauðsynja. Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna., segir að björgunargögn sem duga eiga um tvö hundruð þúsund manns séu á leið á hamfarasvæðin. Þriðjungur hinna látnu eru börn og fjöldi þeirra til viðbótar eru nú munaðarlaus. Á Srí Lanka er að minnsta kosti fimm þúsund saknað og 28 þúsund lík fundin og björgunarfólk hefur enn ekki komist til afskekktustu þorpanna. Á Taílandi, þar sem þúsundir líka liggja rotnandi í búddahofum, berast björgunargögn ekki bara til hinna lifandi heldur líka til hinna látnu. Líkpokar í þúsundatali og formalín til að varðveita lík berast nú til Phuket-eyju á Taílandi. Þar óska yfirvöld eftir kæligámum og þurrís. Á sumum svæðum er enn verið að finna lík. Í sumum tilfellum liggja rotnandi mannslík og dýrahræ í vatnsbólum og menga vatnsbirgðir sem eru af mjög skornum skammti. Þetta eru hörmungar á mælikvarða sem á sér vart samanburð. Á Patong-strönd á Phuket-eyju báru nýkomnir breskir ferðamenn á sig sólaráburð í gær og lögðust í sólbað. Sumir þeirra fengu sér sundsprett í sjónum sem tók þúsundir mannslífa fyrir nokkrum dögum. Sölufulltrúi ferðaskrifstofunnar fullvissaði þá um að fríið þeirra yrði dásamlegt, þrátt fyrir allt.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Sjá meira