Óheppinn ökumaður 8. október 2004 00:01
Tæplega þrítugur Frakki varð á dögunum fyrir þeirri martraðarkenndu reynslu að hraðastillirinn (cruiscontrolið) í bílnum hans festist á 190 km hraða. Ofsaakstur mannsins hófst þegar hann var að fara fram úr vörubíl á hraðbraut. Þegar hann ætlaði að draga úr hraðanum eftir framúraksturinn gat hann það ekki. Þess í stað hélt hraðinn áfram að aukast þar til hraðastillirinn festist í 190 km hraða. Ökumaðurinn segist hafa reynt að vara aðra bílstjóra við með því að blikka ljósum. Hann reyndi svo að stöðva bifreiðina með því að draga út lykilspjaldið en án árangurs. Þá hafði ökumaðurinn samband við lögreglu og bað um aðstoð. Lögreglan greiddi leið ökumanns og farartækisins stjórnlausa með tilkynningum á vegskiltum og gegnum útvarp um hraðaaksturinn. Ökumanninum tókst loks að stöðva bifreiðina og þá með því að stíga bremsuna af öllu afli.
Bílar Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira