Rumsfeld í Írak 24. desember 2004 00:01
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandríkjanna, birtist í óvæntri heimsókn í borginni Mósúl í Írak í morgun, þremur dögum eftir eina mannskæðustu árásina á Bandaríkjaher í Írak til þessa. Komið hefur í ljós að árásarmaðurinn var klæddur herbúningi írakska hersins þegar hann framdi ódæðið. Tuttugu og tveir létust í árásinni og um sextíu særðust, og er þetta mannskæðasta árásin sem gerð hefur verið á bandaríska herstöð í Írak síðan ráðist var inn í landið. Árásarmaðurinn virðist hafa komist í gegnum nákvæmar skoðanir á bakgrunni þeirra sem starfa fyrir íröksku og bandarísku öryggissveitirnar. Embættismaður innan Bandaríkjahers segir að maðurinn hafi að líkindum verið klæddur herbúningi írakska öryggissveita, en þær hafa unnið með Bandaríkjaher í aðgerðum gegn andspyrnumönnum. Hingað til hefur ekki borið á spennu milli sveitanna, en það kann að breytast í kjölfar þessa. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfeld, birtist í óvæntri heimsókn í Mósúl í morgun. Heimsótti hann særða hermenn á sjúkrahúsi, og ávarpaði fótgönguliða hersins, en þeir óttast margir um öryggi sitt eftir árásina. Hann sagði þeim að þó að baráttan við uppreisnarmenn hefði reynst erfið væri hann sannfærður um að það tækist að brjóta uppreisnina á bak aftur, og lofaði hermönnunum að seinna í lífi sínu myndu þeir líta til baka með stolti yfir að hafa tekið þátt í baráttunni í Írak. Washinton Post greinir frá því í dag að Colin Powell varnarmálaráðherra, hafi sagt bæði Bush og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í síðasta mánuði, að það væru of fáar hersveitir í Írak. Innan við þremur vikum síðar tilkynnti varnarmálaráðuneytið að hermönnum yrði fjölgað um tólf þúsund. Þar með yrðu eitt hundrað og fimmtíu þúsund bandarískir hermenn í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Sjá meira