Hermenn í Írak heyja sálarstríð 24. desember 2004 00:01
Bandarísk yfirvöld hafa nú staðfest að sprengingin sem varð 22 mönnum að bana í matsal bandarískrar herstöðvar í borginni Mosul í Írak á þriðjudaginn var ekki vegna flugskeytis heldur var um sjálfsmorðsárás ræða. 69 manns særðust í árásinni. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Richard Myers hershöfðingi tilkynntu þetta á blaðamannafundi í gær. Líkamshlutar árásarmannsins hafa fundist sem og vesti sem hann notaði til að geyma sprengiefnið í. Árásin á þriðjudaginn er litin gríðarlega alvarlegum augum. Ekki hefur orðið meira mannfall í árás á bandaríska herstöð í Írak síðan stríðið hófst í mars 2003. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja að árásin hafi þegar haft áhrif á sálarþrek hermanna. Fyrst hægt sé að ógna öryggi þeirra með þessum hætti inni á herstöð finnist þeim að þeir séu hvergi öruggir. Fyrirtækið sem ráðið var til að reka mötuneytið í herstöðinni í Mosul er með starfsmenn frá ýmsum löndum í vinnu hjá sér, einnig Íraka. Samtökin Ansar al-Sunnah sem hafa lýst ábyrgð á árásinni segja á heimasíðu sinni á netinu að maðurinn sem sprengdi sig í loft upp hafi verið Íraki frá Mosul. Hann hafi starfað í mötuneytinu í fjóra mánuði áður en hann sprengdi sig í loft upp. Aukin sókn uppreisnarmanna hefur ekki bara áhrif á sálarlíf hermanna heldur einnig uppbygginguna í landinu. Í gær tilkynnti verktakafyrirtækið Contrack International að það væri hætt að sinna verkefni sínu við uppbyggingu vegakerfisins. Það verk var metið á rúma 20 milljarða króna. Ástæðan fyrir því að fyrirtækið ætlar að draga sig út úr Írak er aukin hætta á hryðjuverkum og ógn við öryggi starfsmanna. Mikið er að gera á hersjúkrahúsinu í Landstuhl í Þýskalandi þessa dagana en þangað eru illa særðir bandarískir hermenn fluttir frá Írak. Læknar vinna nú myrkranna á milli og er reiknað með því að ástandið verði svipað um jólin. Á miðvikudaginn voru 42 hermenn fluttir þangað. Sautján af þeim voru taldir í bráðri lífshættu. Í gær voru 30 hermenn til viðbótar fluttir til Landstuhl.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira