Viðskipti innlent
Sunnlendingar óánægðir með skattahækkunina Markaðsstofa Suðurlands hvetur stjórnvöld til að hverfa frá boðaðri hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Hækkun virðisaukaskatts þykir til þess fallin að grafa undan viðleitni Sunnlendinga til að laða ferðamenn að landsfjórðungnum. Viðskipti innlent 23.9.2012 14:28
Telur stöðumat Bjarna fela í sér hrapalleg mistök Einhver hrapallegustu utanríkispólitísku mistök þjóðarinnar fram til þessa voru kolrangt stöðumat í viðræðum við Bandaríkjamenn um framhald varnarviðbúnaðar hér, sem endaði með því að þeir fóru með öllu, segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra í vikulegum pistli sínum í helgarblaði Fréttablaðsins. Viðskipti innlent 23.9.2012 13:22
"Skýrslan lítur svolítið út eins og pantað plagg" Skýrsla Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum sem kom út í vikunni var upphaflega skrifuð til að fjalla um íslensku krónuna eða evruna sem valkosti fyrir Ísland. Þetta kom fram í umræðum í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Viðskipti innlent 23.9.2012 10:51
Guðlaugur vill ræða um þrotabú bankanna Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur mikilvægt að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis ræði framkvæmd Seðlabankans á gjaldeyrishöftunum og hættu sem steðjar af Íslandi ef erlendir kröfuhafar ná yfirráðum yfir þrotabúum bankanna. Viðskipti innlent 22.9.2012 14:40
Vafasamt að verðtrygging neytendalána standist lög Tveir lögmenn sem unnu álitsgerð um hvort verðtrygging á Íslandi sé lögleg eða ekki telja verulegan vafa á því að það standist lög að selja almennum neytendum verðtryggð lán. Viðskipti innlent 22.9.2012 12:19
Leiguverðið hækkar mest miðsvæðis Leiguverð hefur hækkað umtalsvert að undanförnu en algengt er á þessum árstíma að námsfólk leigi sér húsnæði eða endurnýji leigusamninga. Lögfræðingur Neytendasamtakanna gefur leigutökum og leigusölum einfalt ráð til að koma í veg fyrir vandræði. Það er að hafa allt skriflegt sem samið er um. Viðskipti innlent 22.9.2012 11:28
Styttist í samninga um fjármögnun Vaðlaheiðarganga Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, vonast til þess að gengið verði endanlega frá samningum um fjármögnun Vaðlaheiðarganga á næstu dögum. Þetta sagði Eiríkur í samtali við vikudag á Akureyri eftir fund hans með fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra. Viðskipti innlent 22.9.2012 11:00
Íbúðalánasjóður leigi út eignir sínar Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs skorar á Íbúðalánasjóð að auglýsa eignir sjóðsins á Fljótsdalshéraði til leigu. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Viðskipti innlent 22.9.2012 10:30
Skuldir Álftaness minnka Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 en verður komin í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ. Viðskipti innlent 22.9.2012 10:28
Heiðar Már: Hér getur skapast lögfræðilegt stríðsástand "Hættan er sú að ef kröfuhafar undirrita nauðasamninga án þess að tryggt sé að þeir geti ekki komið eignum sínum út á undan öllum landsmönnum, þá skapist hér lögfræðilegt stríðsástand," segir Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur, í grein í Fréttablaðinu í dag. Viðskipti innlent 22.9.2012 08:57
Kaupþing frestar nauðasamningi Kaupþing hefur frestað framlagningu nauðasamnings fram á síðasta ársfjórðung ársins 2012. Áður stóð til að leggja nauðasamninginn fram á þriðja ársfjórðungi, sem lýkur í lok septembermánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef þrotabús Kaupþings sem birt var í gær. Viðskipti innlent 22.9.2012 05:00
Dúkkulísurnar flytja fé til Vestfjarða Dress up games ehf., sem rekur Dúkkulísuvefinn Dressupgames.com, hagnaðist um 48,8 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er nokkru minna en árið 2010 en þá hagnaðist félagið um ríflega 88 milljónir króna. Eigið fé félagsins nam 192 milljónum í lok síðasta árs. Eignir félagsins námu 257 milljónum króna og skuldir rúmlega 65 milljónir, þar af námu viðskiptaskuldir tæplega 50 milljónum króna. Viðskipti innlent 21.9.2012 17:20
Þingmenn gefast ekki upp fyrir Seðlabankanum Samstaða er um það í fjárlaganefnd Alþingis að reyna til þrautar að krefja Seðlabanka Íslands upplýsinga um það af hverju tekin var ákvörðun um að lána Kaupþingi 500 milljóna evra þrautavaralán örfáum dögum fyrir hrun bankans og hvernig staðið var að ákvörðuninni. Viðskipti innlent 21.9.2012 13:27
Ætla að setja lög um smálán Til stendur að setja lög um smálán, eða svokölluð neytendalán, þar sem meðal annars verður kveðið á um hámarksvexti lánanna. Viðskipti innlent 21.9.2012 12:52
Harpa Ólafsdóttir: Þurfum að gæta hagsmuna okkar sjóðsfélaga Harpa Ólafsdóttir, formaður stjórnar Gildis, segir sjóðinn ítrekað hafa óskað eftir því að fá betri sundurliðun á kostnaði hjá slitastjórn Glitnis, en ekki fengið. Það sé óásættanlegt þar sem sjóðsfélagar eigi heimtingu á því að fá þessar upplýsingar nákvæmlega niðurgreindar. Viðskipti innlent 21.9.2012 12:00
Húsasmiðjan stækkar við sig í Vestmannaeyjum Húsasmiðjan og Blómaval opna í dag nýja 1.100 fermetra verslun í Vestmannaeyjum. Verslunin er í nýju húsi, sem byggt hefur verið sérstaklega fyrir Húsasmiðjuna, að Græðisbraut 1. Viðskipti innlent 21.9.2012 11:37
WOW air flýgur til Gatwick Frá og með deginum í dag mun WOW air hefja áætlunarflug til Gatwick flugvallar. Í vetur verður flogið til Lundúna alla föstudaga og heim til Íslands á mánudögum. Í sumaráætlun félagsins mun ferðum fjölga til muna en flogið verður átta sinnum í viku til Gatwick flugvallar. Gatwick flugvöllur er annar stærsti flugvöllur Bretlands og er ein af flugbrautum vallarins meðal þeirra fjölförnustu í heiminum. Flugvöllurinn þjónar um 34 milljónum farþegar sem koma frá 200 áfangastöðum í 90 löndum. Flugvöllurinn er staðsettur 28 km. suður af Lundúnum og er vel tengdur með opinberum samgöngum, þar með talið Gatwick Express hraðlestinni. Gatwick Airport er í eigu hóps alþjóðlegra fjárfesta en Global Partners er einn stærsti hluthafinn. Viðskipti innlent 21.9.2012 11:05
Lítilsháttar aukning á kaupmætti launa Vísitala kaupmáttar launa í ágúst er 112,2 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,7%. Viðskipti innlent 21.9.2012 09:08
Sala á hlut banka gæti skilað 82 milljörðum Verði frumvarp um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum að lögum fær Oddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, heimild til að selja 13 prósenta hlut í Arion banka, fimm prósenta hlut í Íslandsbanka, allt að 28 prósenta hlut í Landsbankanum og allt hlutafé sem ríkið á í sparisjóðum landsins. Í frumvarpinu, sem var lagt fram í gær, kemur fram á að leggja skuli áherslu á "opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni“ við söluna sem Bankasýsla ríkisins á að annast. Með hagkvæmni er átt við að leitað verði hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhlutina. Viðskipti innlent 21.9.2012 07:30
Deutsche Bank fór úr landi með 15 milljarða Lýsingarfé Dótturfélag Lýsingar seldi gjaldeyri til að greiða Deutsche Bank 35 milljarða króna skuld í mars 2012. Þýski bankinn fór með hluta upphæðarinnar úr landi. Greiðslan hafði ekki áhrif á gengi íslensku krónunnar. Viðskipti innlent 21.9.2012 05:00
Málareksturinn í Icesave kostar 140 milljónir Gert er ráð fyrir því að kostnaðurinn við málsvörnina í Icesave málinu kosti 140 milljónir króna. Þetta kemur fram í fjáraukalögum fyrir árið 2012 sem dreift var á Alþingi í dag. Auk 140 milljóna króna sem fara í málareksturinn sjálfan er óskað eftir 13 milljóna króna framlagi til þess að kynna sjónarmið Íslands erlendis. Viðskipti innlent 20.9.2012 23:39
BMW semur við Verne Global Þýska stórfyrirtækið BMW hefur bæst í hóp viðskiptavina Verne Global á Íslandi. Bílaframleiðandinn mun sannreyna hönnuð mót fyrir nýjustu bifreiðar sínar í gagnaveri fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Viðskipti innlent 20.9.2012 20:30
Salan á Hamleys rædd á kröfuhafafundi í nóvember Kröfuhafafundur slitastjórnar Landsbanka Íslands verður haldinn 22. nóvember næstkomandi. Ekki hefur verið ákveðið hvenær skilanefndin hyggst greiða út til kröfuhafa. Viðskipti innlent 20.9.2012 20:29
Íslenska ríkið greiðir 260 milljónir í skaðabætur Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Íslenskum aðalverktökum hf. og NCC International AS tæpar 259 milljónir króna með dráttarvöxtum frá 10. ágúst 2003 til 10. janúar 2007 í skaðabætur vegna útboðs Vegagerðarinnar um gerð Héðinsfjarðarganga. Með niðurstöðunni snýr Hæstiréttur við niðurstöðu Héraðsdóms. Viðskipti innlent 20.9.2012 17:03
Nýr verkefnastjóri í Norræna húsið Norræna húsið auglýsti nýlega eftir stöðu verkefnastjóra og sóttu um 130 manns um starfið. Ákveðið var að ráða Kristínu Scheving myndlistarmann, sýningarstjóra og verkefnisstjóra. Í tilkynningu fagnar Norræna húsið komu Kristínar og tekið er fram að margir mjög hæfileikaríkir einstaklingar hafi sótt um starfið. Viðskipti innlent 20.9.2012 15:48
Vissu ekki að þau yrðu í iPhone auglýsingunni Hljómsveitin Of Monsters and Men vissi ekki að til stóð að spila lag frá þeim undir auglýsingu Apple um nýja iPhone-inn. Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu í dag. Viðskipti innlent 20.9.2012 14:41
Óska eftir heimild til sölu á hlutum ríkisins í bönkunum Fjármálaráðherra fær heimild til að selja allan hlut íslenska ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka, auk þess sem honum verður heimilt að selja ríflega 11% hlut í Landsbankanum, samkvæmt nýju frumvarpi sem dreift var á Alþingi í morgun. Frumvarpið gerir auk þess ráð fyrir að ráðherra fái heimild til þess að selja hluti ríkisins í sparisjóðunum. Frumvarpið var áður lagt fram á síðasta kjörtímabili en var ekki afgreitt. Viðskipti innlent 20.9.2012 12:46
Össur: Evran á bjartari tíð framundan "Ég er þeirrar skoðunar að nú horfi töluvert betur fyrir framtíð evrunnar en áður," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, á Alþingi í dag. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, velti því upp hvort ekki væri kominn tími til að draga aðildarumsóknina til baka. Viðskipti innlent 20.9.2012 12:29
Um 10 starfsmenn launahærri en Jóhanna Eins og stendur eru um 10 manns í stjórnkerfinu með hærri laun en forsætisráðherra. Aftur á móti er það aðeins forseti sem er með hærri dagvinnulaun en forsætisráðherra. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Viðskipti innlent 20.9.2012 12:18
Þingmenn Samfylkingar: Evran yrði farsælust fyrir þjóðina Alþingismenn ræddu nýbirta skýrslu Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldeyrismálum á þingi í morgun. Skýrslan bendir til þess að þjóðin eigi aðeins tvo raunhæfa kosti, að nota áfram íslensku krónuna eða taka upp Evru. Þingmenn Samfylkingarinnar sammæltust um að upptaka Evru yrði farsælli fyrir þjóðina. Viðskipti innlent 20.9.2012 12:09
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent