Viðskipti innlent
Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent 4.11.2006 07:00 Ákvörðun áfrýjað Osta og smjörsalan hefur áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkepppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því 13. október síðast liðinn. Þar var kveðið á um að Osta- og smjörsalan hefði brotið gegn samkeppnislögum með því að mismuna viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í samskonar viðskiptum með undanrennuduft. Viðskipti innlent 4.11.2006 06:45 Stjórn bíður átekta Stjórn plastframleiðslufyrirtækisins Polimoon ASA getur ekki mælt með því að hluthafar samþykki yfirtökutilboð frá Plast Holding A/S. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í kjölfar þess að Promens, dótturfélag Atorku, lýsti því yfir að það hygðist gera yfirtökutilboð um kaup á öllu hlutafé fyrirtækisins. Viðskipti innlent 4.11.2006 06:45 « ‹ ›
Aukið tap hjá DeCode DeCode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, tapaði 23,6 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 1,6 milljörðum króna, á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 11,4 milljónir dala tap eða tæplega 778 milljónir króna, á sama tíma í fyrra. Tap móðurfélagsins á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 62,2 milljónum dala eða 4,2 milljörðum króna sem er 1,4 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra en þá nam tapið 2,8 milljörðum. Viðskipti innlent 9.11.2006 09:43
Peningaskápurinn ... Endi var bundinn á áralanga deilu Atlantsskipa og Samskipa í Hæstarétti nú í byrjun vikunnar. Atlantsskip höfðu farið fram á bætur upp á rúmlega 72 milljónir króna vegna vanefnda á samningi um flutninga sem félögin höfðu gert með sér árið 2001 og endurnýjað árið 2003. Viðskipti innlent 9.11.2006 00:01
Minni samdráttur á fasteignamarkaði Þinglýstum fasteignasamningum á höfuðborgarsvæðinu í október fækkaði um 26 prósent frá sama tíma fyrir ári en samdráttur í veltu nemur 17 prósentum, samkvæmt upplýsingum sem Fasteignamat ríkisins birti nýlega. Viðskipti innlent 8.11.2006 11:07
Minni hagnaður hjá TM Tryggingamiðstöðin (TM) skilaði tæplega 1,1 milljarði króna í hagnað á þriðja fjórðungi ársins samanborið við rúmlega 2,5 milljarða króna hagnað í fyrra. Hagnaður tryggingafélagsins nam 464 milljónum krónum á fyrstu níu mánuðum ársins sem er um 5 milljörðum krónum minna en á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 8.11.2006 10:08
Símakostnaður lækkaður með netsíma Vodafone hefur tekið í notkun þjónustu sem nefnist Netsíminn. Þjónustan er sögð geta stórlækkað símakostnað fólks. Með Netsímanum er hringt úr nettengdri tölvu og hægt að hringja ókeypis í alla heimasíma, auk þess sem fólk í útlöndum getur hringt í netsíma hér án tilkostnaðar. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Línuhönnun fær gæðaverðlaunin Verkfræðistofan Línuhönnun fékk Íslensku gæðaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica síðdegis í gær. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Fimmtungsfjölgun gistinótta Umsvif í ferðaþjónustu hafa aukist umtalsvert á milli ára samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Gistinætur á hótelum í september í ár voru 114.600 en voru 93.000 í sama mánuði í fyrra, sem er 22 prósenta fjölgun. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Gott fyrir Eyjamenn Síminn hefur tekið í notkun nýja gagnvirka þjónustu í sjónvarpi um ADSL. Nú gefst viðskiptavinum með sjónvarp um ADSL kostur á að taka þátt í kosningum og skoðanakönnunum í gegnum fjarstýringu. Þjónustan var tekin í notkun fyrir skömmu í þættinum 6 til sjö á SkjáEinum. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
EGO fær viðurkenningu Orkuseturs Orkusetur veitir EGO sjálfsafgreiðslustöðvunum viðurkenningu fyrir lofsvert frumkvæði að því að draga úr eldsneytisnotkun. Framlag EGO felst í því að bjóða ökumönnum tölvustýrða mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum bifreiða á öllum EGO stöðvunum. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Faxaflóahafnir taka upp Vigor-kerfi Faxaflóahafnir og TM Software hafa undirritað samning um umfangsmikla innleiðingu á Vigor-viðskiptahugbúnaði hjá Faxaflóahöfnum. Með nýja búnaðinum á að bæta verkefnastýringu og upplýsingavinnslu Faxaflóahafna, auk þess sem fjarvinnslumöguleikar kerfisins eiga að einfalda starfsmönnum að vinna með viðskiptagögn óháð því hvar þeir eru staddir. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Ekki tekinn alvarlega Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis banka og formaður nýrra samtaka fjármálafyrirtækja, segir stofnun sameinaðra samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og tryggingafyrirtækja hafa verið til umræðu allt frá árinu 2000. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Kynna íslenskt fjármálalíf erlendis Íslenskur fjármálamarkaður hefur vaxið hraðar en aðrar atvinnugreinar. Eitt af hlutverkum nýrra samtaka fjármálafyrirtækja verður að kynna íslenskt efnahagslíf á erlendum vettvangi. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Samruni Kauphallarinnar við OMX styrkir íslensk fyrirtæki Jukka Ruuska, forstjóri kauphallarsamstæðunnar OMX, segir samruna Kauphallar Íslands við OMX koma íslenskum fyrirtækjum til góða og efla þau ef eitthvað er. Ruuska segir í viðtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson að allar áhyggjur séu ástæðulausar. Íslensk fyrirtæki eigi síður en svo á hættu að verða tekin yfir af erlendum aðilum, að hans mati. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Stjörnum prýdd ráðstefna Í síðustu viku stóð ráðgjafarfyrirtækið Nordic eMarketing fyrir mikilli ráðstefnu og sýningu þar sem fjallað var um markaðssetningu og samskipti á netinu. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Stóri Brandur næsta máltíð Sá leiði fylgikvilli fylgir því þegar maður tekur vel til matar síns af góðum mat að þá verður maður saddur. Það er leiðinlegt. Kosturinn við fjárfestingar og hagnað af þeim er hins vegar sá að maður verður aldrei saddur. Svona svipað því að vera grænmetisæta. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Ölvaður engill Extrablaðið danska hefur farið mikinn í sérkennilegri greiningu á íslensku viðskiptalífi. Umfjöllun blaðsins er reyndar með eindæmum þunn og ómerkileg, en getur skaðað þá sem fyrir henni verða. Ritstjóri Extrablaðsins heitir Hans Engell og er fyrrverandi formaður danskra íhaldsmanna. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Erfitt að spá um fortíðina Á fundi Viðskiptaráðs um stjórn peningamála var mikill samhljómur meðal hagfræðinga á staðnum. Meiri en oft áður, en eitt einkenna þessarar ágætu fræðigreinar er að þar geta menn tekist á um ótal atriði á sinn kurteisa akademíska hátt. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Promens hækkar boðið Promens, dótturfélag Atorku, hækkaði í gær tilboð sitt í plastframleiðslufyrirtækið Polimoon, í kjölfar þess að Plast Holding A/S tilkynnti um hækkun síns tilboð til jöfnunar tilboði Promens. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Hin skapandi fjórða stoð hagkerfisins Fræðimenn boða byltingu í atvinnuháttum og vilja bæta fjórðu stoðinni við það sem verið hefur þrískipting hagkerfisins undanfarin 250 ár: Frumframleiðsla, iðnaður, þjónusta og - skapandi atvinnuvegir. Hverju þarf að breyta til þess að Íslendingar verði vel í stakk búnir til að takast á við byltinguna? Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Kauphöll yfir væntingum Þýska kauphöllin í Frankfurt skilaði 175,1 milljón evra í hagnað á þriðja ársfjórðungi. Þetta svarar til 15,1 milljarðs íslenskra króna sem er 58 prósentum meira en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti innlent 8.11.2006 00:01
Marel tapaði 61 milljón króna Marel skilaði 674.000 evra tapi á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til 61 milljónar krónu taps samanborið við 1,2 milljóna evru eða ríflega 104 milljóna króna tapreksturs á sama tíma fyrir ári. Viðskipti innlent 7.11.2006 15:16
Mælir með kaupum á bréfum Mosaic Fashions Greiningardeild Kaupþings banka hefur gefið út verðmat á Mosaic Fashions. Í verðmatinu segir að deildin telji vaxtarmöguleika Mosaic felast fyrst og fremst í opnun nýrra verslana utan Bretlands, sérstaklega á mörkuðum sem hafi reynst félaginu vel. Mælir deildin með kaupum á bréfum Mosaic Fashions. Viðskipti innlent 6.11.2006 16:57
Landsbankinn spáir 7,2 prósenta verðbólgu Greiningardeild Landsbankans segja í endurskoðaðri verðbólguspá fyrir nóvember að verðhjöðnun verði upp á 0,1 prósent á milli mánaða, sem er lækkun frá óbreyttri vísitölu í fyrri. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga nema 7,2 prósentum. Viðskipti innlent 6.11.2006 16:43
Methagnaður hjá SPRON Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) skilaði 9,8 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaðurinn nú er orðinn meiri en SPRON skilaði á öllu síðasta ári. Viðskipti innlent 6.11.2006 16:12
Kaupþing eykur hlutafé bankans Kaupþing banki ætlar að bjóða út nýja hluti í bankanum sem nemur allt að 10 prósentum af heildarhlutafé í bankanum. Sótt verður um skráningu á nýju hlutunum, sem gefnir verða út í tengslum við útboðið, á aðallista Kauphallar Íslands og á O-lista Kauphallarinnar í Stokkhólmi. Viðskipti innlent 6.11.2006 09:42
Lætur af stjórnarformennsku FME Stefán Svavarsson lætur af stjórnarformennsku Fjármálaeftirlitsins um áramót þegar skipunartími hans rennur út. Viðskipti innlent 4.11.2006 07:30
Mælt með kaupum í Bakkavör Greiningardeild Landsbankans mælir með kaupum á bréfum Bakkavarar og að fjárfestar yfirvogi þau í eignasafni sínu sem taki mið af íslenska hlutabréfamarkaðnum. Viðskipti innlent 4.11.2006 07:15
Ákvörðun áfrýjað Osta og smjörsalan hefur áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkepppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því 13. október síðast liðinn. Þar var kveðið á um að Osta- og smjörsalan hefði brotið gegn samkeppnislögum með því að mismuna viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í samskonar viðskiptum með undanrennuduft. Viðskipti innlent 4.11.2006 06:45
Stjórn bíður átekta Stjórn plastframleiðslufyrirtækisins Polimoon ASA getur ekki mælt með því að hluthafar samþykki yfirtökutilboð frá Plast Holding A/S. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í kjölfar þess að Promens, dótturfélag Atorku, lýsti því yfir að það hygðist gera yfirtökutilboð um kaup á öllu hlutafé fyrirtækisins. Viðskipti innlent 4.11.2006 06:45