Lífið
Hátíðarkvöldverður kokkanna Hinn árlegi Hátíðarkvöldverður klúbbsins fer fram laugardagskvöldið næstkomandi í Turninum í Kópavogi. Kvöldverðurinn hefur verið haldinn óslitinn síðastliðin tuttugu og þrjú ár og er gríðarlega vinsæll viðburður ár hvert. Steinn Óskar Sigurðsson, formaður nefndar um Hátíðarkvöldverðinn, segir að uppselt sé á kvöldverðinn, en seldir eru 220 miðar og hafa fastagestir forgang í þeim efnum. Lífið 7.1.2010 04:00
Erfingi lést Johnson & Johnson-erfinginn Casey Johnson fannst látin í íbúð sinni í Los Angeles í gær. Johnson var aðeins þrítug að aldri og hafði verið látin í einhvern tíma þegar hún fannst. Stúlkan var æskuvinkona Hilton-systranna og var einnig góð vinkona Nicole Richie en náði aldrei sömu frægð og vinkonur hennar. Johnson átti í sambandi við Courtenay Semel, dóttur forstjóra Yahoo, en Semel var á tíma orðuð við leikkonuna Lindsay Lohan. Johnson skilur eftir sig eina dóttur, Ava Marylin, sem hún ættleiddi árið 2007 frá Kasakstan. Foreldrar Johnson hafa nú umsjá með barninu. Lífið 7.1.2010 04:00
Úr útrás í heilsuráðgjöf „Ég hef alltaf haft áhuga á góðu og heilbrigðu lífi. Þrátt fyrir að vera í bisness þá hef ég reynt að passa að vera í ágætisformi og hugsa um hvað ég borða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir. Lífið 7.1.2010 04:00
Áramótagleði Akureyringa - myndir Meðfylgjandi má sjá myndir frá áramótaballi Páls Óskars í Sjallanum á Akureyri á gamlárskvöld en það var gjörsamlega stappað eins og alltaf þegar Palli kemur norður. Þá má einnig sjá myndir sem teknar voru nýársdansleik Sjallans en það hefur ekki verið haldinn nýársdansleikur áður á Akureyri. Þá spiluðu Hvanndalsbræður í fyrsta og síðasta sinn á balli, en þeir héldu dansgólfinu hreinlega í logandi stuði ásamt N3 plötusnúðunum. Lífið 6.1.2010 14:00
Frumsýna nýtt leikrit í Norræna húsinu Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýnir nýtt verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja föstudaginn 8. janúar í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Lífið 6.1.2010 10:30
Dillibossar á Borginni á nýárs- myndir „Það var gríðarlegt stuð, skemmtilegasta fólkið, skemmtilegustu skemmtikraftarnir og svo bara klikkar maturinn og salurinn á Hótel Borg ekki," svarar Andrés Pétur einn af skipuleggjendum nýársfagnaðarins sem haldinn var á Borginni spurður hvernig var. „Stemningin var slík að gestirnir voru farnir að dilla sér við borðin fyrir klukkan tíu. Ekki hægt að fara fram á betri byrjun á árinu," bætir hann við. Á meðfylgjandi myndum má greinilega sjá að liðinu leiddist ekki. Lífið 6.1.2010 08:45
G-bletturinn er til Niðurstaða rannsóknar vísindamanna í King‘s College í London á hinum dularfulla G-bletti hefur vakið mikla athygli. Ekki eru allir á eitt sáttir við hana. Lífið 6.1.2010 07:15
Fjölskyldan sátt án sjónvarps „Þetta er alltaf gaman. Mér skilst að þetta sé býsna vinsælt sjónvarpsefni,“ segir Þorsteinn Bergsson, bóndi á Unaósi á Fljótsdalshéraði. Hann keppir í annarri umferð í spurningakeppninni Útsvari í Sjónvarpinu á föstudagskvöld ásamt liðsfélögum sínum Ingunni Snædal og Stefáni Boga Sveinssyni. Lífið 6.1.2010 06:30
Danir elska og hata Tryggðarpant Auðar „Bókin er skrifuð í Danmörku og er innblásin af umræðunni þar. Danir eru svo klofin þjóð, þar er allt annaðhvort eða,“ segir Auður Jónsdóttir en bók hennar Tryggðarpantur eða Depositum, eins og hún heitir á dönsku, kom nýverið út í Danmörku. Lífið 6.1.2010 06:00
Emilíana tengir upp á nýtt Tónleikaferð Emilíönu Torrini um heiminn heldur áfram á fullum dampi. Þessa dagana er hún í Ástralíu og spilar í Brisbane í kvöld. Í gærkvöldi lék hún á hinum fornfræga tónleikastað The Enmore í Sydney. Íslendingar eru með í för, Sigtryggur Baldursson, Pétur Hallgrímsson gítarleikari og Lay Low, sem spilar á bassa með Emilíönu og hitar auk þess upp. Tónleikarnir hafa gengið vel, allstaðar troðfullt og fólk syngur með í lögunum. Lífið 6.1.2010 05:30
Væmið ljóðaslamm í febrúar Þriðja ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið föstudaginn 12. febrúar í aðalsafninu í Tryggvagötu. Að þessu sinni er þemað „væmni“, sem ætti að bjóða upp á fjölbreyttar hugleiðingar – fjarri kreppu og barlómi. Sem fyrr er ljóðaslammið ætlað ungu fólki og er skilgreint á afar opinn hátt sem eins konar ljóðagjörningur. Áherslan er ekki síður lögð á flutninginn en á ljóðið sjálft. Eina krafan er að flutt sé frumsamið ljóð eða stuttur prósi og hafa þátttakendur sýnt dansverk, ör-leikþætti, rapp, söng og leiklesin ljóð með myndefni svo eitthvað sé nefnt. Hefðbundinn ljóðaupplestur telst ekki vera ljóðaslamm. Lífið 6.1.2010 04:30
Hinn árlegi Jólasveinagjörningur Listamennirnir Ásmundur Ásmundsson og Ragnar Kjartansson standa fyrir sínum árlega Jólasveinagjörningi á þrettándanum í Kling og Bang gallerí kl. 17.30 í dag. Þeir hafa staðið fyrir sams konar gjörningum á hverju ári síðustu átta árin. Þeir koma gestum verulega á óvart með hressilegu jólaskensi og hver veit nema Bjúgnakrækir og Kertasníkir kíki í heimsókn. Fólk er hvatt til að taka börnin sín með og gleyma ekki jólaskapinu heima. Í dag er jú síðasti séns til að eiga góða jólastund. Lífið 6.1.2010 04:00
Sigga spákona: Það lenda margir illa í því - myndband „Mér líst svo vel á þetta ár," sagði Sigríður Klingenberg spákona þegar hún kíkti í kristalkúluna sína í sjónvarpsþættinum Ísland í dag í gær. „Nú getum við flutt út hægri vinstri. Það verður mikill usli í stjórnmálunum og það eru ekki öll kurl komin til grafar." „Það lenda margir illa í því og því er mikilvægt að brosa og setja ást í augun til fólks og gefa faðmlag," sagði Sigríður meðal annars. Lífið 5.1.2010 16:00
Nýársfagnaður á Borginni - myndband Glys og glamúr var ríkjandi á Hótel Borg á fagnaði sem haldinn var á nýársdag. „Já það var svo mikið 2007 að mæta hérna og ég hef bara haldið því áfram. Það sem er skemmtilegt er að þetta er mikið sama fólkið og maður þekkir langflesta," sagði Sveinn Andri Sveinsson sem sjá má meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði sem birtist í Ísland í dag. Lífið 5.1.2010 15:00
Gleðigjafi Bylgjunnar - myndir Morgunþátturinn í Bítið stendur nú í þriðja sinn fyrir vali á Gleðigjafa ársins 2009. Lífið 5.1.2010 11:30
Ekki datt stelpugreyið á dansgólfið? - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá ATG's Do-One, sem er einn heitasti raftónlistarhópurinn í London um þessar mundir sem trónir þar á toppi klúbbasenunnar, á skemmtistaðnum Nasa 2. janúar stíðastliðinn. Lífið 5.1.2010 10:45
Áramótadjamm í Reykjavíkurborg - myndir Eins og meðfylgjandi myndir, sem teknar voru í borginni um áramótin, fagnaði unga fólkið nýju ári meðal annars á skemmtistöðunum Broadway og Austur. Það fer ekkert á milli mála að fólkið skemmtir sér. LJósmyndarinn Sveinbi hjá superman.is tók myndirnar. Lífið 5.1.2010 08:15
60% veðja á að Óli skrifi undir „Það er óhætt að segja að veðmálið hafi vakið mikla athygli. Um hundrað manns tóku þátt á tveimur dögum,“ segir Lárus Páll Ólafsson, sem sér um markaðsmál fyrir Betsson-vefspilavítið á Íslandi. Lífið 5.1.2010 06:45
Geir Ólafs gefur út óperuplötu „Það er fyrst og fremst mikill heiður að fá að vinna með svona mönnum eins og Kristjáni Jóhannsyni,“ segir Geir Ólafsson. Hann hyggst gefa út óperuplötu um næstu jól og upptökustjóri verður sjálfur Kristján Jóhannsson, einn fremsti tenór landsins og þótt víðar væri leitað. Lífið 5.1.2010 06:00
Sigmundur Ernir var leikinn af Ljótum hálfvita „Ég fattaði ekki hversu vel ég náði honum fyrr en ég sá prufuefni. Þá brá mér allsvakalega!,“ segir Hannes Óli Ágústsson, sem fór á kostum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Skaupinu. Sjálfur sagði Sigmundur Davíð í viðtali að það væri skrítið að feitasti leikarinn léki hann alltaf. Lífið 5.1.2010 06:00
Nokkur stórafmæli í kortunum Ef að líkum lætur verður árið viðburðaríkt, enda er þetta afmælisár fyrir marga. Til dæmis verður Páll Óskar fertugur, fjörutíu ár sömuleiðis verða síðan Stuðmenn komu fram í fyrsta skipti og fjörutíu ár verða síðan Listahátíð í Reykjavík var haldin fyrst. Þá verða þrjátíu ár liðin síðan Bubbi Morthens sló í gegn því bæði Ísbjarnarblús og Geislavirkir Utangarðsmanna komu út 1980. En á að halda upp á þetta? Lífið 5.1.2010 05:30
Besta erlenda platan 2009 Þegar Fréttablaðið leitaði til valinna sérfræðinga til að velja bestu erlendu plötur ársins 2009 kom í ljós að lítill samhljómur var meðal sérfræðinganna. Besta platan kom frá bandarísku borginni Baltimore. Tónlist 5.1.2010 04:15
Jól í Jemen og áramót við bakka nílarfljóts „Það eru engin jól í íslamska lýðveldinu Jemen! Ekki frekar en Eid-hátíðir á Íslandi. Aðfangadagur var eins og hver annar fimmtudagur,“ segir ljósmyndarinn Egill Bjarnason. Lífið 4.1.2010 04:30
Handritsstyrkur vegna Davíðs Baldvin Kári Sveinbjörnsson, hefur fengið handritsstyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands vegna kvikmyndar í fullri lengd sem ber heitið Davíð. „Þetta er eiginlega uppvaxtarsaga fimmtán ára unglingsstráks sem heitir Davíð og er að takast á við kynhneigð sína,“ segir Baldvin Kári, sem steig sín fyrstu spor í kvikmyndagerð í sjónvarpsþáttunum Hjartsláttur á Skjá einum. Núna stundar hann nám í leikstjórn og handritagerð í Columbia-háskólanum í New York. Þar hefur hann lokið þremur árum og býst við að klára tvö til viðbótar. „Þetta hefur gengið vel. Fyrstu tvö árin var ég í mjög stífu prógrammi með mikilli vinnu en núna hefur maður meiri frjálsan tíma í að vinna sjálfstætt að verkefnum.“ Lífið 4.1.2010 04:00
Ronnie drekkur Samkvæmt News of the World er Ronnie Wood á góðri leið með að drekka sig í hel. Og hafa vinir og vandamenn miklar áhyggjur af honum, þá sérstaklega fyrrum eiginkona hans, Jo Wood og börnin þeirra tvö. News of the World heldur því fram að liðsmaður The Rolling Stones drekki tvær flöskur af vodka á hverjum degi og hann sé að rústa eigin lífi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum skildi Ronnie við eiginkonu sína og tók saman við rússnesku fyrirsætuna Ekaterinu. Því sambandi lauk með miklum látum þegar fyrirsætan unga kærði Ronnie fyrir heimilisofbeldi. News of the World hefur eftir henni að hún hafi hreinlega óttast um líf sitt og að hún hafi verið svo óhamingjusöm að hún hafi íhugað sjálfsmorð. Lífið 4.1.2010 03:30
Ástaróður til eiginmannsins „Þetta er samið til hans. Maður er svo rómantískur,“ segir söngkonan Kolbrún Eva Viktorsdóttir sem tekur þátt í Eurovison í fyrsta sinn níunda janúar. Lagið sem hún syngur nefnist You Are The One, eða Þú ert sá eini rétti, og fjallar um eiginmann hennar og lagahöfundinn Harald Gunnar Ásmundsson. Saman mynda þau hljómsveitina Myst sem gaf út sína fyrstu plötu fyrir fjórum árum. Lífið 4.1.2010 03:00
Kvikmyndatónlist fylgir frelsi Gunnlaug Þorvaldsdóttir samdi tónlistina fyrir stuttmyndina A‘mare sem var meðal annars sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar síðastliðinn. Myndin er í leikstjórn Martina Amati og fjallar um tvo drengi sem fara á haf út og ætla sér að veiða „þann stóra“. Lífið 4.1.2010 02:30
Opnaði nýja heilsuræktarstöð Líkamsræktarþjálfarinn Sigríður Halldóra Matthíasdóttir, betur þekkt sem Sigga Dóra, hefur opnað nýja heilsumiðstöð að Stórhöfða 17 í Reykjavík. Opið hús er hjá Heilsumiðstöðinni til klukkan sex í dag og eru allir velkomnir. Gestum mun m.a. gefast kostur á að smakka á heilsudrykkjum og fara í ókeypis brennslumælingu. Lífið 3.1.2010 14:46
Besta plata ársins valin: Terminal best Önnur plata hljómsveitarinnar Hjaltalín er besta plata ársins samkvæmt niðurstöðum tuttugu manna dómnefndar úr bransanum sem Fréttablaðið fékk til að leggja mat á íslenskar plötur ársins. Fjórða plata Hjálma, IV, fylgdi fast á hæla Hjaltalín, en nokkru neðar komu plötur Kimono, Blood group og Dikta. Lífið 2.1.2010 06:00
Hannaði skyrtuskraut sem kreppulausn Tanja Sif Árnadóttir hannar skyrtuskraut fyrir herra og konur undir heitinu tANJA fOREVER. Skrautið er fáanlegt í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Lífið 2.1.2010 05:00