Lífið

Kelly óttast krabbamein

Raunveruleikastjarnan Kelly Osbourne, dóttir rokkarans Ozzy, óttast mjög að greinast með krabbamein. Átta ár eru liðin síðan móðir hennar Sharon greindist með ristilkrabbamein. „Ég er sannfærð um að ég fái krabbamein,“ sagði hin 26 ára Kelly í sjónvarpsviðtali.

Lífið

Clooney verðlaunaður

Hjartaknúsarinn George Clooney var fyrir skömmu heiðraður í hátíðlegu kvöldverðarboði í New York fyrir mannúðarstarf sitt. Verðlaunin nefnast Ripple of Hope og eru veitt af mannréttindasamtökum Roberts F. Kennedy.

Lífið

Gallerí Dunga

Gallerí Dunga á Geirsgötu 5a er listagallerí sem selur verk aðeins eftir íslenskar listakonur. Við kíktum í heimsókn þar sem eigendurnir Ingibjörg Klemenz og Dunna sýndu okkur galleríið.

Tíska og hönnun

Borat, Brüno ... geitahirðir

Larry Charles, maðurinn sem stýrði bæði Borat og Bruno, hefur ákveðið að leikstýra Sacha Baron Cohen í þriðja sinn. Myndin fjallar um geitahirði og einræðisherra sem týnast í Bandaríkjunum, eins furðulegt og það kann að hljóma.

Lífið

Butler endurreisir harðhausaferilinn

Gerard Butler sló eftirminnilega í gegn sem spartverski konungurinn Leonidas þegar hann barðist ásamt örfáum liðsmönnum sínum við fullmannaðan her Persa í myndinni 300. Eftir það breytti hann um stefnu, talaði inn á teiknimynd og lék í rómantískum gaman/hasarmyndum, meðal annars á móti Jennifer Aniston.

Lífið

Gagnrýnir Pavement-liða

Billy Corgan, forsprakki Smashing Pumpkins, hefur skotið föstum skotum að hljómsveitinni Pavement. Corgan hefur haft horn í síðu Pavement-liða eftir að þeir gerðu grín að Pumpkins í laginu Range Life sem kom út 1994, eða fyrir sextán árum.

Lífið

Geimverur til Hollywood

Hátt í fimmtán myndir um geimverur af öllum stærðum og gerðum verða frumsýndar næstu árin. Ein þeirra, Skyline, kemur hingað til lands um helgina.

Lífið

Mynd Reese kippt til baka vegna blótsyrða

Aðstandendur kvikmyndarinnar How Do You Know með Reese Witherspoon í aðalhlutverkinu eru í miklum vandræðum eftir að kvikmyndaeftirlit Bandaríkjanna setti þeim skilyrði; annað hvort yrði myndin klippt eða hún yrði bönnuð.

Lífið

Netið er margslungið

Freyr Gígja Gunnarsson hringdi til New York og heyrði í þrímenningunum á bak við myndina Catfish. Nev Schulman er umfjöllunarefnið í heimildarmyndinni og bróðir hans, Ariels Schulman og vinurinn Henry Joost leikstýra. Myndin hefur vakið mikla athygli og er sýnd á heimildarmynda­hátíð Græna ljóssins.

Lífið

The Killers gefa út nýtt jólalag

Las Vegas rokkararnir í The Killers ætla að gefa út jólasmáskífu í heimalandi sínu eins og undanfarin ár. Lagið nefnist Boots og kemur út 30. nóvember. Sveitin byrjaði að gefa út jólasmáskífur árið 2006 og hefur haldið í hefðina allar götur síðan.

Lífið

Umdeildi hrokagikkurinn Kanye

Rapparinn umdeildi Kanye West gefur út sína fimmtu plötu eftir helgi. Gripurinn nefnist My Beautiful Dark Twisted Fantasy og á meðal gesta eru Bon Iver, Jay-Z, Rihanna og John Legend.

Lífið

Wolverine verður dökk og raunsæ

Darren Aronofsky hefur fullvissað alla aðdáendur Wolverine um að næsta mynd um þennan skæða stökkbreyti verði ekki gleðilegt framhald af X-Men Origins: Wolverine.

Lífið

Flott frumraun

Hljómsveitin Valdimar bætist í hóp þeirra sem spila lágstemmda tónlist með reggí/djass-ívafi.

Gagnrýni

Vilt þú ókeypis ferð til London

Símtölunum rignir inn á útvarpsstöðinni X-977 þessa dagana, enda hófst þar á mánudaginn Kings Of Leon-leikur þar sem verðlaunin eru lúxusferð til London á tónleika með sveitinni.

Lífið

Ryan Reynolds er kynþokkafyllstur

Eiginmaður Scarlett Johansson, kanadíski leikarinn Ryan Reynolds, hefur verið kjörinn kynþokkafyllsti maður heims af tímaritinu People. Reynolds er 34 ára.

Lífið

Lilja stýrir netþáttum um fegurðardrottningar

Fyrirsætan Lilja Ingibjargardóttir stýrir vikulegum netþáttum um Ungfrú Ísland sem fara í loftið á vefsíðu keppninnar og á Facebook. Lilja ætlar að ferðast um landið og spjalla við stúlkurnar sem taka þátt ásamt því að fylgjast náið með keppninni Ungfrú Reykjavík.

Lífið

Hafnaði Playboy

Söngkonan Rihanna hefur upplýst að hún hafi hafnað því að sitja fyrir nakin í tímaritinu Playboy.

Lífið

Gestur fundaði með Adam Sandler í Hollywood

„Þetta er allt mjög venjulegt fólk, það er að segja venjulegt fólk í mínum augum,“ segir Gestur Valur Svansson kvikmyndagerðarmaður. Gestur Valur átti fund með Adam Sandler í höfuðstöðvum framleiðslufyrirtækis hans, Happy Madison, ásamt Klovn-stjörnunni Casper Christiansen í Culver City fyrir skemmstu.

Lífið

Feldberg samdi við breskan útgefanda

Poppdúettinn Feldberg hefur gert samning við breska fyrirtækið Small Town America um útgáfu á plötu sinni Don"t Be a Stranger þar í landi á næsta ári. Sveitin fer einnig í tónleikaferð um landið til að fylgja plötunni eftir.

Lífið

Leynd hvílir yfir Skaupinu: Álftanes tekið fyrir

„Við byrjuðum á mánudaginn og erum hérna úti á Álftanesi," segir Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaups Sjónvarpsins. Tökur á þessum vinsælasta sjónvarpslið ársins hófust í vikunni og það var hið skuldum hlaðna sveitarfélag Álftanes sem fékk þann vafasama heiður að vera heimsótt fyrst en það hefur verið töluvert í fréttum vegna bágrar fjárhagsstöðu. Gunnar vildi hins vegar ekkert gefa upp um hvar þeir væru nákvæmlega staddir enda hvílir mikil leynd yfir gerð Skaupsins líkt og í fyrra.

Lífið

André skrifaði á Fésbókarsíðu Jóns Gnarr

„Okkur brá þegar við sáum þetta,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra. André Bachmann sagðist í Fréttablaðinu í gær hafa beðið í fimm vikur eftir svari frá borgarstjóra um hvort hann vildi verða sérstakur gestur á jólahátíð hans 8. desember. Í stað hans fékk André forsetahjónin til að hlaupa í skarðið fyrir hann.

Lífið

Aðþrengd eiginkona að skilja

Leikkonan Eva Longoria, 35 ára, eiginmaður hennar, Tony Parker, 28 ára, eru að skilja ef marka má Us Weekly tímaritið. Umrætt tímarit heldur því fram að Tony hafi verið ótrúr Evu. Hjarta Evu er mölbrotið eftir framhjáhaldið, stendur skrifað í Us Weekly.

Lífið

Frelsari úr föðurkviði

Áhugahópur atvinnuleikara er með mjög áhugaverða sýningu í Hugvísindahúsi Háskólans á Grandagarði 16. Hún var svolítið hæg í byrjun en þess betri þegar líða tók á verkið.

Gagnrýni

Sendiherra stefnt á hvíta tjaldið

„Mér líst mjög vel á þetta og það sem Ingvar Þórðar­son ætlar sér, það gerist,“ segir rithöfundur­inn Bragi Ólafsson. Kvikmyndafélag Íslands hefur keypt kvikmyndaréttinn á skáldsögunni Sendiherranum og er fyrsta uppkast að handritinu eftir Jónas Knútsson tilbúið. Bragi kveðst vongóður um að bókin verði að kvikmynd. Íslenskir kvikmyndagerðar­menn hafa reynt við aðrar bækur rithöfundarins, svo sem Hvíldardaga, fyrstu skáldsögu Braga, og Gæludýrin en Óskar Jónasson hugðist gera klukkustundarlanga sjónvarpsmynd eftir þeirri bók.

Lífið