Lífið

Yfirlýsing frá Hurts: Áhorfendur björguðu tónleikunum - Viva Ísland

Rafmagnið fór tvívegis af hljóðkerfinu í Vodafone-höllinni þegar breska hljómsveitin Hurts hélt þar tónleika á sunnudagskvöld. Einhverjir í hljómsveitinni voru frekar fúlir eftir atvikið en tóku þó gleði sína á ný eftir tónleikana þegar eftirpartí var haldið þeim til heiðurs á skemmtistaðnum Austur.

Lífið

Ekki er þetta sleikur Charlie Sheen?

Leikarinn Charlie Sheen mætti öllum að óvörum í spjallþátt Jimmy Kimmel í gærkvöldi á sjónvarpsstöðinni Abc. Leikarinn kyssti þáttastjórnandann eftirminnilega eins og sjá má í myndskeiðinu. Nýjustu fregnir úr Hollywood herma að Charlie verði mögulega endurráðinn í sjónvarpsþáttinn vinsæla Two and a Half Men. Gustað hefur um stjörnuna síðustu vikur eftir að hann hellti sér yfir framleiðendur þáttanna.

Lífið

Spákonur í beinni

"Okkur langar að vita hvað er til í þessu og hvernig þær fara að þessu, hvernig miðlar sjá framtíðina og fleira í þeim dúr. Hafa ekki flestar stelpur og konur farið til miðils eða spákonu? Þá ekki síst þegar þær hætta með kærastanum, segir Björk Eiðsdóttir annar þáttastjórnenda Dyngjunnar á Skjá einum. "Við ætlum að spyrja hvað má ekki segja og hvort það sé ekki hættulegt að við förum að lifa eftir þessu." Verður spáð í beinni útsendingu í kvöld? "Ég ætla að spyrja Guðrúnu hvort hún finni fyrir einhverju í salnum eða í kringum okkur," segir Björk spennt. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá brot úr þáttunum.

Lífið

Charlie Sheen er lítið barn

Charlie Sheen er vafalítið aðalstjarnan það sem af er þessa árs en sífellt fleiri efast um geðheilbrigði leikarans. Bæði bróðir og faðir leikarans tjáðu sig um ástandið á honum um helgina.

Lífið

Batman-hópurinn klár

Þriðja myndin í Leðurblökumanns-flokki Christopher Nolan er beðið með mikilli eftirvæntingu enda sló Dark Knight eftirminnilega í gegn fyrir tveimur árum. Fyrrum barnastjarna verður í hlutverk aðalskúrksins.

Lífið

Ný ástkona Tiger

Tiger Woods, kylfingurinn kvensami, er kominn með nýja stúlku uppá arminn. Sú „heppna“ heitir Alyse Lahti Johnson og er 22 ára stjúpdóttir framkvæmdarstjóra umboðskrifstofu Tiger. Sambandið kom í ljós þegar Elin Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger, keypti sér villu við hlið Tiger í Flórída fyrir skemmstu.

Lífið

Á toppnum á tveimur stöðum

„Maður vonaði alltaf að það kæmi fólk að sjá myndina en ég bjóst ekki við að þetta gengi svona vel strax,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Okkar eigin Osló.

Lífið

Orlando vill ögrandi hlutverk

Orlando Bloom finnst skemmtilegast að leika persónur sem ögra honum sem leikara. "Ef handritið er mjög gott, persónan vel skrifuð og fólkið sem kemur nálægt myndinni áhugavert þá tek ég að mér hlutverkið,“ sagði Bloom.

Lífið

Foo Fighters vilja ekki vera í Glee

Tónlistarmaðurinn Dave Grohl er lítið hrifinn af sjónvarpsþáttunum Glee og mun sjálfur ekki gefa leyfir fyrir því að lög með hljómsveit hans, Foo Fighters, verði flutt í þáttunum.

Lífið

Opnar vefsíðu fyrir hármódel

Anna Sigríður Pálsdóttir hárhönnuður hefur komið á laggirnar fyrstu íslensku vefsíðunni þar sem hárgreiðslufólk getur á auðveldan og fljótlegan hátt fundið fyrirsætur fyrir ýmis verkefni. „Hugmyndin að síðunni kom til þegar ég var að vinna að eigin hárlínu í fyrra og ein fyrirsætan forfallaðist á síðustu stundu. Það er ekkert hlaupið að því að finna nýja fyrirsætu með svipað hár með engum fyrirvara og ég fór að spá í því af hverju það væri ekki til síða sem þessi til að auðvelda manni lífið og spara tíma og fyrirhöfn," útskýrir Anna Sigríður, eða Anna Sigga eins og hún er oftast kölluð.

Tíska og hönnun

Íslensk menning slær í gegn í París

Menningarhátíðinni Air d‘Islande lauk í París í gær. Lay Low, Hjaltalín og Feldberg héldu tónleika á einum þekktasta tónleikastað Parísar, Flèche d‘Or, og voru gestir um 500 talsins. Að sögn skipuleggjenda fengu íslensku sveitirnar frábærar viðtökur og komust ekki allir að sem vildu.

Lífið

Bæ bæ baugar (nei þetta er ekki enn ein bótox fréttin)

Helga Emilsdóttir förðunarfræðingur hjá Bobbi Brown í Lyf og heilsu í Kringlunni sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig hægt er að afmá dökkar línur og bauga í kringum augun á auðveldan máta með hyljara frá snyrtivöruframleiðandanum La Mer. Veitið athygli hvernig fyrirsætan Marentza Poulsen lítur út í byrjun myndskeiðsins, þ.e. áður en Helga setur hyljarann í kringum augun hennar. Útkoman er vægast sagt frábær.

Lífið

Tölvunirðir heyja einvígi í skák og boxi

"Ég fer óhræddur í þennan bardaga,“ segir Björn Jónsson. Tveir starfsmenn í þrívíddarteymi tölvuleikjafyrirtækisins CCP, þeir Björn og Daníel Þórðarson, ætla að keppa í skákhnefaleikum í Laugardalshöll næstkomandi föstudag, 25. mars, á Fanfest-aðdáendahátíð tölvuleiksins EVE online. Hið áhugaverða er að Björn er með 2039 Elo-stig en hefur aldrei keppt í hnefaleikum en Daníel varð Íslandsmeistari í hnefaleikum árið 2009 en er aftur á móti með engin Elo-stig.

Lífið

Sendir spilara á stærsta pókermót heims

„Þetta er það stærsta sem hefur verið gert í pókernum hérlendis og jafnvel þótt víðar væri leitað,“ segir pókerkóngurinn Davíð Rúnarsson, Dabbi Rú, á Gullöldinni í Grafarvogi.

Lífið

Allir í stuði og svona

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is á tónleikum Dr Spock með Haffa Haff og Playboy-partýinu á veitingahúsinu Nasa um helgina. Eins og myndirnar sýna var gleðin alls ráðandi. Þá leiddist liðinu heldur ekki á veitingahúsunum Hressó og Hvíta Perlan.

Lífið

Framleiða kvikmynd

Breska hljómsveitin Coldplay tekur þátt í fjármögnun kvikmyndarinnar Ashes með Ray Winstone í aðalhlutverki. Um spennumynd er að ræða sem Mat Whitecross, sem hefur leikstýrt mörgum myndböndum fyrir Coldplay, mun leikstýra. Söngvarinn Chris Martin og félagar verða einnig titlaðir sem meðframleiðendur myndarinnar. Ekki hefur verið ákveðið hvenær ræman kemur út. Coldplay er þessa dagana að taka upp sína nýjustu plötu. Tvö ár eru liðin síðan sú síðasta, Viva la Vida or Death and All His Friends, kom út.

Lífið

Eigandinn fundinn

Í dag sótti Anna Helen, 9 mánaða hundinn sinn, Starsky, sem er af tegundinni Siberian Husky, en hann strauk af heimili sínu í Skerjafirði eldsnemma í morgun. Það var stuttu eftir að myndskeiðið af týndum Starsky birtist á Visi að Anna Helen sótti hann til fólksins sem fann hann á ráfi um Hliðarhverfi Reykjavíkur. Anna Helen vinnur nálægt Hlíðunum sem gæti verið ástæðan fyrir því að Starsky ráfaði þar um. Meðfylgjandi má sjá fagnaðarfundinn.

Lífið

Öskumyndband fær athygli

Tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Vigra hefur vakið athygli erlendis. Það var tekið upp við rætur Eyjafjallajökuls síðasta sumar.

Lífið

Hundur leitar eigandans - látið berast

Ungur Siberian Husky hundur sem sjá má í myndskeiðinu fannst í Hlíðarhverfi í Reykjavík fyrir tæpri stundu. Hann er ómerktur, með gula ól um hálsinn. Hann er óöruggur en greinilega vel upp alinn. Hann er í góðum höndum og það er búið að láta lögreglu vita. Vinsamlegast aðstoðið okkur að finna eiganda hundsins með því að láta myndskeiðið berast áfram. Hafið samband við fréttastofu stöðvar Stöðvar 2 og Visis í síma: 5125200.

Lífið

Sungið fyrir heimilislausa og svanga Íslendinga (já þú last rétt)

Tónleikar til styrktar Kaffistofu Samhjálpar, sem gefur svöngum Íslendingum mat, voru haldnir í Háskólabíó í gærkvöldi. Það var áberandi góð stemning á meðal listamannanna baksviðs, á sviðinu og á meðal áhorfenda út í sal eins og myndirnar sýna en allir voru staðráðnir í að legga sitt af mörkum til að hjálpa heimilislausum sem leita í miklum mæli til Kaffistofu Samhjálpar. Ellen Kristjáns og Pétur Hallgríms, Hjálmar, Sniglabandið, Fjallabræður, Ferlegheit, Siggi Kafteinn, Blússveit Þollýar, KK og UNG komu fram. Þrátt fyrir að Reykjavíkurborg styðji Samhjálp í húsaleigumálum og birgjar séu örlátir þá vantar fjármagn og þess vegna var ákveðið að efna til tónleikanna sem voru vel sóttir. Samsala.is (styrkarfélag Smahjálpar).

Lífið

Gaga tískugoð ársins

Mörgum kom að óvörum að Lady Gaga skyldi vera valin tískugoð ársins þegar Fatahönnunarráð Bandaríkjanna sendi út tilnefningar til fatahönnunarverðlaunanna þar í landi á miðvikudagskvöld.

Lífið

Fagnar tíu ára afmæli

Brettafélag Íslands fagnar tíu ára afmæli sínu í dag með mikilli hátíð. Frá klukkan 13 til 17 stendur félagið fyrir svokölluðu Jibb‘n skate. Þá er keppt á hjólabrettum á yfirbyggðum palli og svo á snjóbrettum þar sem notast er við handrið og rör. Þetta fer fram á Laugavegi 56, í Nikita-garðinum. Samhliða þessu mun Brettafélagið standa fyrir uppboði á munum sem velunnarar félagsins hafa gefið. Allur ágóði uppboðsins rennur óskiptur til Péturs Kristjáns Guðmundssonar, sem lamaðist fyrir neðan mitti þegar hann lenti í slysi í Austurríki 1. janúar og er í hjólastól. Um kvöldið verða afmælistónleikar Brettafélagsins á Dillon þar sem hljómsveitirnar Morgan Kane og Mighty Good Times koma fram.

Lífið

Dúett með Doom

Thom Yorke, söngvari Radiohead, er að vinna að nýrri plötu með bandaríska rapparanum Doom. „Við erum að vinna að nokkrum dúettum,“ sagði Doom. Þetta er á byrjunarstigi en við munum örugglega taka upp stóra plötu saman.“ Yorke er mikill aðdáandi rapparans og endurhljóðblandaði lag hans, Gazzillion Ear, fyrir tveimur árum. Yorke hefur unnið með fleirum að undanförnu því stutt er síðan hann tók upp smáskífulag með Four Tet og Burial. Skömmu áður tróð hann óvænt upp sem plötusnúður á klúbbi í Los Angeles. Nýjasta plata Radiohead, The King of Limbs, kom út í síðasta mánuði.

Lífið

Stern er ekki sama

Hinn umdeildi útvarpsmaður Howard Stern prýðir forsíðu næsta tölublaðs Rolling Stone og ræðir meðal annars um skilnað sinn og seinna hjónaband sitt. Hann talar einnig um hegðun leikarans Charlie Sheen sem hann sagðist heillaður af.

Lífið

Dæmir ekki aðra

Leikkonan Claire Danes sagði í nýlegu viðtali að fólk ætti að varast það að dæma aðra og þá sérstaklega konur sem kjósa að fara í lýtaaðgerðir.

Lífið

Umhverfis jörðina: Ferðaþreytan segir til sín í Pakistan

Sighvatur Bjarnason heldur áfram ferð sinni umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju. Hann er nú kominn yfir til Pakistan og fer meðal annars til borgarinnar Karachi sem hann segir þá brjáluðustu sem hann hefur komið til. Þá tekur við 30 klukkustunda rútuferð í gegnum Pakistan.

Lífið