Lífið

Íslensk menning slær í gegn í París

Menningarhátíðinni Air d'Islande lauk í París í gær. Lay Low, Hjaltalín og Feldberg héldu tónleika á einum þekktasta tónleikastað Parísar, Flèche d'Or, og voru gestir um 500 talsins.

Að sögn skipuleggjenda fengu íslensku sveitirnar frábærar viðtökur og komust ekki allir að sem vildu.

Hér fyrir ofan má sjá myndband af Hjaltalín á tónleikunum sem einn tónleikagesta setti á YouTube.

Högni í Hjaltalín söng af innlifun fyrir fimm hundruð tónleikagesti.
Rósa söngkona í Feldberg var í góðu stuði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.