Lífið

Orðaður við nýjan vestra

Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu, hefur verið orðaður við hlutverk í vestranum The Last Stand. Leikstjóri er Kim Ji-woon frá Suður-Kóreu og verður þetta fyrsta myndin sem hann tekur upp á ensku. Schwarzenegger er sagður hafa hlaupið í skarðið fyrir Liam Neeson sem skerfari í mexíkóskum landamærabæ og hefjast tökur í september. Schwarzenegger hefur lýst því yfir að hann vilji snúa aftur á hvíta tjaldið en vandræði hans í einkalífinu hafa tafið fyrir endurkomunni.

Lífið

Endurkoma Banderas

Spænski hjartaknúsarinn Antonio Banderas hefur bæst í leikarahóp myndarinnar He Loves Me. Síðustu ár hefur Banderas ekki verið áberandi á hvíta tjaldinu nema þá helst rödd hans en Banderas talar fyrir stígvélaða köttinn í teiknimyndunum um tröllið Shrek.

Lífið

Brangelina á leið upp að altarinu?

Getgátur eru um að leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie muni á næstunni ganga í hnapphelduna. Bandaríska slúðurritið American Magazine Us Weekly, segir að parið sé að undirbúa litla athöfn, fyrir nánustu fjölskyldu og vini í Correns í Frakklandi. Brad og Angelina höfðu áður sagt að þau myndu ekki gifta sig fyrr en hjónaband samkynhneigðra yrði leyft um gervöll Bandaríkin. En þegar hjónaband samkynhneigðra var svo leyft í New York á dögunum er talið að hugur þeirra hafi snúist.

Lífið

Semur við Senu

„Fyrsta breiðskífan á leiðinni, maður. Platan inniheldur öll lög sem hafa komið í þáttunum frá upphafi. Þetta eru 15 lög,“ segir grínistinn Steindi Jr. Steindi og Ágúst Bent, vopnabróðir hans, sömdu nýlega við Senu um útgáfu á breiðskífunni Án djóks – samt djók, sem er væntanleg í verslanir í næstu viku.

Lífið

Blóð frá Morðingjum

Hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér lagið Blóð sem er spaghettíkántrívestraslagari í anda KK og Ennio Morricone. Það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar og er það fáanlegt á Tonlist.is og Gogoyoko.com. Morðingjarnir hafa látið lítið fyrir sér fara síðan þeir sendu frá sér jólalagið Jólafeitabolla í fyrra. Morðingjarnir hafa á ferli sínum gefið út þrjár plötur þar sem pönkrokkið hefur verið í fyrirrúmi. Sú fyrsta hét Í götunni minni og kom út 2006, sú næsta hét Áfram Ísland og fyrir tveimur árum kom út Flóttinn mikli.

Lífið

Beyoncé á plötu West og Jay-z

Rappkóngarnir Jay-Z og Kanye West hafa unnið saman að plötu undanfarin misseri og nú er hún komin með útgáfudag: 2. ágúst. Platan heitir Watch the Throne og inniheldur 16 lög. Mikill gestagangur er á plötunni. Beyoncé Knowles syngur í laginu Lift Off, Frank Ocean kemur fram í tveimur lögum, Curtis Mayfield fær einnig að vera með ásamt Otis Redding, sem syngur í laginu Otis þrátt fyrir að hafa látist árið 1967.

Lífið

Ilmur festist inn í töfraskáp

Vísir frumsýnir á morgun nýja stiklu úr þriðju myndinni um Sveppa og ævintýri þeirra. Þetta er þriðja myndin í röðinni um þá félaga Sveppa, Villa og Góa sem þurfa að taka á honum stóra sínum þegar Ilmur vinkona Sveppa festist inni í töfraskáp. Upphefst mikið ævintýri þar sem fjölmargir töfraeiginleikar skápsins koma í ljós.

Lífið

Daniel Baldwin sækir um lögskilnað

Einn Baldwin bræðranna, Daníel Baldwin, hefur sótt um lögskilnað frá Joanne, eiginkonu sinni til fjögurra ára. Hann sótti um tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna í gær.

Lífið

Sönghópur í franskri bílaauglýsingu

Sönghópurinn Þrjár raddir & Beatur leikur og syngur í auglýsingu franska bílaframleiðandans Peugeot sem verður tekin upp hér á landi í þessari viku. „Það var franskur leikstjóri sem sá okkur á Youtube og bara varð að fá okkur í auglýsinguna. Hann lét það ekki standa í vegi fyrir sér að við ættum ekki heima á Íslandi lengur og sendi okkur heim með næstu vél,“ segir Bjartur „Beatur“ Guðjónsson taktkjaftur, en hópurinn er búsettur í Ósló.

Lífið

Orðrómur um að Bítlar komi saman

Líkur eru á að eftirlifandi meðlimir Bítlanna komi fram á opnunarhátíð Ólympíuleikanna sem fram fara í London á næsta ári. Paul McCartney hvorki neitar né staðfestir orðróm þess efnis.

Tónlist

Skálaði með Kate Moss

„Það var ótrúlegt ævintýri að skála með Kate Moss og ferðast með þyrlu um tónleikasvæðið rúmlega hálftíma seinna,“ segir ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson, um einstaka upplifun sína af tónlistarhátíðinni Glastonbury í júní.

Lífið

Beckham-hjónin skíra barnið

David og Victoria Beckham eignuðust dóttur á sunnudaginn, en stúlkan er fjórða barn þeirra hjóna. David og Victoria hafa ákveðið nafn á dömuna og verður hún skírð Harper Seven. „Ég er svo stoltur og spenntur að tilkynna fæðingu dóttur okkar, Harper Seven Beckham. Hún vó 3,4 kíló og fæddist kl. 7.55 í morgun, hér í Los Angeles," skrifaði David á Twitter-síðu sína.

Lífið

Búa til spilatorg í miðbænum

Listaháskólanemarnir Harpa Björnsdóttir, Guðrún Harðardóttir og Katrín Eyjólfsdóttir hleypa lífi í Bernhöftstorfuna, torgið fyrir neðan Lækjarbrekka, og bjóða landsmönnum að spila spil þar í sumar.

Lífið

Jóhanna Björg tekur við Nýju útliti Karls Berndsen

Jóhanna Björg Christensen sér um þáttinn Nýtt útlit næsta haust á Skjá einum. Jóhanna Björg er að taka sín fyrstu skref á skjánum en hún kvíðir því ekki að þurfa að feta í fótspor Karls Berndsen þó að hún viðurkenni að það sé enginn eins og hann.

Lífið

Kevin Smith kemur til Íslands

"Ég er búinn að vera aðdáandi lengi,“ segir Guðlaugur Hannesson sem skipuleggur sýningu með Hollywood-leikstjóranum Kevin Smith í Hörpunni í nóvember.

Lífið

Ridley Scott og félagar sprengja í Rangárþingi ytra

Breski leikstjórinn Ridley Scott hefur fengið leyfi til sprenginga frá 5. júlí til 1. ágúst við Dómadalsleið samkvæmt fundargerð hreppsnefndar Rangárþings ytra. Í fundargerðinni kemur jafnframt fram að aðeins verði sprengt þrjá daga innan þess tímaramma. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru sprengingarnar ekki stórar heldur eru einungis hugsaðar sjónrænt fyrir tökuvélarnar.

Lífið

Yngri systirin eftirsótt

Hin 13 ára gamla Elle Fanning er á góðri leið með verða eftirsóttasta andlit Hollywood en hún er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning.

Lífið

Pabbi í þriðja sinn

Leikarinn Ryan Phillippe er orðinn faðir í þriðja sinn. Fyrrum kærasta leikarans, fyrirsætan Alexis Knapp, fæddi litla stúlku í vikunni og hefur hún hlotið nafnið Kai.

Lífið

Stone skotin í Hendricks

Leikkonan Emma Stone viðurkenndi í nýlegu viðtali að henni þætti leikkonan Christina Hendricks mjög falleg kona. Stone, sem gert hefur garðinn frægan í gamanmyndum á borð við Superbad og The House Bunny sagði við blaðamann The Advocate að henni þætti Mad Men leikkonan vera ein sú fallegasta í bransanum í dag. „Allt við hana er fallegt, hún er akkúrat mín týpa.“

Lífið

Skilnaður í uppsiglingu hjá Russel og Katy

Vinir Russells Brand og Katy Perry óttast að hjónaband þeirra muni ekki verða langlíft. Sumir spá því að því verði lokið innan fjögurra mánaða.Miklar vinnutarnir hafa tekið sinn toll af hjónabandinu auk stöðugra sögusagna um daður Brands á tökustöðum.

Lífið

Hurts-greiðslan vinsæl á Íslandi

Hárgreiðslan sem Theo Hutchcraft, söngvari Hurts, skartar er sú vinsælasta meðal stráka á Íslandi. Þetta fullyrðir blaðamaður London Evening Standard í viðtali við söngvarann. Hutchcraft segist því ekki hafa neinar áhyggjur ef poppferillinn fari í vaskinn. „Ég get þá alltaf farið til Íslands og opnað hárgreiðslustofu,“ segir hann.

Lífið

Gwyneth borðar aldrei á McDonalds

Leikkonan Gwyneth Paltrow vakti athygli þegar hún sagðist heldur vilja reykja krakk en að borða ost úr spreybrúsa, en slíkan ost er hægt að kaupa víða í Bandaríkjunum.

Lífið