Lífið Frumleg afmælisgjöf Leikkonan Katherine Heigl fékk frumlega afmælisgjöf frá eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Josh Kelley, en hann fékk sér húðflúr til heiðurs henni og dóttur þeirra. Heigl lýsir því yfir á Twitter-síðu sinni að gjöfin sé sú rómantískasta sem hún hafi fengið, en húðflúrið er á handlegg Kelley með mynd af sameiginlegu stjörnumerki mæðgnanna og fæðingardögum þeirra. Lífið 26.11.2011 13:00 Finnst tískusýningar leiðinlegar Leikkonan Chloë Sevigny viðurkennir að hún hafi ekki mikinn áhuga á tísku og leiðist að fara á tískusýningar. Þessi ummæli Sevigny koma nokkuð á óvart þar sem leikkonan er þekkt fyrir fatastílinn og er gjarnan talin ein af helstu tískufyrirmyndum í heimi. Lífið 26.11.2011 12:00 Bluegrassið á líka heima á Íslandi Andi Suðurríkjanna hefur svifið yfir vötnum á tónleikum íslensku bluegrass-sveitarinnar Brother Grass undanfarið ár. Í dag kemur fyrsta plata sveitarinnar út, en hún kallast Didn‘t Leave Nobody But the Baby. Tónlist 26.11.2011 11:00 Barnabók Bergljótar "Mig langaði að gera bók sem fræðir börnin um íslensku húsdýrin og sýnir hversu mikilvæg þau eru fyrir samfélagið," segir Bergljót Arnalds, rithöfundur og söngkona, sem hélt útgáfuhóf í Iðnó í tilefni af útkomu barnabókarinnar Íslensku húsdýrin og Trölli. Bergljót og krakkar skelltu sér á hestbak og brugðu á leik eins og sjá má á myndunum. Lífið 26.11.2011 10:00 Dreymir um að fara á skíði Britney Spears segir að draumafríið sitt sé skíðaferð með sonum sínum og kærasta. Poppsöngkonan viðurkennir í viðtali við blaðið Stylist að hæfileikar hennar í brekkunum séu takmarkaðir en hún vilji gjarnan læra. „Það væri yndislegt að fara í frí í snjóinn og drekka heitt súkkulaði með strákunum mínum.“ Spears viðurkennir einnig að hana langi stundum til að fara í dulargervi og fara út að borða óáreitt. Lífið 26.11.2011 10:00 Fallega fólkið lét sjá sig Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar E-Label hélt upp á endurkomu sína á íslenskan markað í versluninni 3 Smárum Smáralind á dögunum... Lífið 26.11.2011 09:29 Dikta fagnaði á Nasa Aðdáendur hljómsveitarinnar Diktu fylltu Nasa á fimmtudagskvöldið þegar útgáfutónleikar sveitarinnar fóru fram. Dikta gaf á dögunum út fjórðu plötu sína, Trust Me, og flutti nýju lögin við mikinn fögnuð viðstaddra. Lífið 26.11.2011 09:00 Beikon í boði Lífið 26.11.2011 08:
Frumleg afmælisgjöf Leikkonan Katherine Heigl fékk frumlega afmælisgjöf frá eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Josh Kelley, en hann fékk sér húðflúr til heiðurs henni og dóttur þeirra. Heigl lýsir því yfir á Twitter-síðu sinni að gjöfin sé sú rómantískasta sem hún hafi fengið, en húðflúrið er á handlegg Kelley með mynd af sameiginlegu stjörnumerki mæðgnanna og fæðingardögum þeirra. Lífið 26.11.2011 13:00
Finnst tískusýningar leiðinlegar Leikkonan Chloë Sevigny viðurkennir að hún hafi ekki mikinn áhuga á tísku og leiðist að fara á tískusýningar. Þessi ummæli Sevigny koma nokkuð á óvart þar sem leikkonan er þekkt fyrir fatastílinn og er gjarnan talin ein af helstu tískufyrirmyndum í heimi. Lífið 26.11.2011 12:00
Bluegrassið á líka heima á Íslandi Andi Suðurríkjanna hefur svifið yfir vötnum á tónleikum íslensku bluegrass-sveitarinnar Brother Grass undanfarið ár. Í dag kemur fyrsta plata sveitarinnar út, en hún kallast Didn‘t Leave Nobody But the Baby. Tónlist 26.11.2011 11:00
Barnabók Bergljótar "Mig langaði að gera bók sem fræðir börnin um íslensku húsdýrin og sýnir hversu mikilvæg þau eru fyrir samfélagið," segir Bergljót Arnalds, rithöfundur og söngkona, sem hélt útgáfuhóf í Iðnó í tilefni af útkomu barnabókarinnar Íslensku húsdýrin og Trölli. Bergljót og krakkar skelltu sér á hestbak og brugðu á leik eins og sjá má á myndunum. Lífið 26.11.2011 10:00
Dreymir um að fara á skíði Britney Spears segir að draumafríið sitt sé skíðaferð með sonum sínum og kærasta. Poppsöngkonan viðurkennir í viðtali við blaðið Stylist að hæfileikar hennar í brekkunum séu takmarkaðir en hún vilji gjarnan læra. „Það væri yndislegt að fara í frí í snjóinn og drekka heitt súkkulaði með strákunum mínum.“ Spears viðurkennir einnig að hana langi stundum til að fara í dulargervi og fara út að borða óáreitt. Lífið 26.11.2011 10:00
Fallega fólkið lét sjá sig Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar E-Label hélt upp á endurkomu sína á íslenskan markað í versluninni 3 Smárum Smáralind á dögunum... Lífið 26.11.2011 09:29
Dikta fagnaði á Nasa Aðdáendur hljómsveitarinnar Diktu fylltu Nasa á fimmtudagskvöldið þegar útgáfutónleikar sveitarinnar fóru fram. Dikta gaf á dögunum út fjórðu plötu sína, Trust Me, og flutti nýju lögin við mikinn fögnuð viðstaddra. Lífið 26.11.2011 09:00
Rocky kjörin best Rocky hefur verið kjörin besta íþróttamynd allra tíma í skoðanakönnun á vegum síðunnar Lovefilm. Í myndinni, sem er frá árinu 1976, leikur Sylvester Stallone hnefaleikakappann Rocky Balboa. Rocky er ein af fimm boxmyndum sem komust á topp tíu í könnuninni. Í öðru sæti lenti bobbsleðamyndin Cool Runnings, í því þriðja varð Million Dollar Baby og saman í fjórða sæti voru Raging Bull og The Wrestler. "Hvort sem um er að ræða ruðningshetjur, bobbsleðagaura eða Balboa þá elskum við að horfa á íþróttahetjur komast yfir endalínuna á dramatískan hátt," sagði ritstjóri Lovefilm. Lífið 25.11.2011 22:30
Skreytir bæinn með jólavættum "Ég er búinn að vera á kafi í þessu verkefni síðan í ágúst og er því jólaundirbúningurinn ansi langur hjá mér í ár,“ segir Hafsteinn Júlíusson vöruhönnuður en hann ætlar að sjá til þess að miðborgin fær á sig nýjan blæ í desember. Tíska og hönnun 25.11.2011 21:00
Ánægðir gestir á Freddie Mercury-tónleikum Tvennir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, hinum sáluga söngvara Queen, voru haldnir í Hörpu á miðvikudagskvöld. Stemningin í salnum var góð enda sá hópur góðra söngvara og tónlistarmanna um að lög Mercury kæmust vel til skila. Lífið 25.11.2011 21:00
Prófaði öll eiturlyfin Leikkonan Angelina Jolie segist vera heppin að vera á lífi miðað við óheilbrigt lífernið á sínum yngri árum. "Ég tók öll eiturlyf sem til voru; kókaín, e-pillu, heróín og hreinlega allt," sagði hin 36 ára Jolie í viðtali við 60 Minutes. "Ég fór í gegnum mikið myrkur og ég komst í gegnum það. Ég dó ekki ung, þannig að ég er mjög heppin. Margir aðrir listamenn og manneskjur hafa ekki lifað slíkt af." Hún viðurkennir að vera ekki laus við allt myrkrið en aðeins kærastinn Brad Pitt fær að kynnast því. "Þessi hluti af mér er enn til staðar. Hann er bara á sínum stað og er bara fyrir Brad og okkar ævintýri." Lífið 25.11.2011 20:30
Biel stjórnar sambandinu Þegar Justin Timberlake og Jessica Biel tóku aftur saman eftir fimm mánaða hlé á sambandinu töldu flestir vina þeirra að loksins væri komið að því að þau myndu ganga í það heilaga. Timberlake er hins vegar tregur til, því hann heldur að hjónaband myndi hafa skaðleg áhrif á feril hans, sem byggist mikið á vinsældum hans hjá kvenþjóðinni. Lífið 25.11.2011 20:00
Óánægð með kærastann Jennifer Lopez hefur ekki verið heppin í ástarmálunum undanfarið. Eftir að hafa skilið við eiginmann sinn til sjö ára, Marc Anthony, í sumar hóf hún ástarsamband með 24 ára dansaranum Casper Smart. Nú hefur komið í ljós að sá á mögulega fangelsisvist yfir höfði sér fyrir ýmis umferðarbrot. Lopez er að sögn heimildamanna ekki ánægð með kærastann og hefur ekki gert upp við sig hvort hún muni mæta í dómssal til að styðja hann þegar málið verður tekið fyrir. Lífið 25.11.2011 19:30
Auglýsingar tískurisa þykja ekki börnum sæmandi Bresku samtökin Advertising Standards Authority hafa bannað auglýsingar frá tískumerkjunum Marc Jacobs og Miu Miu. Ástæðan er að þær þykja ekki börnum sæmandi, en leikkonurnar Dakota Fanning og Hailee Steinfeld eru í aðalhlutverkum á myndunum. Tíska og hönnun 25.11.2011 16:15
Gylfi Ægis með aukatónleika í kvöld Nú eru hátt í 200 miðar seldir en salurinn tekur 300 manns. Þannig að það eru nokkrir miðar eftir, segir Gylfi Ægisson söngvari og lagasmiður. Tónlist 25.11.2011 15:00
Frumsýna glænýtt myndband við lagið Ást og áfengi Hljómsveitin Klaufar frumsýnir hér nýtt glænýtt myndband við smellinn Ást og áfengi og fer ekki milli mála að hér er alvöru kántrísveit á ferðinni. Klaufarnir hafa starfað í fimm ár og leikið kántrí vítt og breytt um landið fyrir landann. Sveitin samanstendur af þeim Guðmundi Annas Árnasyni söngvara, Sigurgeir Sigmundssyni fetilgítarleikara, Birgi Nielsen trommara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara og Kristjáni Grétarssyni gítarleikara. Tónlist 25.11.2011 15:00
Sonic Youth að hætta? Mikil óvissa ríkir nú um framtíð rokksveitarinnar Sonic Youth eftir að eitt langlífasta par rokksins, Thurston Moore söngvari og Kim Gordon bassaleikari, tilkynntu um skilnað sinn eftir nærri 30 ára hjónaband. Tilkynningin kom í október þegar hljómsveitin var á tónleikaferðalagi í Suður-Ameríku. Moore og Gordon giftu sig árið 1984 þegar hljómsveitin hafði starfað í þrjú ár. Aðdáendur sveitarinnar voru því flestir jafnframt aðdáendur hjónabandsins, og haft var eftir eyðilögðum ungum manni að skilnaðurinn hefði orðið til þess að hann tryði ekki lengur á sanna ást. Tónlist 25.11.2011 15:00
Skúrkur afhjúpaður í Týndu kynslóðinni Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður frumsýndur nýr dagskrárliður sem kallast Sönn íslensk swagamál. Þar verður hulunni svipt af skúrkinum Steinari Bárðarsyni sem Týnda kynslóðin vill meina að hafi farið illa með marga íslenska tónlistarmenn og sé núverandi umboðsmaður stúlknasveitarinnar Charlies. Lífið 25.11.2011 14:30
Gibb á batavegi Söngvarinn Robin Gibb hefur fullvissað aðdáendur sína um að hann sé ekki á grafarbakkanum eins og breskir fjölmiðlar hafa gefið í skyn. Hann sé þvert á móti á góðum batavegi þrátt fyrir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í annað sinn á skömmum tíma í síðustu viku. Gibb ætlaði að koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar en varð að aflýsa komu sinni sökum veikinda. Lífið 25.11.2011 14:00
Stjörnurnar horfa til Íslands Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011. Lífið 25.11.2011 14:00
Star Trek 3D kemur 2013 Framhaldsmyndin Star Trek 3D er væntanleg í kvikmyndahús 17. maí 2013. Hinir fjölmörgu Trekkarar, dyggir aðdáendur Star Trek, geta því byrjað að telja niður dagana í rólegheitum. Tökur hefjast í janúar á næsta ári og sem aftur eru þau Zoe Saldana, Chris Pine og Zachary Quinto í aðalhlutverkum. Orðrómur er einnig uppi um að Benecio Del Toro leiki illmennið í myndinni. Star Trek 3D átti upphaflega að koma út næsta sumar en var frestað af kvikmyndaverinu Paramount. Í staðinn var farið í framleiðslu á G.I. Joe 2. Retaliation. Lífið 25.11.2011 13:00
Ný barnabók Hendrikku Waage Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Hendrikka Waage skartgripahönnuður fagnaði útkomu barnabókar, Rikka og töfrahringurinn í Japan, hjá bókaútgáfunni Sölku með vinum og fjölskyldu.... Lífið 25.11.2011 12:45
Í makaleit á netinu Leikkonan, Playboy-fyrirsætan og dagskrágerðarkonan Jenny McCarthy hefur gefist upp á að finna maka i Los Angeles og leitað á náðir internetsins. McCarthy hætti með leikaranum Jim Carrey fyrir nokkru og hefur nú sett auglýsingu á einkamálasíðuna Match.com undir dulnefni. McCarthy skrifaði í auglýsingunni að hún væri komin með leið á karlmönnunum í Los Angeles. „Mennirnir hérna líta allir út eins og konur. Ég er að leita að einhverjum sem er ekki héðan.“ Það er vefsíðan Perezhilton.com sem uppljóstrar um makaleit leikkonunnar. Lífið 25.11.2011 12:00
Eldar og bakar á hverjum degi "Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, 22 ára gömul Akranesmær, sem vakið hefur mikla athygli fyrir matreiðslublogg sem hún heldur úti. Matur 25.11.2011 11:15
Draumur að rætast að fá að hitta poppkónginn „Ég held alveg sérstaklega upp á Pál Óskar. Ég hef haft áhuga á tónlistinni hans síðan 1987 og Eurovision síðan hann flutti Minn hinsti dans. Í raun og veru er það hann sem vakti hjá mér áhuga á íslenskri tónlist og þá sérstaklega Eurovision.“ Þetta segir Craig Murray, einlægur ástralskur Íslandsvinur og tónleikagestur Frostrósa, sem langar alveg sérstaklega til að hitta Pál Óskar Hjálmtýsson þegar hann og sambýlingur hans, Daryl Brown, koma hingað til Íslands skömmu fyrir jól. Lífið 25.11.2011 10:30
Klára prófin og kynna svo Nology, fyrsta breiðskífa dúósins Nolo, er komin út. Gripnum verður fylgt eftir um leið og þeir hafa lokið jólaprófunum. Fyrsta plata dúósins Nolo í fullri lengd nefnist Nology og kom nýverið út á vegum Kimi Records. Platan hefur verið fáanleg á tónlistarveitunni Gogoyoko síðustu viku og hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá tónlistarunnendum. Tónlist 25.11.2011 10:00
Það er ekkert að þessum kjól Breska leikkonan Sienna Miller stillti sér upp á rauða dreglinum í svörtum Emilio Pucci kjól sem fór henni þetta líka svona vel... Lífið 25.11.2011 08:52
Bít-skáld liðkaði fyrir Ameríkuútgáfu „Hún verður gefin út hjá forlagi sem nefnist New American Press og er ekki langt frá Chicago. Þetta er tíu til fimmtán ára gamalt forlag sem gefur út bókmenntir og tímarit. Þeir ætla að gera vel úr þessu og það kemur jafnvel til greina að ég fari út, lesi upp og áriti,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson. Smásagnasafn hans, Meistaraverkið, verður gefið út í Bandaríkjunum á næsta ári. Menning 25.11.2011 08:00
Áhrifin beint frá Nietzsche Rapparinn Kanye West segist ekki hafa stolið texta lagsins Stronger frá lagahöfundinum Vincent Rogers. Sá síðarnefndi hefur kært West og heldur því fram að rapparinn hafi hermt eftir lagi sem hann samdi árið 2006 og heitir sama nafni. Í báðum lögunum eru tilvísanir í þýska heimspekinginn Friedrich Nietzsche og fyrirsætuna Kate Moss. Lögfræðingar West segja að textinn við lag hans sé undir beinum áhrifum frá Nietzsche og orðum hans: „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari.“ Vísa þeir því ásökunum Rogers algjörlega á bug. Tónlist 25.11.2011 06:00