Lífið

Bretar komu, sáu og sigruðu á Emmy

Það er óhætt að segja að Bretar hafi komið séð og sigrað þegar Alþjóðlegu Emmy-verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Hilton hótelinu í New York í gærkvöldi

Lífið

Madeleine valin fegursta prinsessan

Sænska prinsessan Madeleine hefur verið valin fegursta prinsessa heims. Það var sænska tímaritið Svensk Damtidning sem fékk 19 hirðfréttamenn víða í Evrópu til að velja fegurstu prinsessuna og hlaut Madeleine 8 atkvæði sem dugðu í fyrsta sætið.

Lífið

Bakkaði á þúsund sinnum ódýrari bíl

Milljarðamæringurinn Karl Wernersson varð fyrir því óláni að aka á átján ára gamlan gylltan Subaru þegar hann var bakka út úr innkeyrslunni á húsi sínu við Engihlíð. Bíll Karls er svartur Benz jeppi af flottari gerðinni sem kostar um 20 milljónir. Verðmæti Subaru-sins er hins vegar um 20 þúsund krónur.

Lífið

Lilja var svaramaður systur sinnar

„Þetta var yndislegt brúðkaup og stórglæsilegt í alla staði," segir Baltasar Kormákur um brúðkaup Ingibjargar Pálmadóttur, mágkonu sinnar, og Jóns Ásgeirs svila.

Lífið

Elísabet Englandsdrottning er partýljón

Elísabet Englandsdrottning gefur ekkert eftir í samkvæmislífinu þrátt fyrir að aldurinn sé farinn að færast yfir hana. Hún fagnar á morgun 60 ára brúðkaupsafmæli sínu og Filippusar prins.

Lífið

Björk byrjar tónleikaferðina í Manchester

Björk Guðmundsdóttir hefur tilkynnt dagsetningar fyrir tónleikaferð sína um Bretland í Apríl á næsta ári til að fylgja eftir plötu sinni Volta. Hún hefur leik í Manchester 11. apríl og endar í Sheffield 4. maí.

Lífið

Fyrstu tvær kynningarnar í móðu

Matthildur Magnúsdóttir steig sín fyrstu skref í þulustarfinu hjá RÚV á laugardagskvöldið. Hún segist hafa verið hrikalega stressuð og man ekkert eftir tveimur fyrstu kynningunum.

Lífið

Inga Lind á von á barni

Sjónvarpsdrottningin Inga Lind Karlsdóttir í Íslandi í dag á von á barni. Hún staðfesti það í samtali við Vísi í dag.

Lífið

Aguilera mun eignast dreng

Poppdrottningin Christina Aguilera mun eignast dreng eftir rúma tvo mánuði. Aguilera og eiginmaður hennar Jordan Bratman hafa reynt að halda kyninu leyndu fyrir forvitnum fréttamönnum en vinkona hennar kom upp allt saman.

Lífið

Kidman missti tvö fóstur með Tom Cruise

Leikkonan frábæra Nicole Kidman hefur í fysta sinn sagt frá því opinberlega að hún hafi misst tvö fóstur á meðan hún var gift Tom Cruise. Þau eignuðust aldrei börn en ættleiddu tvö, Isabellu og Connor.

Lífið

Geri bíður Angelinu á alla tónleika Spice Girls

Geri Halliwell dreymir um að dóttir hennar Bluebell, sem er átján mánaða, verði besta vinkona barna Angelinu Jolie og Brad Pitt. Í viðleitni sinni til þess hefur hún boðið Angelinu á alla 40 tónleika Spice Girls á komandi mánuðum.

Lífið

U2 á Reykjavíkurflugvelli

Vísir hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að írska stórsveitin U2 hafi lent á Reykjavíkurflugvelli um hálf tíu á laugardagskvöldið og eytt hálfum sólarhring í Reykjavík.

Lífið

Brúðkaup ársins í norðangarra og kulda

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttur gengu í það heilaga á laugardaginn. Hjónakornin héldu síðan veglega veislu í Hafnarhúsinu þar sem Ný Dönsk og Gus Gus léku fyrir dansi.

Lífið

Ögmundur skemmti sér í brúðkaupi aldarinnar

Margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu verkalýðsforkólfinn og alþingismanninn Ögmund Jónasson ganga inn í fríkirkjuna, þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir voru gefin saman í gær, ásamt eiginkonu sinni Valgerði Andrésdóttur.

Lífið

Kanye brotnaði niður á tónleikum

Kanye west kom óvænt fram á Le Zénith klúbbnum í París í gærkvöld. Þetta var í fyrsta skiptið sem hann sést opinberlega eftir að móðir hans féll frá fyrir viku en hann hefur aflýst mörgum tónleikum undanfarna daga.

Lífið

Allar myndirnar úr brúðkaupi aldarinnar

Vísir var á staðnum þegar tvær af ríkustu fjölskyldum landsins tengdust saman í gær. Jón Ásgeir Jóhannesson, sonur Jóhannesar í Bónus og Ingibjörg Pálmadóttir, dóttir Pálma í Hagkaupi, giftu sig í Fríkirkjunni. Sjáðu myndirnar af brúðhjónunum og öllum gestunum hér.

Lífið

Forvitnir Íslendingar fylgjast með brúðkaupi aldarinnar

Töluverður fjöldi af forvitnum Íslendingum hefur lagt leið sína í miðbæinn, í dag, til að fylgjast með undirbúningi að brúðkaupi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur. Kunnugir segjast þó hafa átt von á meiri fjölda.

Lífið

Penn leikur Milk

Sean Penn hefur tekið að sér að leika í nýrri mynd leikstjórans Gus Van Sant um Harvey Milk. Milk var frumkvöðull í réttindabaráttu samkynhneigðra í Bandaríkjunum en hann var fyrsti opinskái samkynhneigði maðurinn til að verða kjörinn í opinbert embætti. Það var í San Francisco árið 1977.

Lífið

Dreymir um Dagvakt á sveitasetri

„Nei, Dagvaktin mun ekki gerast á bensínstöð," segir Jóhann Ævar Grímsson, einn handritshöfunda Næturvaktarinnar, sem hlaut tvenn verðlaun á Eddunni um síðustu helgi.

Lífið

Með heróín í blóði vegna óbeinna reykinga

Thom Stone, umboðsmaður Amy Winehouse hefur sagt starfi sínu lausu eftir að læknir fann heróín í blóði hans. Þangað komst það ekki eftir hefðbundum leiðum, heldur rekur hann það til þess að hafa andað að sér reyk frá poppstjörnunni drykkfelldu.

Lífið