Lífið
Frábær frammistaða Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hefur fengið frábæra dóma fyrir túlkuna sína á Ríkharði III í Old Vic-leikhúsinu í London. Óskarsverðlaunahafinn leikur þennan frægasta þorpara Shakespeares með fótinn í stálspelku, haltrandi með staf. Lífið 1.7.2011 20:00
Einstæð og ættleiðir Leikkonan Denise Richards ættleiddi á dögunum nýfædda stúlku sem hefur fengið nafnið Joni. Richards á fyrir tvær dætur með leikaranum og vandræðagemlingnum Charlie Sheen en þau skildu árið 2006. Miklar forræðisdeilur hafa staðið á milli þeirra en deilurnar leystust í fyrra og deila þau nú forræði. Lífið 1.7.2011 15:00
Með augum útgefandans Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi hefur fært sig upp á skaftið sem ljósmyndari. Á dögunum hélt hann sýningu á Íslendingaslóðum í Kanada og á laugardag opnar hann sýningu með landslagsmyndum úr Skorradal. Lífið 1.7.2011 14:00
Lávarðurinn Eyfi tekur Valdimar undir sinn væng „Þetta leggst mjög vel í mig. Það verður gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur Kristjánsson. Hann verður heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Innipúkans um verslunarmannahelgina og stígur þar á svið með hljómsveitinni Valdimar. Lífið 1.7.2011 12:00
Opnar veitingastað gengin 29 vikur "Ég er komin 29 vikur og er með strák. Ég leit í spegil í gær þegar ég var að gera mig tilbúna fyrir partýið og sá þá eiginlega í fyrsta skipti ólétta konu," svarar Hrefna Sætran sem opnaði nýjan veitingastað, Grillmarkaðinn, í Lækjargötu í gær. Lífið 1.7.2011 11:15
Fredrik elskar íslenska hönnun Fredrik Kristján Jónsson klæðist íslenskri hönnun í bresku raunveruleikaþáttunum Made in Chelsea. Hann er væntanlegur til Íslands síðar í mánuðinum. Lífið 1.7.2011 11:00
Stjörnurnar mæta í konunglega brúðkaupið í Mónakó Áhugamenn um kóngafólk og stjörnur úr Hollywood eiga annasama helgi framundan þegar Albert fursti af Mónakó gengur að eiga Charlene Wittstock. Á gestalista brúðkaups Alberts fursta af Mónakó og Charlene Wittstock er að finna aragrúa af frægum nöfnum. Albert er þekktur fyrir að vera vel tengdur inn í Hollywood-heiminn og bíða því margir í eftirvæntingu eftir að sjá hvaða fræga fólk á eftir að heiðra brúðhjónin með nærveru sinni. Lífið 1.7.2011 10:00
Potts aftur með Bó Paul Potts, hinn heimsþekkti tenór úr Britain"s Got Talent, verður aftur gestur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í ár. Þetta staðfestir Björgvin í samtali við Fréttablaðið. Lífið 1.7.2011 10:00
Sólveig vinsæl hjá Þjóðverjum "Þetta er pínulítið eins og að fara í sumarbúðir," segir Sólveig Arnarsdóttir leikkona. Síðasta tvo og hálfan mánuðinn hefur Sólveig verið á Gotlandi, lítilli eyju undan ströndum Svíþjóðar, við tökur á þýskum sakamálaþáttum, Der Kommissar und Das Meer eða Lögregluforinginn og hafið. Um er að ræða tvær níutíu mínútna langar sjónvarpsmyndir sem byggðar eru á samnefndum bókum eftir sænska höfundinn Mari Jungstedt. Leikkonan hefur ekki verið ein á tökustað, með henni eru maðurinn hennar og nýfætt barn. "Og það kippir sér enginn upp við það þegar ég þarf að gefa því að drekka á milli atriða." Lífið 1.7.2011 09:45
Courtney Love stal bíl og bílstjóra Courtney Love gerði ljósmyndarann David LaChapelle brjálaðan fyrr í vikunni þegar hún stal bílnum hans, samkvæmt dagblaðinu New York Post. Lífið 1.7.2011 09:00
Lára í garðpartíi Laugavegurinn verður opnaður sem göngugata í dag og af því tilefni munu verslunin Spúútnik og skemmtistaðurinn Dillon halda heljarinnar garðpartí í Dillon-garðinum yfir helgina. Skemmtiatriði verða fyrir alla fjölskylduna; tónleikar, trúðar, andlitsmálning, eldgleypir og grillaðar pylsur. Lífið 1.7.2011 08:30
Umbreytingar snúa aftur Þriðja myndin um Umbreytingana verður frumsýnd um helgina en þetta á að vera síðasta myndin í þríleik Michaels Bay um vélrænu geimverurnar. Að þessu sinni er allur heimurinn undir. Lífið 30.6.2011 22:00
Rokkað á Eistnaflugi Fjórar erlendar hljómsveitir koma fram á rokkhátíðinni Eistnaflugi sem verður haldin í Neskaupstað dagana 7. til 9. júlí. Þær heita Triptykon frá Sviss, The Monolith Deathcult frá Hollandi, Secrets of the Moon frá Þýskalandi og hin færeyska Hamferð. Á meðal íslenskra hljómsveita sem stíga á svið eru Ham, Dr. Spock, Sólstafir, Mammút, SH Draumur og Skálmöld auk Eiríks Haukssonar. Lífið 30.6.2011 21:00
40 ár frá dauða Morrison Á sunnudag verða fjörutíu ár liðin síðan Jim Morrison, söngvari The Doors, lést í París aðeins 27 ára. Fréttablaðið tók saman tíu áhugaverð ummæli frá þessum mikla áhrifavaldi í rokksögunni. Lífið 30.6.2011 20:00
Kvikmynd um Brian Wilson Kvikmynd er í bígerð um ævi Brians Wilson, fyrrum forsprakka hljómsveitarinnar Beach Boys. Oren Moverman, sem leikstýrði hinni vel heppnuðu The Messenger, er að skrifa handrit myndarinnar, sem hefur ekki enn fengið nafn. Í yfirlýsingu frá framleiðslufyrirtækinu River Road Entertainment fjallar myndin um einstakan tónlistarferil Wilsons, andlega erfiðleika hans og hvernig honum hefur tekist að halda áfram í tónlistinni með hjálp eiginkonunnar Melindu. Lífið 30.6.2011 20:00
Áttburamamman hatar börnin Nadya Suleman, sem eignaðist áttbura fyrir rúmum tveimur árum og hlaut heimsfrægð fyrir, er við það að gefast upp á að ala upp börnin sín en þau eru fjórtán talsins. Nadya lét hafa eftir sér í viðtali við InTouch tímaritið: Ég hata börnin mín. Mér hryllir við þeim. Eldri börnin mín sex eru eins og dýr því ég hef engan tíma til að siða þau til. Meðfylgjandi má sjá nýjar myndir af Nadyu. Lífið 30.6.2011 18:22
Haugadrukkin Lindsay Leikkonan Lindsey Lohan, sem losnaði í gær úr mánaðar löngu stofufangelsi, hrundi í það aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún var látin laus. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Lindsay í vægast sagt slæmu ásigkomulagi þegar hún yfirgaf skemmtistaðinn Lexington Social Club í Hollywood. Lífið 30.6.2011 17:24
Dregur úr hrukkum og strekkir húðina Þetta dregur úr hrukkum og strekkir húðina og veitir hámarks næringu," segir Rannveig B. Hrafnkelsdóttir framleiðslustjóri Purity Herbs á Akureyr þegar hún og Ásta Kristín Sýrusdóttir framkvæmdastjóri sýna hvernig andlitsolía (serum) og hrukkukremið Undur berjanna, sem framleitt er úr íslensku jurtum, virka á húðina. Kremin eru 100% náttúruleg og alíslensk þar að auki. Hér segja Ásta og Rannveig frá kynörvandi sleipiefnum sem eru vinsæl hér á landi. http://visir.is/alislensk-sleipiefni-sem-svinvirka/article/2011110619275 Lífið 30.6.2011 16:19
Harpa fjölgar Airwaves-miðum Um 900 fleiri miðar verða í boði á Iceland Airwaves-hátíðina í október en verið hefur. Ástæðan er sú að Harpa er komin í hóp tónleikastaða og því verður meira pláss en áður fyrir áhorfendur. Lífið 30.6.2011 15:00
Til liðs við Smith Denzel Washington er nú talinn líklegastur til að hreppa aðalhlutverkið í kvikmyndinni The American Can sem fjallar um fellibylinn Katrínu og þær skelfilegu afleiðingar sem hann hafði fyrir íbúa New Orleans. Lífið 30.6.2011 15:00
Caine skammaður Leikstjóranum Chris Nolan er ákaflega annt um kvikmyndir sínar og krefst algjörrar þagmælsku og trúnaðar frá starfsfólki sínu. Sir Michael Caine fékk að bragða á þessari sérvisku leikstjórans þegar hann missti óvart út úr sér í blaðaviðtali að tökur væru hafnar og hann myndi áfram leika einkaþjón Bruce Wayne, Alfred Pennyworth. Lífið 30.6.2011 14:45
Tileinka Biogen raftónlistarhátíðina Undir jökli Í byrjun ágúst verður íslenska raftónlistarhátíðin Undir jökli, Extreme Chill Festival 2011, haldin á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Hátíðin verður tileinkuð íslenska raftónlistarfrumkvöðlinum Bjössa Biogen, Sigurbirni Þorgrímssyni, sem lést fyrir aldur fram í byrjun þessa árs. Lífið 30.6.2011 14:33
The Saga til Íslands í nóvember Kanadíska hljómsveitin The Saga spilar í Vodafonehöllinni 4. nóvember. Sveitin naut töluverðra vinsælda á níunda áratugnum og hennar þekktustu lög eru Wind Him Up, On the Loose og Humble Stance. Lífið 30.6.2011 14:00
Ýkt mikið fótósjoppuð Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Pamelu Anderson pósa í Bonita De Mas undirfötum þar sem búið er að eiga töluvert við myndirnar með aðstoð tölvutækninnar. Þá má einnig sjá myndir af Pamelu sem ekki er búið að eiga við. Lífið 30.6.2011 13:24
Glaðir gestir á Afrocubism í Hörpu Ljósmyndari Fréttablaðsins var í Hörpunni á þriðjudaginn þegar hljómsveitin Afrocubism spilaði við góðar undirtektir. Sveitin er skipuð merkustu tónlistarmönnum Kúbu og Malí og notaði fjöldi fólks tækifærið og skellti sér á tónleikana. Lífið 30.6.2011 13:00
Gala eða gallabuxur - skiptir engu þú lúkkar Black Eyed Peas söngkonan, Fergie, 36 ára, var mynduð í Düsseldorf í Þýskalandi í gær klædd í stuttbuxur og leðurstígvel. Þá má sjá söngkonuna í gulum galakjól ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Josh Duhamel. Fergie er alltaf glæsileg sama hverju hún klæðist eins og sjá má í myndaablúmi. Þá má einnig sjá hana í hlébarðakjól og leðurvesti í París á dögunum. Lífið 30.6.2011 12:30
Óli Palli með fjölskyldunni á Hróarskeldu „Við erum mjög spennt. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður og Hróarskelduaðdáandi með meiru. Lífið 30.6.2011 12:00
Birgitta Haukdal flytur með fjölskylduna til Spánar „Við förum í ágúst og dveljum í tvö ár,“ segir söngkonan Birgitta Haukdal, en hún og fjölskylda hennar hafa ákveðið að flytja til Barcelona. Lífið 30.6.2011 11:15
KR-útvarpið til Færeyja KR-útvarpið ætlar að elta meistaraflokk karla í fótbolta til Gundadal í Þórshöfn í Færeyjum. Þar fer fram leikur ÍF Fuglafjarðar og KR í Evrópudeildinni í kvöld. Þröstur Emilsson verður í Þórshöfn með viðtöl fyrir leik og lýsir svo leiknum sem hefst klukkan 18. Útsendingin, sem er sú 314. í röðinni hjá KR-útvarpinu, hefst klukkan 17 og verður Páll Sævar Guðjónsson í KR-heimilinu. Útvarp KR sendir út á FM 98,3 og á Netheimur.is, iPhone, iPad og Ipod. Lífið 30.6.2011 11:00
Línurnar að skýrast hjá Tarantino Quentin Tarantino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx fyrir kvikmynd sína Django Unchained. Fréttir af myndinni eru frekar óljósar en samkvæmt vefsíðunni contactmusic.com er um að ræða vestra, innblásinn af spagettívestranum Django eftir Sergio Corbucci. "Mig hefur alltaf langað til að gera mynd um svartasta blettinn á sögu Bandaríkjanna; þrælahaldið. En ég vil ekki gera það á dramatískan hátt heldur með því að notast við vestraformið,“ hafði Daily Telegraph eftir Tarantino fyrir fjórum árum. Lífið 30.6.2011 10:00