Lífið

Manson með nýja plötu

Fjórtán lög verða á áttundu hljóðversplötu rokkarans Marilyn Manson, Born Villain, sem kemur út 30. apríl. Þrjú ár eru liðin síðan sú síðasta, The High End Of Low, kom út.

Lífið

Heitasta parið í Hollywood

Slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að söngkonan Rihanna og leikarinn Ashton Kutcher séu heitasta parið í Hollywood um þessar mundir. Sagan segir að Rihanna mætti á miðnætti í vikunni heim til leikarans í fylgd lífvarðar. Ekki er vitað hvenær hún yfirgaf heimili leikarans...

Lífið

Lopez í skærum litum

Jennifer Lopez, 42 ára, mætti í glæsilegum neon-grænum þröngum kjól í viðtal á brasilískri sjónvarpsstöð þar sem hún kynnti nýja sjónvarpsþáttinn sinn, Q’Viva! The Chosen. Í þættinum leitar hún ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, Marc Anthony, að hæfileikaríku fólki í suður-Ameríku...

Lífið

Finnst gaman að hrekkja börnin sín

Juliu Roberts finnst gaman að hrekkja börnin sín, Henry sem er fjögurra ára og tvíburana Hazel og Phinnaeus sem eru sjö ára. "Þegar ég heyri að þau eru á leiðinni og þau vita ekki að ég er í húsinu beygi ég mig niður og þegar þau koma inn í herbergið stekk ég fram," sagði leikkonan í viðtali við Ellen DeGeneres.

Lífið

Mið-Íslandi meinaður aðgangur að Leifsstöð

"Ég verð eiginlega bara pirraður þegar ég tala um þetta,“ segir Ragnar Hansson, leikstjóri gamanþátta Mið-Íslandhópsins, sem fékk ekki að taka upp í Leifsstöð þegar tökur stóðu yfir síðastliðið haust.

Lífið

Hestamenn ríða í gegnum miðbæinn

Dagana 29. mars – 1. apríl verða Hestadagar í Reykjavík. Þar fá borgarbúar gott tækifæri til að kynnast íslenska hestinum. Á laugardaginn munu hestar og hestamenn verða áberandi í miðbænum og í við Ráðhúsið í Reykjavík verður margt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á hestateymingar við Ráðhúsið, fyrirlestra af ýmsum toga um hestinn, sögu hans og atferli. Línudans verður kynntur og gestum og gangandi boðið að læra nokkur spor...

Lífið

Læðist bakdyramegin

Leikkonan Renee Zellweger, 42 ára, mætti á tískuvikuna í París með uppsett hárið og sólgleraugu á nefinu. Eins og sjá má á myndunum læddist hún bakdyramegin til að komast hjá ljósmyndurum sem biðu hennar. Leikkonan hefur samþykkt að leika Bridget Jones í þriðju myndinni ásamt leikurunum Colin Firht og Hugh Grant sem fara með hlutverk Mark Darcy og Daniel Cleaver.

Lífið

Framhaldslíf ofbeldismyndbands

Myndband hljómsveitarinnar Moon við lagið My Husband The Corpse hefur flakkað um samskiptasíðuna Facebook undanfarnar vikur. Texti lagsins og myndbandið þykja skuggaleg enda er umfjöllunarefni þess heimilisofbeldi.

Lífið

Simon og Yasmin Le Bon í bátsferð

Simon Le Bon og eiginkona hans, Yasmin, nutu lífsins í bátsferð nálægt höfninni í Sydney í Ástralíu í gærdag. Eins og sjá má á myndunum skemmtu hjónin sér vel ásamt vinum...

Lífið

Bjartsýn líkt og Kani

Victoria Beckham segist vera bjartsýnismanneskja í eðli sínu og þess vegna líði henni vel í Bandaríkjunum. Beckham segist hafa verið spennt fyrir mögulegum flutningi fjölskyldunnar til Parísar, en á tímabili stóð til að David Beckham færi til Saint-Germain fótboltaliðsins. „Ég er bjartsýnismanneskja, þess vegna líður mér vel í Bandaríkjunum. Það hefði verið gaman að flytja til Parísar, sérstaklega vegna vinnu minnar í tísku, en við ákváðum að dvelja

Lífið

Aldrei aftur saman

Tónlistarmaðurinn Jack White mun ekki endurvekja hljómsveitina The White Stripes og stendur fastur á þeirri skoðun sinni.

Lífið

Pabbi rót fylgir The Vintage Caravan til Rúmeníu

„Við verðum vonandi landinu til sóma," segir Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan. Rokktríóið vann íslensku undankeppni hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands um helgina og tryggði sér þar með þátttökurétt í lokaúrslitunum sem verða haldin í Rúmeníu í júní.

Lífið

Hönnun í gamla Sautján húsinu

Meðfylgjandi myndir voru teknar um helgina þegar HönnunarMars stóð sem hæst í verslunarhúsnæðinu á Laugavegi þar sem verslunin Sautján var starfrækt....

Lífið

Sigurrós setur nýtt lag á Netið - Platan heitir Valtari

Aðdáendur hljómsveitarinnar Sigur Rósar eru himinlifandi eftir að sveitin setti í dag nýtt lag, Ekki múkk, á myndbandasíðurnar Vimeo og YouTube. Einnig eru komnar nánari upplýsingar um nýjustu plötu sveitarinnar, sem hefur hlotið nafnið Valtari.

Lífið

Skræpóttasta sýning sem sést hefur

"Þetta er skræpóttasta sýning sem ég hef séð og ekkert smá skemmtilegt verkefni," segir Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, teiknari og einn af skipuleggjendum sýningarinnar Phobophobia sem er í gangi í Bíó Paradís um þessa dagana.

Lífið

Gulla arkítekt hannar sviðsmynd RFF

Reykjavik Fashion Festival, RFF, verður haldin hátíðleg næstu helgi. Þar munu ellefu íslenskir hönnuðir sýna næstkomandi haust- og vetrarlínur sínar í Hörpu...

Lífið

Fjórða barnið á leiðinni

Tori Spelling og eiginmaður hennar, Dean McDermott, eiga von á fjórða barninu í lok ársins. Fyrrum 90210 stjarnan bloggaði eftirfarandi á föstudaginn síðasta aðeins fimm mánuðum eftir að þriðja barnið, Hattie, fæddist. „Við erum í skýjunum yfir því að annað lítið McDermott-barn er á leiðinni! Við erum innilega ánægð með að annar engill hefur fundið okkkur,“ skrifaði Tori. Hún og Dean giftu sig árið 2006 en saman eiga þau Liam, 5, Stellu, 3, og fimm mánaða gamla Hattie.

Lífið

Botnleðja snýr aftur

Þær óvæntu fréttir bárust í gær að hljómsveitin Botnleðja hyggst snúa aftur og spila á tónleikum á Gauknum í júní. 17 ár eru síðan Botnleðja vann Músíktilraunir, en hljómsveitin var afar vinsæl á meðan hún starfaði. Síðasta platan kom út árið 2003, en hljómsveitin gaf út fimm plötur á átta árum.

Lífið

Heldur hátíð í Færeyjum

Fo Tatt Fest fer fram í fyrsta sinn í Færeyjum dagana 18. til 20. maí. Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður stendur fyrir hátíðinni og hyggst gera hana að árlegum viðburði.

Lífið

Yrði frábær dómari

Söngkonan Britney Spears yrði frábær dómari í X-Factor að mati Sinittu sem er sérfræðingur í þáttunum og hefur unnið með dómaranum Simon Cowell að bresku útgáfunni. Viðræður hafa staðið yfir við Spears um að hún taki að sér dómarahlutverk í þáttunum en þær Paula Abdul og Nicole Scherzinger eru báðar horfnar á braut.

Lífið

Notar þorskbein í skartgripalínu

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Aurum þegar skartgripahönnuðurinn Jóhanna Methúsalemsdóttir kynnti nýja skartgripalínu, sem nefnist The Cod Collection, undir merkjum Kria Jewelry. Þorskurinn hefur í aldana rás verið einsog rauður þráður í íslenskri menningu og eru þorskbeinin í aðalhlutverki í nýju línu Jóhönnu. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var andrúmsloftið frábært.

Lífið

Ófrísk á hraðferð

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs, gekk hröðum skrefum í rigningunni í ásamt unnustanum Eric Johnson í Los Angeles í gær sunnudag...

Lífið

Hönnunarveisla í Bláa lóninu

Glæsileg hönnunarsýning Sub-zero Couture fór fram í Bláa lóninu á föstudagskvöld. Þetta var ein stærsta og veglegasta hönnunarsýning sem haldin hefur verið hér á landi. Fjöldi erlendra fjölmiðlamanna mun mæta og fjalla um viðburðinn....

Lífið

Gæfa fylgir Blúshátíðarfólki

"Þegar menn spila á Blúshátíð þá fer "mojoið“ í gang,“ segir Halldór Bragason, skipuleggjandi Blúshátíðar í Reykjavík sem verður haldin í níunda sinn um páskana.

Lífið