Lífið

Þær eru allar eins

Skóguðinn Manolo Blahnik er sannkallaður skórisi og dreymir mörgum konum um að eignast skópar frá þessum mikla meistara. Hann er ekkert sérstaklega hrifinn af ungum leikkonum í dag.

Lífið

Frægir á frumsýningu Mary Poppins

Frumsýningargestir fögnuðu ákaft í lok frumsýningar söngleiksins Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi en gestir voru sammála um að sýningin hafi verið frábær - töfrum líkust. Eins og sjá má á myndunum mættu fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar á sýninguna sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir.

Lífið

Ashley Judd í framboð

Leikkonan Ashley Judd er sögð íhuga framboð til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir hönd demókrata, ef marka má frétt US Weekly. Hún hyggst bjóða sig fram gegn Mitch McConnell, sem er núverandi öldungadeildarþingmaður Kentucky-fylkis.

Lífið

Tónleikar til styrktar Ingólfi

Tónleikar til styrktar Ingólfi Júlíussyni, ljósmyndara og margmiðlunarhönnuði, verða haldnir í Norðurljósum í Hörpu 28. febrúar. Ingólfur greindist með bráðahvítblæði í byrjun október í fyrra og hefur dvalið á sjúkrahúsi að mestu síðan.

Lífið

Syfjuð súperstjarna

Leikkonan Carey Mulligan djammaði ærlega á nýafstaðinni Brit-verðlaunahátíð. Eiginmaður hennar, Marcus Mumford, og sveitin hans Mumford & Sons voru sigurvegarar kvöldsins og skellti Carey sér í eftirpartí með þeim.

Lífið

Skvísa á sjötugsaldri

Leikkonan Goldie Hawn gerði sér lítið fyrir og skellti sér í frí með sínum heittelskaða, leikaranum Kurt Russell, til Puerto Aventuras í Mexíkó fyrir stuttu.

Lífið

Starir á klappstýrurnar

Leikarinn Joseph Gordon-Levitt skellti sér á körfuboltaleik með LA Lakers í vikunni. Hann sat á besta stað á vellinum og hafði gott útsýni, bæði yfir körfuboltavöllinn og klappstýrurnar.

Lífið

Sjálfstæðiskonur fagna

Landssambands sjálfstæðiskvenna stóð fyrir glæsilegum kvöldverði á veitingastaðnum Nauthól í Reykjavík á fyrsta degi landsfundar þann 21. febrúar.

Lífið

100 milljón króna bíll, takk fyrir!

Tónlistarmaðurinn Will.i.am er þekktur fyrir að vera með afar dýran smekk en hann sló öll met fyrir stuttu þegar hann keypti sér sérsmíðaðan bíl fyrir níu hundruð þúsund dollara, rúmlega 116 milljónir króna.

Lífið

Þú verður að sjá þetta!

Horfðu á þetta myndband sem sýnir sjáanda segja fólki frá þeirra dýpstu leyndarmálum og ákveddu síðan hvaða upplýsingar þú setur um sjálfan þig á internetið. Sjón er sögu ríkari.

Lífið

Keyptu hús á “aðeins” 400 milljónir

Kántrísöngkonan LeAnn Rimes og eiginmaður hennar, leikarinn Eddie Cibrian, eru búin að kaupa sér nýtt hús og þau þurftu ekki að borga mikið fyrir það samkvæmt standardinum í Hollywood.

Lífið

Pjattrófur og Nude Magazine fagna vorinu

Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar á veitingastaðnum Loftið í Grand Mariner veislu á vegum NUDE magazine og Pjattrófanna í gærkvöldi. Fjöldi manns mætti og fagnaði vorinu.

Lífið

Liðug fyrir allan peninginn

Pussycat Doll-pían Kimberly Wyatt bugtar sig og beygir í nýrri auglýsingaherferð fyrir japönsku húðvörurnar Yu-Be. Þessi 31 árs dansari er örugglega með þeim liðugri í bransanum og sýnir sínar bestu hliðar fyrir Yu-Be.

Lífið

Bleyjukökur vinsælar í steypiboðunum

Svokölluð baby shower, eða steypiboð á góðri íslensku, hafa verið að færast í aukana hérlendis á undanförnum árum. Um er að ræða bandaríska hefð þar sem vinkonur verðandi móður halda óvænt boð fyrir hana áður en barnið kemur í heiminn. Bleyjukökur eru vinsælasta gjöfin í slíkum veislum vestanhafs, en þær eru einnig fáanlegar hérlendis.

Lífið

Hannar og saumar knúsuklúta og slefsmekki fyrir sniðuga stubba

Dagbjört Elsa Yngvadóttir situr svo sannarlega ekki auðum höndum því undanfarin ár hefur hún hannað og saumað dásamlega smekki, slefklúta, stuttbuxur og snuddubönd fyrir smáfólkið við miklar vinsældir. "Þetta byrjaði allt á smekkjunum, en þegar dóttir mín fæddist fann ég hvergi smekki handa henni sem virkuðu nógu vel. Þeir voru ýmist of litlir eða láku svo ég ákvað að prófa mig áfram sjálf. Smekkirnir mínir komu svo vel út að ég fór að gera fleiri og gefa fólkinu í kringum mig. Þeir slógu heldur betur í gegn og ég fann fyrir mikilli þörf fyrir svona smekkjum.

Lífið

Náði loksins að selja húsið

Söngkonan Christina Aguilera er loksins búin að selja glæsihýsi sitt í Beverly Hills sem hún deildi með fyrrverandi eiginmanni sínum, Jordan Bratman. Húsið var í tvö ár á fasteignamarkaðinum en þau Jordan skildu í apríl árið 2011.

Lífið

Bjuggu á götunni

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að Hollywood-stjörnurnar hafi einhvern tímann baslað og varla átt fyrir mat.

Lífið

Eftir að ég prófaði dropana get ég ekki verið án þeirra

"Eftir að ég prófaði EGF dropana get ég ekki verið án þeirra. Ég ber þá reglulega á andlit, augnsvæði og háls á kvöldin eftir hreinsun húðarinnar. Ég finn að þeir eru endurnærandi og græðandi dropar og gefa húðinni fallegri áferð og jafnari lit. Einnig eyða þeir þurrkblettum sem gjarnan koma yfir vetrartímann þegar kalt er í veðri."

Lífið

Ísland í dag: Sefur stundum í tvær vikur

Hún er eina stúlkan á landinu með þyrnirósarheilkenni en átta mánuðir eru frá síðasta kasti. Við rifjum upp mál Söndru Daðadóttur í Íslandi í dag en hún á það til að sofa í allt að tvær vikur í senn.

Lífið