Erlent
Forstjóri Moderna segir enn mikið verk fyrir höndum Nýtt bóluefni bandaríska lyfjafyrirtækisins Moderna sem var kynnt í gær er sagt veita 95 prósenta vörn, geymast vel án þess að þurfa að vera í frosti og veita sérstaklega mikla viðspyrnu gegn alvarlegum veikindum af völdum kórónuveirunnar. Erlent 17.11.2020 08:12
Biden segir að mótþrói Trumps geti leitt til dauðsfalla Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseti varaði við því í nótt að fólk gæti dáið ef Donald Trump fráfarandi forseti gefur sig ekki og hefur samstarf við Biden og hans lið, en Biden tekur formlega við stjórnartaumunum í janúar á næsta ári. Erlent 17.11.2020 07:43
Segir Repúblikana þrýsta á sig til að útiloka lögleg atkvæði í Georgíu Brad Raffensperger, innanríkisráðherra Georgíu í Bandaríkjunum, segir að aðrir Repúblikanar hafi beitt hann miklum þrýstingi að undanförnu. Markmiðið sé að láta hann finna leiðir til að útiloka lögleg atkvæði frá talningu með því markmiði að snúa við naumu tapi Donald Trumps, forseta, í ríkinu. Erlent 16.11.2020 23:19
Sagður ætla að fækka hermönnum verulega í Afganistan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður ætla að fækka bandarískum hermönnum í Afganistan og Írak verulega, áður en hann lætur af embætti í janúar. Erlent 16.11.2020 22:00
Óhræddur við að fara án samnings Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segist sannfærður um að Bretlandi muni vegna vel, þó svo að samningar við Evrópusambandið náist ekki. Erlent 16.11.2020 21:34
Ráðgjafi forsetans hvatti íbúa til að rísa upp gegn sóttvörnum Gretchen Whitmer, ríkisstjóri Michigan, segir henni hafa brugðið þegar hún sá að einn helsti sóttvarnaráðgjafi Donald Trumps, forseta, hefði kallað eftir því að íbúar ríkis hennar risu upp gegn sóttvarnaraðgerðum yfirvalda. Erlent 16.11.2020 19:49
Dánartilkynningar heimsfrægra birtar fyrir slysni Á heimasíðu frönsku útvarpsstöðvarinnar Radio France Internationale birtust tilkynningar um andlát margra þekktustu einstaklinga í heimi. Erlent 16.11.2020 19:36
Hamfarasvæði aftur í hættu vegna fellibyljarins Jóta Fellibylnum Jóta óx afl í Karíbahafi í dag og er nú orðinn að fimmta stigs fellibyl. Hann virðist nú stefna á hamfarasvæði í Mið-Ameríku sem urðu illa úti í fellibylnum Eta fyrr í þessum mánuði. Erlent 16.11.2020 16:05
Þýskar kórónuveiruauglýsingar vekja mikla athygli Sófakartöflur fá uppreisn æru í nýrri auglýsingaherferð þýsku ríkisstjórnarinnar þar sem íbúar landsins eru hvattir til þess að halda sig heima í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Erlent 16.11.2020 15:02
Svíar takmarka samkomur við átta manns Sænsk stjórnvöld hafa boðað að frá og með 24. nóvember næstkomandi munu samkomutakmarkanir í landinu miða við átta manns. Að undanförnu hefur verið miðað við fimmtíu. Erlent 16.11.2020 13:48
Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. Erlent 16.11.2020 13:39
Mælir með áframhaldandi grímunotkun og félagsforðun eftir fjöldabólusetningar Anthony Fauci, helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjastjórnar, segir ekki rétt að hverfa frá þeim varúðarráðstöfunum sem almenningur hafi í stórum stíl tileinkað sér í heimsfaraldrinum, eftir að ráðist hefur verið í fjöldabólusetningar á næsta ári. Erlent 16.11.2020 13:09
Bóluefni Moderna veitir 95 prósent vörn gegn kórónuveirunni Þetta sýna fyrstu niðurstöður úr rannsóknum Moderna. Erlent 16.11.2020 12:08
Reglulegar mannaðar geimferðir einkafyrirtækis hafnar Fjórir geimfarar voru fyrstu farþegarnir þegar reglulegar mannaðar ferðir með geimferju einkafyrirtækisins SpaceX hófust í nótt. Erlent 16.11.2020 11:31
Framboð Trump dregur stærstu ásakanir sínar í Pennsylvaníu til baka Dómsmál sem framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta rekur vegna kosningaúrslitanna í Pennsylvaníu getur ekki hugsanlega hnikað úrslitunum til eftir að framboðið lét stærstan hluta ásakana sinna um meint kosningasvik niður falla. Erlent 16.11.2020 10:34
Forsetaskipti framundan í Moldóvu Maia Sandu, hagfræðingur og fyrrverandi forsætisráðherra Moldóvu, verður næsti forseti landsins. Erlent 16.11.2020 07:55
Utanríkisráðherra Sýrlands er látinn Waled al-Muallem, utanríkisráðherra Sýrlands, er látinn, 79 ára að aldri. Erlent 16.11.2020 07:27
Smituðum fjölgaði um milljón á einni viku í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn eru enn í verulegum vandræðum með útbreiðslu kórónuveirunnar og nú hafa tvö ríki, Michigan og Washington, bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa sett hertar reglur til að reyna að hefta útbreiðslu faraldursi Erlent 16.11.2020 06:54
70% fólks með „langvarandi Covid“ greinist með virknirýrnun líffæra Bráðabirgðaniðurstöður breskrar rannsóknar benda til þess að næstum 70% áður heilbrigðra einstaklinga sem glíma við langvarandi eftirköst vegna Covid-19 þjáist af einhvers konar rýrnun á virkni eins eða fleiri líffæra. Erlent 15.11.2020 23:34
Boris Johnson sendur í einangrun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er kominn í einangrun eftir að hafa átt í samskiptum við þingmann sem var smitaður af Covid-19. Erlent 15.11.2020 22:59
Sitja í Drekanum og bíða eftir glugganum Ef veður og vindar leyfa verður fjórum geimförum NASA, geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, skotið á loft kl. 00.27 að íslenskum tíma. Um er að ræða samstarf við einkafyrirtækið SpaceX en geimfararnir munu ferðast til Alþjóðlegu geimvísindastöðvarinnar (ISS) í Dragon geimfari á Falcon 9 eldflaug. Erlent 15.11.2020 22:07
Átta milljónir minka á skilgreindum áhættusvæðum þegar verið aflífaðir Stökkbreytt afbrigði kórónuveiru kom upp á minkabúum á Jótlandi fyrr í þessum mánuði og ákváðu dönsk stjórnvöld að allir minkar í Danmörku, um sautján milljónir talsins, skyldu aflífaðir. Erlent 15.11.2020 21:23
Sagði af sér eftir örfáa daga í embætti Merino sagði af sér í kjölfar mikilla mótmæla sem staðið hafa yfir síðan ríkisstjórn hans tók til starfa en tveir ungir menn, 24 og 25 ára, létust í mótmælunum í gær. Erlent 15.11.2020 20:21
Trump virðist viðurkenna ósigur á Twitter Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn á Twitter undanfarna daga í kjölfar kosninganna vestanhafs. Erlent 15.11.2020 14:30
Einn þeirra sem kemur að Pfizer-bóluefninu segir lífið ekki verða eðlilegt fyrr en næsta vetur Áhrif nýs bóluefnis við kórónuveirunni munu gæta verulega næsta sumar og lífið ætti að verða orðið eðlilegt næsta vetur. Þetta segir prófessor Ugur Sahin, einn af stofnendum fyrirtækisins BioNTech, en fyrirtækið þróar bóluefni við kórónuveirunni ásamt bandaríska fyrirtækinu Pfizer. Erlent 15.11.2020 14:14
Til ryskinga kom í mótmælum stuðningsmanna Trump Þúsundir stuðningsmanna Donald Trump Bandaríkjaforseta söfnuðust saman í höfuðborginni Washington í gær til þess að lýsa yfir stuðningi við hann. Erlent 15.11.2020 11:51
67 látin eftir öflugan fellibyl á Filippseyjum Fellibylurinn er sá þriðji sem gengur yfir á þremur vikum og hafa hátt í 26 þúsund hús orðið fyrir skemmdum vegna þessa. Erlent 15.11.2020 10:08
Eiga Ivanka og Jared afturkvæmt til New York? „[Forsetinn] var svo hræðilegur og ól á svo mikilli sundrung varðandi New York; sagði að borgin væri „martröð“ og að hún væri „tóm“ og búin að vera. Engin hérna mun gleyma því. Að snúa aftur eftir allt sem hann hefur sagt, það á ekki eftir að ganga.“ Erlent 14.11.2020 23:31
„Fjögur ár til viðbótar!“ Donald Trump Bandaríkjaforseti yfirgaf Hvíta húsið í morgun við lófatak, fagnaðaróp og flaut en hundruð stuðningsmanna hans söfnuðust saman í Washington í dag til að mótmæla meintum „stuldi“ á forsetakosningunum. Erlent 14.11.2020 21:40
Brenna heimili sín og flytja grafir Þorpsbúar í Nagorno-Karabakh kveiktu í húsunum sínum í gær og í dag en um helgina verður stjórn svæðisins sem um ræðir afhent Aserum eftir að hafa verið á höndum Armena í áratugi. Íbúar Kalbajar flýja nú svæðið eftir að deiluaðilar gerðu vopnahlé og ljóst var að Aserar tækju við stjórn á morgun. Erlent 14.11.2020 19:37