Erlent
Segir samsæriskenningar um sig vera klikkaðar og illar Auðjöfurinn Bill Gates segir magn „klikkaðra“ og „illra“ samsæriskenninga um hann hafa komið sér á óvart. Hann vonast til þess að kenningarnar, sem snúa margar að faraldri nýju kórónuveirunnar og bóluefnum, hverfi á endanum. Erlent 27.1.2021 10:16
Meira en 100 milljónir hafa greinst með kórónuveiruna Fjöldi þeirra sem greinst hefur smitaður af kórónuveirunni á heimsvísu er nú kominn yfir 100 milljónir manna, að því er fram kemur hjá Reuters fréttastofunni. Erlent 27.1.2021 08:16
Bregst við mótmælum með því að skipta út ellefu ráðherrum Þingið í Túnis samþykkti í gær nýja ráðherra í ríkisstjórn landsins, en forsætisráðherrann Hichem Mechichi vill með breytingunum bregðast við þeirri reiði sem blossað hefur upp í landinu og leitt til mikilla mótmæla síðustu daga. Erlent 27.1.2021 07:52
Hét því að setja aukinn kraft í bólusetningar Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því í gær að setja aukinn kraft í bólusetningu þar í landi þannig að flest allir Bandaríkjamenn verði búnir að fá bólusetningu gegn Covid-19 í lok sumars eða snemma í haust. Erlent 27.1.2021 07:08
Heltust úr bóluefnalestinni en rétta nú fram hjálparhönd Franska lyfjafyrirtækið Sanofi hyggst aðstoða lyfjafyrirtækið Pfizer við framleiðslu á hundrað milljón skömmtum af bóluefni þess síðarnefnda gegn kórónuveirunni. Fyrstu Pfizer-skammtarnir frá Sanofi eru þó ekki væntanlegir fyrr en í júlí. Erlent 26.1.2021 23:24
Aðeins fimm repúblikanar greiddu atkvæði á móti frávísun Afar ólíklegt verður að teljast að Donald Trump verði fundinn sekur í öldungadeild bandaríska þingsins þegar ákærur á hendur honum verða teknar fyrir. Meirihluti þingmanna repúblikana greiddu í dag atkvæði með tillögu um að vísa ákærunum frá. Erlent 26.1.2021 23:04
Johnson segist algjörlega miður sín Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segist bera alla ábyrgð á aðgerðum ríkisstjórnar sinnar gegn kórónuveirufaraldrinum í landinu. Stjórnvöld hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð í glímunni við faraldurinn. Erlent 26.1.2021 22:36
Gráíkornaplága í Bretlandi: Stjórnvöld vilja gefa þeim „pilluna“ Bresk stjórnvöld hafa lagt blessun sína yfir hugmyndir um að beita getnaðarvörnum til að hefta vöxt gráíkornastofnsins í landinu. Umhverfisráðherrann segir íkornategundina og aðrar aðfluttar tegundir árlega valda 1,8 milljarð punda tjóni á skóglendinu. Erlent 26.1.2021 21:44
Biden og Pútín ræddust við í síma: Ber ekki alveg saman um efnið Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi í dag í Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Talsmönnum forsetanna ber ekki fullkomlega saman um hvaða mál voru til umræðu en Washington Post segir Biden hafa tjáð Pútín að Bandaríkin myndu verja sig gegn „óvinveittum aðgerðum“ af hálfu Rússlands. Erlent 26.1.2021 21:06
Segja fréttir um takmarkaða virkni byggja á mistúlkun gagna Þýska heilbrigðisráðuneytið og AstraZeneca hafna fréttum þess efnis að bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn Covid-19 virki ekki eins og áður hafði verið talað um. Forsvarsmenn AstraZeneca segja fréttirnar „fullkomlega rangar“ en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða mistúlkun á gögnum. Erlent 26.1.2021 19:37
Óeirðirnar endurspegli ekki hug almennings Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga vegna hertra kórónuveirutakmarkana séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Erlent 26.1.2021 19:01
Ekki kynferðisofbeldi ef káfið er utanklæða Að káfa á einstakling utanklæða er ekki kynferðisofbeldi, samkvæmt niðurstöðu yfirréttar í Mumbai. Hvergi er kveðið á um það í indverskum lögum að káf sé aðeins kynferðisofbeldi ef hold snertir hold en dómurinn er fordæmisgefandi. Erlent 26.1.2021 18:33
Hundrað þúsund dánir í Bretlandi Rúmlega hundrað þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 í Bretlandi. Það er samkvæmt opinberum tölum en um 3,7 milljónir manna hafa smitast af nýju kórónuveirunni, sem veldur Covid-19. Erlent 26.1.2021 17:01
Mótmæli bænda urðu að óeirðum Þúsundir indverskra bænda lentu í átökum við lögreglu í Nýju Delí, höfuðborg landsins, í dag. Bændurnir hafa fjölmennt í borginni í nærri því tvo mánuði til að mótmæla nýjum lögum sem þeir segja að komi verulega niður á þeim en einn bóndi lét lífið í mótmælunum í dag. Erlent 26.1.2021 16:20
Minnst einn dáinn og miklar skemmdir vegna skýstróks í Alabama Minnst einn er látinn og tugir sagðir slasaðir eftir skýstrók sem gekk yfir Alabama í Bandaríkjunum í nótt. Skýstrókurinn olli miklum skemmdum í bænum Fultondale. Björgunarstarf stendur enn yfir. Erlent 26.1.2021 14:53
Hreyfing að komast á störf öldungadeildarinnar eftir margra daga stopp Leiðtogar öldungadeildar Bandaríkjaþings, Demókratinn Charles Schumer og Repúblikaninn Mitch McConnell, virðast ætla að komast að samkomulagi um það hvernig deila eigi völdum í öldungadeildinni þegar báðir flokkar eru með jafnmarga þingmenn. Erlent 26.1.2021 13:33
Forsætisráðherra Ítalíu búinn að segja af sér Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hefur sagt af sér embætti og er óljóst hvort að honum muni takast að setja saman nýja ríkisstjórn. Conte gekk á fund forsetans Sergio Mattarella í dag og tilkynnti um afsögn sína. Erlent 26.1.2021 12:45
Halda heræfingar og vara við köldu stríði Yfirvöld í Kína opinberuðu í morgun að til stæði að halda heræfingar í Suður-Kínahafi í vikunni. Það er í kjölfar þess að Bandaríkjamenn sigldu flugmóðurskipi og öðrum herskipum í gegnum hafsvæðið umdeilda sem Kínverjar gera tilkall til. Þá varar Xi Jinping, forseti Kína, við nýju köldu stríði. Erlent 26.1.2021 11:51
Spörkuð harkalega í jörðina og kærir lögreglu Rússnesk kona, sem lögregluþjónn sparkaði harkalega niður á mótmælum í St. Pétursborg á laugardaginn, ætlar að leggja fram kæru gegn lögregluþjóninum. Myndband af atvikinu þegar sparkað var í konuna var í mikilli dreifingu á netinu um helgina. Erlent 26.1.2021 09:32
Pompidou-safninu í París lokað í fjögur ár Pompidou-safninu í frönsku höfuðborginni París verður lokað í fjögur ár til að hægt verði að ráðast í nauðsynlegar endurbætur. Menningarmálaráðherra landsins segir þá leið að loka safninu alfarið bæði vera ódýrari lausn og þannig taki endurbæturnar líka skemmri tíma. Erlent 26.1.2021 08:43
Sautján milljónir dala úr þrotabúi og til fórnarlamba Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að sautján milljónir dala skuli greiddar í miskabætur til fórnarlamba kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sem sökuðu hann um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Upphæðin nemur 2,2 milljarðar íslenskra króna. Erlent 26.1.2021 07:37
Verstu óeirðir í Hollandi í fjörutíu ár Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Fjöldi mótmælenda hefur komið saman í hollenskum borgum til þess að mótmæla útgöngubanni sem yfirvöld hafa sett á til þess að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 26.1.2021 07:33
Afhentu öldungadeildinni ákæruna á hendur Trump Þingmenn úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings afhentu í gær öldungadeildarþingmönnum ákæruna á hendur Donald Trump, fyrrverandi forseta, sem samþykkt var í fulltrúadeildinni fyrir tveimur vikum, á meðan Trump var enn í embætti. Erlent 26.1.2021 06:38
Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca. Erlent 25.1.2021 23:44
Harriet Tubman verði andlit tuttugu dollara seðilsins sem fyrst Ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta hyggst leita leiða til að flýta ferlinu við að prenta peningaseðla með mynd af Harriet Tubman. Stjórn Donalds Trump, forvera hans í embætti, lét ákvörðun Baracks Obama þess efnis niður falla. Erlent 25.1.2021 23:09
Erfitt að segja til um hvenær útgöngubanni verður aflétt Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, segir margt benda til þess að baráttan við faraldurinn þar í landi sé að skila árangri en hann telur erfitt að spá fyrir um hvenær útgöngubanni verði aflétt. Aðgerðirnar virðist vera að virka en nú sé ekki rétti tímapunkturinn til að slaka á. Erlent 25.1.2021 22:28
Milljarða samkomulag í höfn um greiðslu bóta til minkabænda Samkomulag er í höfn milli dönsku ríkisstjórnarinnar og meirihluta flokka á þingi um greiðslu bóta vegna minkamálsins svokallaða. Samkomulagið tókst loksins í kvöld eftir ríflega tveggja mánaða viðræður og hljóðar það upp á 18,7 milljarða danskra króna, eða sem nemur tæpum 396 milljörðum íslenskra króna. Erlent 25.1.2021 21:46
Forsætisráðherra Ítalíu segir af sér á morgun en vonast til að mynda nýja stjórn Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hyggst segja af sér embætti á morgun. Conte vonast þó til þess að fá umboð frá forseta landsins til að mynda nýja og sterkari ríkisstjórn eftir að hann tapaði meirihluta í öldungadeild þingsins. Erlent 25.1.2021 20:15
Íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins Evrópusambandið er sagt íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins eftir að AstraZeneca greindi frá töfum í framleiðslu á föstudag. Búist var við hundrað milljónum skammta til aðildarríkja á fyrsta ársfjórðungi, en útlit er fyrir að aðeins helmingur þess skili sér á þeim tíma. Erlent 25.1.2021 20:14
Fellir úr gildi bann við transfólki í Bandaríkjaher Trans fólk fær nú aftur að gegna herþjónustu í Bandaríkjunum eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti felldi úr gildi bann sem Donald Trump tilkynnti sumarið 2017. Hvíta húsið greindi frá þessu í dag og sagði styrkleika þjóðarinnar felast í fjölbreytileikanum. Erlent 25.1.2021 18:10