Erlent
ISIS-brúður fær ekki að snúa aftur til Bretlands Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöður að Shamima Begum gekk til liðs við Íslamska ríkið þegar hún var fimmtán ára gömul, megi ekki snúa aftur til Bretlands til að berjast fyrir ríkisborgararétti sínum. Erlent 26.2.2021 21:46
Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi. Erlent 26.2.2021 15:46
Vilja sprengja þinghúsið og drepa þingmenn Starfandi yfirmaður lögreglu Bandaríkjaþings segir öfgamenn sem komu að árásinni á þinghúsið þann 6. janúar, hafa rætt sín á milli um að sprengja þinghúsið í loft upp og drepa eins marga þingmenn og þeir gætu. Það vilji þeir gera þegar Joe Biden flytur fyrstu stefnuræðu sína til þingsins. Erlent 26.2.2021 14:18
Ætlar að leiða leitina að þremenningunum: „Megi Allah vera með okkur“ „Á síðustu vikum hef ég gengið í gegnum eina mest krefjandi og trámatísku reynslu á ævinni. Ég vil ekki muna tíma örvæntingar og ótta. Ég vinn að því að græða sjálfan mig og freista þess að hjálpa fjölskyldunni minni að gera slíkt hið sama.“ Erlent 26.2.2021 12:45
Hundruðum skólastúlkna rænt í Nígeríu Vopnaðir menn hafa rænt nokkur hundruð skólastúlkum í norðvesturhluta Nígeríu. Það er önnur árás af þessu tagi en fyrir rétt rúmri viku síðan var fjölmörgum drengjum rænt úr heimavistarskóla á svæðinu. Erlent 26.2.2021 12:42
Skotárásin og rán á hundum Lady Gaga náðist á myndband Árásin á aðstoðarmann söngkonunnar Lady Gaga, sem var á gangi með hunda hennar, náðist á myndband. Tveir menn á hvítum bíl veittust að aðstoðarmanninum á miðvikudaginn og reyndu að ræna hundum söngkonunnar af honum. Erlent 26.2.2021 11:21
„Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ Erlent 26.2.2021 11:04
Kastaði börnum sínum út um glugga á fjórðu hæð Tyrknesk móðir bjargaði börnum sínum frá bruna í Istanbúl í vikunni með því að kasta þeim út um gluggann á íbúð þeirra á fjórðu hæð sex hæða húss. Erlent 26.2.2021 10:39
Yfirgáfu Norður-Kóreu á handknúnum járnbrautavagni Rússneskir erindrekar og fjölskyldur þeirra þurftu að nota handknúinn járnbrautarvagn til að ferðast frá Norður-Kóreu, þar sem landamærin eru alfarið lokuð vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 26.2.2021 10:02
Bandaríkjaher gerir loftárás í austurhluta Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gærkvöldi loftárásir á mannvirki við landamærastöð í Sýrlandi sem notuð er af fjölda vígasamtaka sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist um mannfall. Erlent 26.2.2021 08:01
Navalní fluttur milli fangelsa með leynd Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu hvar honum hefur verið haldið að undanförnu. Ekki liggur fyrir hvert hann hefur verið fluttur. Erlent 25.2.2021 23:30
Fjórir menn fundust látnir í vök Fjórir karlmenn drukknuðu í ísilögðu stöðuvatni skammt frá Sävsjö í suðurhluta Svíþjóðar í dag. Þeir voru á sjötugs- og áttræðisaldri. Erlent 25.2.2021 22:45
Fannst látinn sama dag og hann var ákærður fyrir mansal og kynferðisofbeldi John Geddert, fyrrverandi þjálfari bandaríska fimleikalandsliðsins, fannst látinn í Grand Ledge í Michigan í Bandaríkjunum. Hann er talinn hafa stytt sér aldur, en hann var fyrr í dag ákærður fyrir mansal, kynferðisofbeldi og fleira, eftir því New York Times greinir frá. Erlent 25.2.2021 21:15
Saksóknarar komnir með skattgögn Trumps Saksóknarar í Manhattan í New York eru komnir með skattskýrslur og önnur fjármálagögn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Það er eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði kröfu Trumps um að ekki mætti veita saksóknunum gögnin. Erlent 25.2.2021 17:19
Sendi teikningar af þinghúsi Þýskalands til rússnesks njósnara Þýskir alríkissaksóknarar hafa ákært þýskan ríkisborgara fyrir að hafa útvegað rússneskum manni, sem grunaður er um að vera njósnari, teikningar og önnur gögn um þinghús Þýskalands. Erlent 25.2.2021 16:20
Umfangsmiklar framkvæmdir við leynilega kjarnorkustöð í Ísrael Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við leynilega kjarnorkurannsóknarstöð í Ísrael. Gervihnattamyndir sýna að framkvæmdirnar fara fram nærri gömlum kjarnakljúfi sem Ísraelar notuðu til að framleiða kjarnorkuvopn sín, sem þeir hafa aldrei formlega opinberað. Erlent 25.2.2021 15:02
Aðstoðarmaður Lady Gaga skotinn og hundum hennar rænt Tveir menn réðust að aðstoðarmanni söngkonunnar Lady Gaga í Los Angeles í gærkvöldi og skutu hann einu sinni í bringuna. Því næst rændu mennirnir tveimur af þremur hundum söngkonunnar og flúðu af vettvangi. Erlent 25.2.2021 14:06
Þurfa að velja milli sjúklinga vegna súrefnisskorts Víða í Afríku og Suður-Ameríku glíma heilbrigðisstarfsmenn við súrefnisskort. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og læknar segja skortinn hafa verið fyrirsjáanlegan og að hann hafi leitt til óþarfa dauðsfalla. Erlent 25.2.2021 12:23
Kannast ekki við að erindrekar hafi verið þvingaðir til að gefa sýni úr endaþörmum þeirra Talsmaður utanríkisráðuneytis Kína segir rangt að bandarískir erindrekar þar í landi hafi verið skikkaðir í skimun fyrir Covid-19, þar sem sýni voru tekin úr endaþörmum þeirra. Erlent 25.2.2021 11:06
Nýtt afbrigði veirunnar breiðist hratt út í New York Nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur skotið upp kollinum í New York og breiðist nú hratt út í borginni. Stökkbreytingin veldur vísindamönnum nokkrum áhyggjum þar sem þeir óttast að hún veiki virkni bóluefna gegn veirunni. Erlent 25.2.2021 10:59
Herinn krefur forsætisráðherra Armeníu um afsögn Forsvarsmenn hers Armeníu hafa krafist þess að Nikol Pashinyan, forsætisráðherra ríkisins, og ríkisstjórn hans láti af völdum. Pashinyan segist líta á kröfuna sem tilraun til valdaráns og hvetur hann stuðningsmenn sína til að mótmæla á götum úti. Erlent 25.2.2021 09:58
Finnar lýsa yfir neyðarástandi og loka í þrjár vikur Stjórnvöld í Finnlandi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar í landinu. Sumar aðgerðir stjórnvalda taka gildi þegar í stað, en aðrar 8. mars. Munu aðgerðirnar gilda í þrjár vikur. Erlent 25.2.2021 09:12
Komst lífs af eftir fjórtán tíma volk í sjónum Sjómaður frá Litháen sem féll fyrir borð á skipi sínu í Kyrrahafi komst lífs af eftir fjórtán klukkustunda volk í sjónum án björgunarvestis. Erlent 25.2.2021 07:41
Bóluefni Janssen metið öruggt og með góða virkni Bandaríska lyfjaeftirlitið segir að bóluefnið frá Janssen sé öruggt í notkun og með góða virkni gegn kórónuveirunni. Eftirlitið hefur nú lokið rannsóknum sínum á efninu og er búist við því að það fái markaðsleyfi í Bandaríkjunum á allra næstu dögum. Erlent 25.2.2021 07:29
Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður. Erlent 24.2.2021 23:33
Port Elizabeth verður Gqeberha: Suður-Afríkubúar þræta um hinn nýja tungubrjót Suður-Afríkubúar deila nú um nafnabreytingar sem tekið hafa gildi. Á samfélagsmiðlum kýta menn um ákvörðunina sjálfa en ekki síður nýju nöfnin, sem sum eru sannkallaðir tungubrjótar fyrir þá sem ekki tala málið. Erlent 24.2.2021 23:27
Telur mögulega ekki þörf á grímum í sumar Mögulegt er að grímuskylda verði afnumin innandyra í Bretlandi yfir sumarmánuðina. Þetta kom fram í máli Jenny Harries, eins helsta heilbrigðismálaráðgjafa breskra stjórnvalda, á blaðamannafundi vegna kórónuveirufaraldursins í Bretlandi í dag. Erlent 24.2.2021 23:26
Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk. Erlent 24.2.2021 20:59
Herða takmarkanir í Svíþjóð og Noregi Norðmenn og Svíar kynntu hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar í dag. Erlent 24.2.2021 19:30
Sendiherra ESB skipað að yfirgefa Venesúela Ríkisstjórn Venesúela hefur skipað sendiherra Evrópusambandsins þar að yfirgefa landið. Það var gert í kjölfar þess að ESB beitti nítján embættismenn í Venesúela viðskiptaþvingunum. Erlent 24.2.2021 16:53