Erlent
Æfir yfir ímynduðum takmörkunum Bidens á kjötneyslu Repúblikanar hafa lýst yfir miklum áhyggjum undanfarna daga af því að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætli að banna fólki að borða hamborgara. Hann ætli að skera neyslu kjöts niður um 90 prósent fyrir árið 2030. Erlent 27.4.2021 09:06
Sænskir hægsjónvarpsáhorfendur fylgdust með fyrstu elgunum þvera fljótið Sænskir sjónvarpsáhorfendur fengu loks að sjá fyrstu elgina synda yfir Ångermanfljót í norðurhluta landsins í gær. Sænska ríkisútvarpið hefur síðustu ár verið með sjónvarpsútsendingu, svokallað hægsjónvarp, á vorin frá þeim stað þar sem elgirnir þvera alla jafna fljótið á leið sinni norður á bóginn. Erlent 27.4.2021 07:57
„Leyfið líkunum að hrannast upp í þúsundatali!“ Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sætir nú auknum þrýstingi eftir að breskir miðlar greindu frá því í gær að hann hefði sagt að hann vildi frekar sjá þúsundir líka hrannast upp en að grípa aftur til harðra sóttvarnaðgerða. Erlent 27.4.2021 07:37
Nálgast það að 200 þúsund manns hafi látist vegna Covid-19 Indverjar nálgast nú hraðbyri þann sorglega áfanga að þar hafi 200 þúsund manns látið lífið af völdum kórónuveirunnar, svo staðfest sé. Erlent 27.4.2021 07:09
Ætla að gefa 60 milljónir skammta af bóluefni AstraZeneca Bandarísk stjórnvöld hyggjast deila 60 milljón skömmtum af bóluefni AstraZeneca með öðrum ríkjum á næstu mánuðum. Bóluefninu verður dreift til annarra landa um leið og nægar byrgðir eru til af því að sögn Hvíta hússins. Erlent 26.4.2021 21:27
Koma Indverjum til aðstoðar Fjöldi ríkja kemur nú Indverjum til aðstoðar en kórónuveirufaraldurinn er í hæstu hæðum í þessu næstfjölmennasta landi heims. Erlent 26.4.2021 20:01
Nepomniachtchi og Carlsen tefla um heimsmeistaratitilinn í nóvember Rússneski stórmeistarinn Ian Nepomniachtchi sigraði í dag skákmót Alþjóðaskáksambandsins Candidate tournament og mun því mæta Norðmanninum og heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen í Dubai í nóvember næskomandi. Erlent 26.4.2021 18:52
Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu. Erlent 26.4.2021 15:45
ESB í mál við AstraZeneca Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagðist í dag hafa höfðað mál gegn lyfjaframleiðandanum AstraZeneca vegna vanefnda á samningum. Erlent 26.4.2021 15:01
Kremlverjar láta loka skrifstofum samtaka Navalní Rússnesk yfirvöld létu loka skrifstofu samtaka Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu á meðan beðið er úrskurðar dómstóls um hvort að samtökin verði skilgreind sem öfgasamtök og bönnuð í dag. Samtök Navalní berjast gegn spillingu í Rússlandi. Erlent 26.4.2021 14:04
35 ár frá sprengingunni í Tsjernobyl 35 ár eru liðin frá því að einn kjarnakljúfur orkuversins í Tsjernobyl bræddi úr sér og sprakk í loft upp. Þarna varð annað tveggja stærstu kjarnorkuslysa heimsins. 31 starfsmaður og slökkviliðsmaður dó í slysinu sjálfu og strax í kjölfar þess. Þar af flestir vegna mikillar geislavirkni. Erlent 26.4.2021 13:00
Bush sakar flokk sinn um einangrunarhyggju og andúð á innflytjendum Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum hefur gefið sig á vald einangrunarhyggju og verndarstefnu, að mati George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann hefur sérstakar áhyggjur af orðræðu flokkssystkina sinna í garð innflytjenda. Erlent 26.4.2021 11:04
Ingenuity flaug hærra og lengra en áður Tilraunir með þyrilvængjuna Ingenuity á reikistjörnunni Mars héldu áfram um helgina. Þá fór litla þyrlan í þriðju tilraunaflugferð sína og sveif hærra og lengra en hún hafði nokkru sinni gert áður. Verkfræðingar leiðangursins ætla Ingenuity enn djarfari ferðir á næstunni. Erlent 26.4.2021 09:25
Neita að ræða við uppreisnarmennina sem felldu forsetann Herráð Tjad mun ekki hefja viðræður við uppreisnarmennina sem felldu Idriss Deby, forseta landsins til þrjátíu ára. Eykur það líkurnar á því að uppreisnarmennirnir láti verða af hótunum sínum og ráðist á höfuðborg landsins, í samráði við aðra hópa sem eru ósáttir við að sonur Deby, Magamat, hafi tekið völdin í Tjad. Erlent 26.4.2021 08:42
Þúsundir mótmæltu ákvörðun um að rétta ekki yfir morðingja konu af gyðingaættum Þúsundir hafa mótmælt í París og víðar í Frakklandi þeirri ákvörðun dómstóls að rétta ekki yfir manni sem myrti 65 ára gamla konu. Dómstólar höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að um hatursglæp hefði verið að ræða en fórnarlambið var gyðingur. Erlent 26.4.2021 08:09
350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. Erlent 26.4.2021 07:30
Forsetinn segir ekki ljóst að Rússar beri ábyrgð á sprengingunni Milos Zeman, forseti Tékklands, sagði í dag að enn sé ekki víst hvort að rússneskir leyniþjónustumenn hafi borið ábyrgð á sprengingu sem varð í vopnageymslu landinu árið 2014. Hann sagði einnig möguleika á því að sprengingin hafi aðeins verið slys og ekki megi skjóta loku fyrir þá kenningu. Erlent 25.4.2021 14:02
Kafbáturinn fundinn, brotinn í að minnsta kosti þrjá búta Kafbátur indónesíska sjóhersins sem hvarf á miðvikudag með 53 manna áhöfn innanborðs er fundinn, brotinn í sundur í að minnsta kosti þrjá hluta. Indónesíski herinn greindi frá þessu á blaðamannafundi fyrr í dag en í gær hafði þegar fundist nokkuð brak úr kafbátnum auk persónulegra muna frá áhöfninni. Erlent 25.4.2021 13:32
Bernie segir fæðingarorlof á Íslandi aðeins 13 vikur Bernie Sanders, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, birti í gær færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir bandarísk stjórnvöld fyrir að hafa ekki tryggt foreldrum fæðingarorlof. Ber hann þar saman fæðingarorlofsréttindi foreldra í ýmsum löndum, þar á meðal Íslandi, og virðist ekki hafa kynnt sér málið nógu vel. Erlent 25.4.2021 11:52
Minnst 82 látin eftir eldsvoða á sjúkrahúsi fyrir Covid-19 sjúklinga Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu. Erlent 25.4.2021 10:43
Boða til viðræðna milli stríðandi fylkinga í Mjanmar Leiðtogar Sambands Suðaustur-Asíuríkja, Asean, komust í gær að niðurstöðu um áætlun til að binda endi á ofbeldið sem skekið hefur Mjanmar undanfarna mánuði. Þetta gerðu þeir í samráði við Min Aung Hlaing, æðsta herforingja Mjanmar. Erlent 25.4.2021 08:22
Biden viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Joe Biden Bandaríkjaforseti varð í gær fyrsti forseti Bandaríkjanna til þess að formlega lýsa fjöldamorðunum á Armenum árið 1915 sem þjóðarmorði. Morðin áttu sér stað í þá deyjandi Ottómanveldinu þar sem nú er Tyrkland. Erlent 25.4.2021 07:47
Stendur ekki við gefin loftslagsloforð Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, samþykkti í dag niðurskurð í fjárveitingum til umhverfismála þrátt fyrir að hafa lofað auknum fjármunum í málefnið á loftslagsráðstefnu í gær. Erlent 24.4.2021 15:19
Danir byrja að sparka sýrlenskum flóttamönnum úr landi Ríkisstjórn sósíaldemókrata í Danmörku er byrjuð að svipta suma sýrlenska flóttamenn sem fengu hæli vegna borgarastríðsins í heimalandinu landsvistarleyfi með þeim rökum að öruggt sé fyrir þá að snúa heim. Sérfræðingar vísa því mati danskra stjórnvalda á bug. Erlent 24.4.2021 15:01
Fundu brak úr kafbátnum og persónulega muni áhafnarinnar Kafbáturinn sem hvarf á miðvikudaginn með 53 manna áhöfn innanborðs úti fyrir ströndum Balí er sokkinn að sögn indónesíska sjóhersins. Erlent 24.4.2021 13:34
Segja faraldrinum lokið í Bretlandi en staðan aldrei verri á Indlandi Þriðja daginn í röð var slegið vafasamt met í fjölda dauðsfalla af völdum covid-19 á Indlandi. Á sama tíma hafa sérfræðingar lýst því yfir að faraldrinum sé lokið á Bretlandi. Erlent 24.4.2021 13:01
Herforinginn í fyrstu opinberu embættisferðinni eftir valdarán Ming Aung Hlaing, yfirherforingi mjanmarska hersins, flaug til Jakarta á Indónesíu í dag til að sækja neyðarleiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja, Asean, í Jakarta á Indónesíu í dag. Þetta er fyrsta opinbera embættisferð Hlaings eftir að herinn framdi valdarán í Mjanmar þann 1. febrúar síðastliðinn. Erlent 24.4.2021 09:37
Veik von um að kafbáturinn finnist í tæka tíð Dvínandi líkur eru taldar á því að kafbátur indónesíska sjóhersins, sem hvarf úti fyrir ströndum Balí, finnist í tæka tíð svo unnt sé að bjarga áhöfninni áður en súrefni verður á þrotum. 53 eru í áhöfninni en áætlað er að súrefni verði á þrotum nú að morgni laugardags að staðartíma. Erlent 24.4.2021 08:41
Bandarísk sendiráð mega aftur draga regnbogafánann að hún Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur heimilað sendiráðum og -skrifstofum um allan heim að draga regnbogafánann að hún til að styðja samfélag hinsegin fólks. Erlent 23.4.2021 23:18
„Algjört kerfishrun“: Kórónuveirufaraldurinn hömlulaus á Indlandi Hæstiréttur Indlands hefur kallað stöðu kórónuveirufaraldursins í landinu „neyðarástand“. En ástandið er verra, segir blaðamaður BBC. „Þetta er algjört kerfishrun,“ hefur hann eftir helsta veirufræðingi Indlands. Erlent 23.4.2021 22:43