Erlent
Hundrað dagar frá valdaráninu í Mjanmar Hundrað dagar eru liðnir frá því her Mjanmar tók þar völd. Það var gert á grundvelli grunsamlegra ásakana um kosningasvindl og var Aung San Suu Kyi, leiðtoga ríkisins komið frá völdum. Síðan þá hefur mikil óreiða og hundruð almennra borgara liggja í valnum. Erlent 11.5.2021 14:02
Gerir varnarmálaráðherrann að forsætisráðherra til bráðabirgða Rumen Radev, forseti Búlgaríu, hyggst skipa öryggis- og varnarmálaráðherra landsins, hinn 61 árs Stefan Yanev, forsætisráðráðherra til bráðabirgða, eða fram að þingkosningum sem fram fara í landinu í júlí. Erlent 11.5.2021 13:38
Hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang Verulega hefur dregið úr fólksfjölgun í Kína og hefur 1,4 milljarða manna samfélagið þar verið að eldast töluvert. Víðsvegar um Kína er verið að hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang-héraði. Þar er þrýst á konur til að eignast færri börn og þær jafnvel þvingaðar í ófrjósemisaðgerðir. Erlent 11.5.2021 11:26
Níu börn meðal hinna látnu á Gasa Her Ísraels hefur haldið loftárásum sínum á Gasa áfram í morgun en eldflaugum hefur sömuleiðis áfram verið skotið þaðan. Embættismenn á Gasa segja minnst 24 Palestínumenn, þar af níu börn, hafa látist í árásum Ísraels og rúmlega hundrað hafa særst. Erlent 11.5.2021 09:23
Enn greinast hundruð þúsunda á Indlandi: Indverska afbrigðið á gátlista WHO Síðasta sólahring greindust 329.942 með Covid-19 á Indlandi. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem fjöldi smita er undir 400 þúsund en þar á undan var hann yfir 400 þúsund fjóra daga í röð. Erlent 11.5.2021 08:59
Sjö börn í hópi látinna í skotárás í rússneskum skóla Átta manns - sjö nemendur og einn kennari - eru látnir eftir skotárás sem gerð var í skóla í borginni Kasan í Tatarstan í Rússlandi í morgun. Þá er 21 sagður hafa særst í árásinni. Erlent 11.5.2021 07:53
Grunaður morðingi lagði á flótta með tígrisdýr í bílnum Lögregla í Houston í Texas hefur handtekið 26 ára mann sem grunaður er um morð eftir að hann lagðist á flótta með tígrisdýr í bílnum sínum. Tígrisdýrsins er enn leitað. Erlent 11.5.2021 07:33
Kínverjum ekki fjölgað jafn hægt í marga áratugi Nýtt manntal í Kína sýnir að Kínverjum hefur ekki fjölgað jafn hægt síðan á sjöunda áratugi síðustu aldar, þegar Kínverjar voru að takast á við afleiðingar hungursneyðar. Erlent 11.5.2021 07:04
Heimila bólusetningu á börnum niður í tólf ára aldur Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt leyfi fyrir notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech gegn Covid-19 hjá börnum niður í tólf ára aldur. Erlent 10.5.2021 23:56
Minnst tuttugu látin í árásum Ísraelshers á Gasa Ísraelsher hefur gert loftárásir á Gasa-svæðið, þar sem minnst 20 hafa látist. Börn eru á meðal látinna. Erlent 10.5.2021 23:07
Afbrigðið sem geisar um Indland skilgreint sem alþjóðlegt áhyggjuefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur gefið út að það afbrigði kórónuveirunnar sem farið hefur eins og eldur í sinu um Indland sé áhyggjuefni á alþjóðavísu. Rannsóknir sýna að afbrigðið kunni að vera meira smitandi en upprunaleg afbrigði veirunnar. Erlent 10.5.2021 20:15
Líkum skolar upp á árbakka Ganges Minnst fjörutíu líkum hefur skolað upp á árbakka Ganges-árinnar í norðurhluta Indlands. Ekki er vitað hvaðan líkin koma en indverskir fjölmiðlar hafa leitt að því líkum að um fórnarlömb kórónuveirufaraldursins sé að ræða. Erlent 10.5.2021 16:42
Fjölda eldflauga skotið að Ísrael Tugum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og Jerúsalem í dag. Forsvarsmenn Hamas höfðu gefið yfirvöldum Ísraels frest til klukkan þrjú í dag, að íslenskum tíma, til að yfirgefa al-Aqsa moskuna á musterishæð. Erlent 10.5.2021 16:07
Afléttingar víða í Evrópu Slakað var á kórónuveirutakmörkunum víðs vegar um Evrópu bæði í dag og um helgina. Smitum hefur fækkað mikið í fjölda ríkja og sífellt fleiri eru bólusett. Erlent 10.5.2021 15:45
Ruslahaugur á sporbraut: Hættan á stórslysi eykst sífellt Spútnik, fyrsta gervihnetti jarðarbúa, var skotið á loft frá Sovétríkjunum árið 1957. Síðan þá hefur þúsundum gervihnatta og annarra muna verið skotið á braut um jörðu. Mikil óreiða ríkir á sporbraut og gífurlegt magn svokallaðs geimrusls hefur myndast þar. Erlent 10.5.2021 12:47
Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð Palestínskir heilbrigðisstarfsmenn segja minnst 278 Palestínumenn hafa særst í átökum við ísraelska lögregluþjóna við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í morgun. Þar af hafi minnst tugir þurft á sjúkrahús til aðhlynningar. Erlent 10.5.2021 10:04
Mótmælaskáld deyr eftir yfirheyrslur: Líkamsleifunum skilað án líffæra Eiginkona ljóðskáldsins Khet Thi segir hann hafa látist eftir að hafa verið handtekinn og færður til yfirheyrslu á laugardag. Líkamsleifum hans var skilað í kjölfarið en án innri líffæra. Erlent 10.5.2021 08:11
Tölvuárás gerð á stærstu eldsneytisleiðslu Bandaríkjanna Bandarísk yfirvöld gáfu í gær út neyðarheimild eftir að stærsta eldsneytisleiðsla landsins varð fyrir netárás. Um það bil 2,5 milljónir tunna af eldsneyti flæða um Colonial-leiðsluna daglega en það jafngildir um 45 prósent eldsneytisnotkunar austurstrandarinnar. Erlent 10.5.2021 07:34
Fjórir slasaðir eftir hnífaárás í matvöruverslun Að minnsta kosti fjórir eru alvarlega slasaðir eftir að maður gekk berserksgang í matvöruverslun á Suðureyju Nýja Sjálands í morgun. Þrír eru sagðir í alvarlegu ástandi og árásarmaðurinn virðist hafa verið handtekinn. Erlent 10.5.2021 06:55
Yfir þúsund flóttamenn til Ítalíu í dag Meira en eitt þúsund flóttamenn náðu landi á ítölsku eyjunni Lampedusa í dag. Erlent 9.5.2021 22:57
Kynhlutlaust mál bannað með lögum Menntamálaráðherra Frakka hefur lögfest við því blátt bann að í skólum landsins sé stuðst við kynhlutlaust mál í námsefni fyrir börn. Hann segir reglurnar of flóknar fyrir þau. Erlent 9.5.2021 22:01
Skilja að fjallgöngumenn á Everest vegna faraldursins Kínversk yfirvöld ætla að láta koma upp línu til að koma í veg fyrir að fjallgöngumenn sem ganga á Everest-fjall frá Tíbet annars vegar og Nepal hins vegar komist í snertingu hver við aðra. Kórónuveirusmit hafa komið upp á meðal göngumanna í grunnbúðum í Nepal að undanförnu. Erlent 9.5.2021 14:36
Khan náði endurkjöri í London Þrátt fyrir slakt gegni Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningunum á Bretlandi í gær náði Sadiq Khan endurkjöri sem borgarstjóri í London. Leiðtogi Verkamannaflokksins ætlar að hrista upp í forystusveit flokksins í ljósi úrslitanna annars staðar. Erlent 9.5.2021 14:02
Gleðskapur á götum úti þegar takmörkunum var aflétt Múgur og margmenni þyrptist út á götur spænskra borgara eftir að sex mánaða löngu neyðarástandi vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt þar á miðnætti. Veitingastaðir mega nú vera opnir lengur, ferðatakmörkunum á milli héraða hefur verið aflétt og slakað hefur verið á samkomutakmörkunum. Erlent 9.5.2021 09:45
Telja að kínverska eldflaugin hafi brunnið upp að mestu Geimvísindastofnun Kína fullyrðir að stærsta eldflaug hennar hafi komið inn í lofthjúp jarðar yfir Maldíveyjum í Indlandshafi og brunnið upp að mestu leyti í nótt. Sérfræðingar hafa sakað Kínverja um glannaskap með eldflaugina. Erlent 9.5.2021 08:25
Vilja ekki geyma brottvikna hælisleitendur á Grænlandi Ríkisstjórn Danmerkur hafnar tillögu Danska Þjóðarflokksins þess efnis að brottviknir hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi. Þetta kom fram í ræðu ráðherra málefna innflytjenda, sósíaldemókratans Mattias Tesfaye, í danska þinginu. Erlent 9.5.2021 07:27
Hluta Times Square lokað eftir skotárás Lögregla í New York-borg í Bandaríkjunum hefur lokað hluta Times Square, eins þekktasta kennileitis borgarinnar, eftir að tvær konur og fjögurra ára stúlka voru skotnar þar. Erlent 8.5.2021 23:16
Bættu við sig þingmanni og vantaði einn til að vera í meirihluta Skoski þjóðarflokkurinn vann sigur í þingkosningunum í Skotlandi sem fram fóru í gær, en endanleg úrslit kosninganna liggja nú fyrir. Flokkurinn bætti við sig einum þingmanni frá síðustu kosningum og er því með 64 þingmenn af 129. Erlent 8.5.2021 21:57
Stefnir á þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eftir kosningasigur Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hefur heitið því að ráðist verði í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi eftir þingkosningarnar sem fram fóru í gær. Hún segir engan vafa um að kosningarnar myndu skila þingmeirihluta sem væri fylgjandi sjálfstæði. Erlent 8.5.2021 18:32
Tugir látnir í sprengjuárás skammt frá skóla í Kabúl Að minnsta kosti fjörutíu eru látnir eftir sprengjuárás sem gerð var nærri skóla í vesturhluta afgönsku höfuðborgarinnar Kabúl í dag. Erlent 8.5.2021 15:29