Erlent
Biden og Pútín funda í Genf Joe Biden og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, munu funda í Genf í næsta mánuði. Verður það fyrsti fundur þeirra tveggja frá því Biden tók við embætti en spenna milli ríkjanna hefur aukist á undanförnum mánuðum. Erlent 25.5.2021 14:31
„Ég veit að dauðadómur bíður mín í Hvíta-Rússlandi“ Farþegar í flugvél RyanAir sem snúið var af leið og lent í Minsk í Hvíta-Rússlandi um helgina segja blaðamanninn og aðgerðasinnan Roman Protasevíts hafa augljóslega verið hræddan, þegar flugstjóri flugvélarinnar tilkynnti að henni yrði lent í Minsk. Erlent 25.5.2021 13:45
Blinken reynir að festa vopnahléið í sessi Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í Ísrael þar sem hann byrjar ferðalag sitt um Mið-Austurlönd. Ætlar hann sér að styrkja vopnahléið milli Ísraels og Hamas á Gasa-ströndinni í sessi. Erlent 25.5.2021 10:16
Sögðust hafa fundið metamfetamín í ösku dóttur hans Bandarískur maður hefur höfðað mál á hendur lögreglunni í borginni Springfield í Illinois fyrir að hafa lagt hald á ösku tveggja ára dóttur hans og sagt hana hafa innihaldið metamfetamín. Erlent 25.5.2021 08:57
Stefna á að leyfa öllum að bera skammbyssu án leyfis í Texas Ríkisþing Texas í Bandaríkjunum hefur samþykkt frumvarp um að leyfa öllum íbúum ríkisins, 21 árs og eldri, að bera skammbyssu, jafnvel þó viðkomandi hafi ekki gengist byssupróf og þá bakgrunnsskoðun sem því fylgir. Frumvarpið hefur verið sent til Greg Abbott, ríkisstjóra, sem hefur sagst ætla að skrifa undir það. Erlent 25.5.2021 08:54
Sjá fram á að þurfa að farga milljónum bóluefnaskammta Yfirvöld í Hong Kong gætu neyðst til að farga milljónum skammta af bóluefnum gegn Covid-19 þar sem illa gengur að fá íbúa til að þiggja bólusetningu. Erlent 25.5.2021 08:01
Banna hvítrússneskum flugfélögum að fljúga í evrópskri lofthelgi Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hafa bannað flugfélögum frá Hvíta-Rússlandi að fljúga í lofthelgi ESB eftir að þarlend stjórnvöld neyddu flugvél til að lenda í Minsk, þar sem einn farþega var handtekinn. Erlent 25.5.2021 06:54
Giftu sig í flugvél til að komast hjá sóttvarnareglum Indversk brúðhjón brugðu á það ráð að láta gefa sig saman í miðju flugi svo hægt væri að bjóða sem flestum gestum í brúðkaupið, án þess að þurfa að huga að gildandi samkomutakmörkunum. Erlent 24.5.2021 21:39
Telur að Protasevich gæti verið pyntaður í Hvíta-Rússlandi Fjölskylda hvítrússneska blaðamannsins Romans Protasevich óttast að hann kunni að vera pyntaður af stjórnvöldum í heimalandinu eftir að flugvél sem hann var farþegi í var þvinguð til lendingar í Hvíta-Rússlandi og hann tekinn höndum. Erlent 24.5.2021 21:24
Tvö börn létust í eldsvoða í Danmörku Tvö börn á aldrinum sjö og ellefu ára létust í eldsvoða í Danmörku í nótt þegar eldur kviknaði í íbúðahúsi í Hobro á norðanverðu Jótlandi. Erlent 24.5.2021 14:48
Hvorki fótbolti né messur vegna smita Engir fótboltaleikir munu fara fram í Færeyjum í dag og guðsþjónustum hefur verið aflýst vegna fjölda smita sem greindust í gær. Sextán manns greindust með veiruna og hafa ekki fleiri smit greinst á einum degi frá því í desember síðastliðnum. Erlent 24.5.2021 14:15
Dolfallinn yfir gosinu í 60 Minutes Fréttamaðurinn Bill Whitaker fjallar um eldgosið í Geldingadölum í nýju innslagi í 60 Minutes eftir að hafa gert sér sérstaka ferð til landsins til að kynna sér eldsumbrotin. Kunnugleg andlit eru í innslaginu, til að mynda okkar helstu jarð- og eldfjallafræðingar. Erlent 24.5.2021 13:17
Litháískum borgurum sagt að forða sér frá Hvíta-Rússlandi Stjórnvöld í Litháen hafa ráðlagt borgurum sínum að yfirgefa Hvíta-Rússland af öryggisástæðum eftir að farþegavél var þvinguð til að lenda í Minsk þar sem stjórnarandstæðingurinn Roman Protasevich var handtekinn. Erlent 24.5.2021 12:16
Sextán smit greindust í Færeyjum í gær Alls greindust sextán með kórónuveiruna innanlands í Færeyjum í gær. Fleiri smit hafa ekki greinst á einum degi frá því í desember síðastliðnum. Erlent 24.5.2021 09:32
Yfir 300 þúsund nú látist af völdum Covid-19 á Indlandi Yfir 300 þúsund hafa nú látist af völdum Covid-19 á Indlandi samkvæmt upplýsingum frá þarlendum heilbrigðisyfirvöldum. Sérfræðingar vara við því að raunverulegur fjöldi dauðsfalla geti verið mun hærri þar sem mörg þeirra séu ekki skráð með fullnægjandi hætti. Erlent 24.5.2021 08:52
Þúsundir á flótta vegna eldsumbrota í Austur-Kongó Stríður hraunstraumur rann inn í þorp skammt frá Nyiragongo-eldfjallinu í Austur-Kongó í nótt. Minnst fimmtán eru látin vegna hamfaranna og yfir fimm hundruð heimili eru brunnin. Erlent 23.5.2021 21:29
Tala látinna vegna kláfferjuslyssins hækkar Minnst fjórtán eru látin eftir að kláfferja hrapaði nærri Maggiore-vatni á norður-Ítalíu í dag. Erlent 23.5.2021 19:31
Farþegaflugvél þvinguð til að lenda í Minsk Roman Protasevich, blaðamaður og aktivisti frá Hvíta-Rússlandi er í haldi á flugvelli í Minsk eftir að flugvél sem hann var farþegi í var þvinguð til að lenda þar í dag Erlent 23.5.2021 15:55
Minnst átta dánir í kláfferjuslysi á Ítalíu Minnst átta eru dánir eftir að kláfferja hrapaði nærri Maggiore vatni á Norður-Ítalíu. Ítalskir miðlar segja að tvö börn hafi verið flutt á sjúkrahús af vettvangi. Ítalska fréttastofan Ansa greinir frá því að ellefu hafi verið um borð í ferjunni. Erlent 23.5.2021 12:31
Tuttugu maraþonhlauparar fórust í stormi Tuttugu og einn maraþonhlaupari fórst eftir að hafa lent í stormi í norðvesturhluta Kína. Hlaupararnir voru að hlaupa hundrað kílómetra últramaraþon í Gulársteinaskóginum í Gansu-héraðinu í gær. Erlent 23.5.2021 11:15
Bóluefni Pfizer og AstraZeneca virka vel gegn indverska afbrigðinu Bóluefni Pfizer og AstraZeneca, gegn Covid-19, virka vel gegn indverska afbrigði veirunnar. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar. Miklar áhyggjur hafa verið uppi um það hvort bóluefni muni virka gegn afbrigðinu og vekja niðurstöðurnar von í brjósti margra. Erlent 23.5.2021 09:46
Þúsundir flýja eldgos í Austur-Kongó Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Austur-Kongó eftir að eldgos byrjaði í Nyiragongo fjalli. Gosið er mjög kraftmikið og lýstu hrauntungurnar upp himininn fyrir ofan bæinn Goma í nótt. Erlent 23.5.2021 09:02
Myndir af týndu prinsessunni af Dubai taldar merki um lífsmark Mynd af þremur konum, sem birt var á tveimur Instagram-síðum í vikunni, hefur vakið mikla athygli en hún virðist sýna Latifu prinsessu af Dubai. Það sem merkilegt er við myndina er að hvorki hefur heyrst né sést til Latifu í marga mánuði. Erlent 23.5.2021 08:19
Fyrstu smit ársins hafa greinst í Færeyjum Fjórir hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni í Færeyjum og eru nú í einangrun. Þetta eru fyrstu staðfestu smitin þar í landi frá því að nýtt ár gekk í garð. Erlent 22.5.2021 13:43
„Ekki kyssa eða knúsa fugla“ Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, hvetur fólk til þess að kyssa ekki eða knúsa fiðurfé vegna salmonellufaraldurs sem gengur um Bandaríkin þessa stundina. Erlent 22.5.2021 10:02
Fangaverðir Epstein munu ekki sitja inni Fangaverðirnir tveir, sem áttu að vakta Jeffrey Epstein nóttina sem hann fyrirfór sér í fangaklefa í New York, hafa viðurkennd að þeir hafi falsað gögn um dauða hans. Þeir hafa komist að samkomulagi við alríkissaksóknara og munu því ekki afplána refsingu á bak við lás og slá. Erlent 22.5.2021 08:32
Tugir særðir eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem Ísraelskar öryggissveitir beittu gúmmíkúlum og blossasprengjum gegn Palestínumönnum fyrir utan al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í gær, aðeins hálfum degi eftir að vopnahléssamningar voru samþykktir bæði af Ísraels- og Palestínumönnum. Erlent 22.5.2021 07:48
Erfið enduruppbygging framundan á Gasa Vopnahlé tók gildi í morgun eftir ellefu daga átök Ísraelshers og Hamas-samtakanna. Rauði krossinn á Íslandi hefur safnað þrjátíu milljónum króna sem munu nýtast í mannúðaraðstoð á svæðinu. Erlent 21.5.2021 20:00
G7 ríkin ætla að hætta að fjármagna kolaorkuver Erindrekar G7 ríkjanna hafa komist að samkomulagi um aðgerðir til að draga úr hækkun hitastigs á jörðinni vegna manngerðra veðurfarsbreytinga. Aðgerðirnar taka mið af því að hitastig hækki ekki um meira en eina og hálfa gráðu. Erlent 21.5.2021 15:53
WHO segir dauðsföll vegna Covid mögulega þrisvar sinnum hærri en opinberar tölur segja Mögulegt er að mun fleiri hafi dáið vegna Covid-19 en opinberar tölur segja. Þetta segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og áætla þeir að raunverulegur fjöldi látinna sé allt að tvisvar til þrisvar sinnum en talið er. Erlent 21.5.2021 14:56