Erlent
Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu. Erlent 13.7.2021 13:34
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. Erlent 13.7.2021 11:38
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. Erlent 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. Erlent 13.7.2021 08:53
Herða takmarkanir í Frakklandi en bara fyrir óbólusetta Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kynnt hertar aðgerðir í landinu til að koma í veg fyrir aðra bylgju faraldursins. Þær munu einungis ná til þeirra sem ekki eru bólusettir. Hann ætlar einnig að skylda alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu til að fara í bólusetningu. Erlent 13.7.2021 08:30
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. Erlent 13.7.2021 07:43
Banna hraða tónlist til að draga úr útbreiðslu veirunnar Líkamsræktarstöðvum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og nágrenni hefur verið bannað að spila hraða tónlist í húsakynnum sínum, til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 13.7.2021 07:38
Eldur á Covid-deild varð tugum að bana Fleiri en fimmtíu eru látin eftir að eldur blossaði upp inni á einangrunardeild fyrir Covid-sjúklinga á spítala í íröksku borginni Naririya. Erlent 13.7.2021 06:57
Forseti Kúbu segir Bandaríkin ábyrg fyrir mótmælum Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun og sagði mótmælin sem hófust um helgina vera skipulagða aðför að kúbverskum stjórnvöldum. Þá sagði hann mótmælin studd af bandarískum yfirvöldum og keyrð áfram á samfélagsmiðlum. Erlent 12.7.2021 23:31
Biðst afsökunar á afléttingum Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur beðið þjóð sína afsökunar á dómgreindarbresti af sinni hálfu. Sá fólst í að aflétta sóttvarnatakmörkunum vegna Covid-19 of snemma. Erlent 12.7.2021 22:45
Þrengja verulega að útgerð rafskúta í Osló Osló er sú borg í Evrópu hvar flestar rafskútur eru á hvern íbúa. Nú stendur til að fækka þeim verulega. Erlent 12.7.2021 22:16
Vara við taugasjúkdómi sem aukaverkun af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar. Erlent 12.7.2021 18:52
Auglýsing fyrir bólusetningu vekur hörð viðbrögð Áströlsk auglýsing sem ætlað var að hvetja fólk til þess að skrá sig í bólusetningu hefur vakið hörð viðbrögð í áströlsku samfélagi. Mörgum hefur þótt auglýsingin vera sett fram sem hræðsluáróður og þá hefur tímasetning hennar verið gagnrýnd, með tilliti til framgangs bólusetningarátaksins í landinu, sem gengur hægt. Erlent 12.7.2021 13:00
Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir. Erlent 12.7.2021 12:32
Elding banaði ellefu á þekktum túristastað Ellefu hið minnsta létu lífið þegar eldingu laust niður í gamlan virkisturn á Indlandi í gær. Atvikið átti sér stað í Jaipur héraði í norðurhluta landsins en virkið er vinsæll áfangastaður túrista og turn þess þykir sérlega vel fallinn til að taka svokallaðar sjálfumyndir á símann sinn. Erlent 12.7.2021 08:10
Fjölmenn mótmæli á Kúbu Þúsundir þustu út á götur helstu borga og bæja á Kúbu um helgina til að mótmæla ríkisstjórn landsins og er talað um fjölmennustu mótmæli í kommúnistaríkinu í áraraðir. Fólkið hrópaði „niður með einræðisstjórnina“ og lögregla mætti mótmælendum með táragasi og kylfum. Erlent 12.7.2021 07:59
Kókaín fyrir hundruð milljóna á floti við Englandsstrendur Talsvert magn kókaíns fannst í pokum við strendur Austur-Sussex í Englandi. Talið er að söluandvirði efnisins sé rúmlega 340 milljónir íslenskra króna. Erlent 12.7.2021 07:42
Fólk yfirgefur heimili sín vegna skógareldanna Miklir skógareldar brenna nú í vesturhluta Bandaríkjanna þar sem enn ein hitabylgjan slær nú met á fjölmörgum svæðum. Erlent 12.7.2021 06:51
Segja lækni hafa staðið að baki morðinu á forsetanum Lögregluyfirvöld á Haítí segjast hafa handtekið einn af höfuðpaurum árásarinnar á forseta landsins sem skotinn var til bana í síðustu viku. Erlent 12.7.2021 06:43
Þungvopnuð á hóteli skömmu fyrir stjörnuleikinn Lögregluþjónar í Denver í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn fjóra á hóteli í borginni og lögðu hald á fjölda skotvopna og hundruð byssukúlna. Stjörnuleikur hafnaboltadeildar Bandaríkjanna fer fram í Denver á þriðjudaginn og er talið mögulegt að fólkið hafi ætlað að fremja fjöldamorð. Erlent 11.7.2021 23:09
Vörðust stórri sókn Talibana Stjórnarher Afganistans varðist áhlaupi vígamanna Talibana á Taluqan, höfuðborg héraðsins Takhar, sem liggur að landamærum Afganistans og Tadsíkistan. Talibanar hafa lagt undir sig mikið landsvæði í Afganistan að undanförnu en stjórnarherinn segir þá hafa orðið fyrir miklu mannfalli í þessari árás. Erlent 11.7.2021 20:04
Segjast hafa ætlað að handtaka forsetann Glæpagengi á Haítí og ofbeldi vegna baráttu þeirra um yfirráðasvæði hefur valdið miklum usla undanfarið. Þúsundir hafa þurft af flýja heimili sín vegna átaka og glæpamenn fara ránshendi um heimili og fyrirtæki. Erlent 11.7.2021 18:19
Reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn Allt að hundrað manns ruddu sér leið í gegnum vegatálma við Wembley-leikvanginum og reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn sjálfan. Úrslitaleikur Evrópumótsins milli Englands og Ítalíu fer fram á vellinum í kvöld en fólkið mun hafa reynt að ryðja sér leið inn eftir klukkan fimm í dag. Erlent 11.7.2021 18:01
Draumur Branson rættist: „Sautján ár af vinnu komu okkur hingað“ Breski kaupsýslumaðurinn, Richard Branson, náði komst rétt í þessu upp að jaðri lofthjúpsins í geimferju sinni Virgin Galactic. Hann lagði af stað í ævintýraförina klukkan 14:30 í dag frá Nýju-Mexíkó en ferðin tók einungis fimmtán mínútur. Erlent 11.7.2021 16:56
Branson skotið á loft í beinni: „Mig hefur langað út í geim síðan ég var lítill strákur“ Ævidraumur Richards Branson, bresks kaupsýslumanns, rætist innan skamms þegar geimferjan Virgin Galactic skýst á loft klukkan 14:30 með honum innanborðs. Erlent 11.7.2021 13:27
Lést eftir smit af tveimur afbrigðum veirunnar á sama tíma Níræð kona frá Belgíu, sem lést af völdum Covid-19, var smituð af bæði alpha- og beta-afbrigðum veirunnar á sama tíma. Erlent 11.7.2021 12:36
Ekkja forsetans lýsir atburðarásinni í fyrsta sinn Martine Moise, ekkja Jovenel Moise forseta Haítí, segir vígamenn hafa látið byssukúlum rigna yfir mann sinn á miðvikudagsmorgun og hann legið sundurskotinn í valnum. Erlent 11.7.2021 12:26
Gróðureldar magnast í Kaliforníu sökum hitabylgju Gróðureldar hafa stórmagnast í nokkrum af Vesturríkjum Bandaríkjanna sökum hitabylgju sem þar gengur nú yfir. Hitamet hafa verið slegin og búist er við áframhaldandi veðursveiflum. Erlent 11.7.2021 11:58
Umdeild stytta í Charlottesville fjarlægð Stytta af hershöfðingjanum Robert E. Lee sem stóð í Frelsisgarðinum í Charlottesville í Bandaríkjunum hefur nú verið fjarlægð eftir nokkurra ára deilur. Styttunni hefur verið mótmælt harðlega af þeim sem berjast gegn kynþáttahatri. Erlent 11.7.2021 10:20
Xi og Kim heita nánari samvinnu Xi Jinping og Kim Jong Un, ráðendur Kína og Norður-Kóreu, hafa heitið því að auka samvinnu ríkjanna. Það gerðu þeir í skilaboðum sem þeir sendu hvorum öðrum á dögunum. Í skilaboðum til Xi sagði Kim að náið samband Norður-Kóreu og Kína væri nauðsynlegt í ljósi óvinveittra erlendra afla. Erlent 10.7.2021 23:14