Erlent
YouTube setur Sky News í Ástralíu í bann Efnisveitan YouTube hefur sett fréttastofuna Sky News í Ástralíu í vikulangt bann. Efnisveitan segir fréttastofuna hafa brotið hegðunarreglur með því að breiða út rangar upplýsingar um Covid-19. Erlent 1.8.2021 17:25
Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins fer hörðum orðum um Pál Hreinsson Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, fer afar hörðum orðum um eftirmann sinn Pál Hreinsson í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Hann segir Pál hafa glatað sjálfstæði sínu, hafi hann einhvern tíma verið sjálfstæður yfir höfuð, því hann „starfar í hjáverkum fyrir íslenska forsætisráðuneytið“. Erlent 1.8.2021 08:45
„Mín vegna megið þið deyja hvenær sem er“ Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, sagði í ávarpi á miðvikudag að honum væri sama ef þeir sem afþakka bóluefni við Covid-19 deyi úr sjúkdóminum. Erlent 31.7.2021 23:31
Gróðureldar í Tyrklandi eru þeir heitustu í sögunni Gríðarlegir gróðureldar geisa í Tyrklandi um þessar mundir. Gögn úr gervitunglum benda til þess að hiti eldanna sé fjórum sinnum hærri en hefur nokkurn tímann mælst í landinu. Erlent 31.7.2021 20:31
Skattinum gert að afhenda skýrslur Trumps Dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjunum hefur skipað skattayfirvöldum að afhenda þingnefnd skattskýrslur Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa reynt að fá gögnin afhent um árabil í gegn um dómskerfið án árangurs. Erlent 31.7.2021 10:43
Amanda Knox segir Matt Damon vilja græða peninga á harmi þrunginni ævisögu hennar Hin bandaríska Amanda Knox heldur því fram að kvikmyndin Stillwater sé byggð á ævisögu hennar og að saga hennar hafi verið notuð, án hennar samþykkis, til að græða peninga. Erlent 30.7.2021 22:30
Versta bylgjan hafin síðan veiran reið yfir Wuhan Ný bylgja kórónuveirufaraldursins ríður nú yfir Kína og er hún sögð sú versta síðan fyrsta bylgja faraldursins reið yfir fyrir rúmu ári síðan. Nýjasta bylgjan hófst í borginni Nanjing og hefur breiðst út til fimm héraða auk Peking. Erlent 30.7.2021 21:09
Delta-afbrigðið jafn smitandi og hlaupabóla Delta-afbrigði kórónuveirunnar virðist vera meira smitandi en veirurnar sem valda venjulegu kvefi, árlegum flensum, ebólu og MERS-sjúkdómnum, að mati Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Talið er að delta-afbrigðið sé eins smitandi og hlaupabóla, sem er afar smitandi sjúkdómur. Erlent 30.7.2021 12:21
Vona að þriðji skammtur Pfizer hefti útbreiðsluna Ísraelsmenn munu byrja að gefa þriðja skammt af bóluefni Pfizer til allra þeirra sem eru sextíu ára og eldri næsta sunnudag. Vonast er til að með þriðja skammtinum náist enn betri vörn gegn delta-afbrigði veirunnar og þannig verði hægt að stöðva útbreiðslu faraldursins í landinu, sem hefur verið að ná sér aftur á strik. Erlent 30.7.2021 11:12
Útvíkka neyðarráðstafanir í Tókýó Stjórnvöld í Japan hafa ákveðið að útvíkka neyðarráðstafanir í Tókýó vegna kórónuveirufaraldursins til nágrannabyggðarlaga vegna mikillar fjölgunar smitaðra að undanförnu. Erlent 30.7.2021 10:28
Senda hermenn til að framfylgja útgöngubanni í Sydney Áströlsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda hundruð hermanna til Sydneyborgar til að aðstoða lögreglu við að framfylgja útgöngubanni í borginni vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 30.7.2021 09:54
Maltneska ríkið bar ábyrgð á dauða blaðamannsins Daphne Caruana Galizia Niðurstöður sjálfstæðrar rannsóknar á dauða maltnesku blaðakonunnar Daphne Caruana Galizia segja að maltnesk yfirvöld þurfi að taka ábyrgð á dauða hennar, eftir að hafa skapað menningu refsileysis í landinu. Erlent 29.7.2021 23:21
Kardináli ákærður fyrir kynferðisbrot gegn táningi Theodore McCarrick, fyrrverandi kardináli í Bandaríkjunum, hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á táningsdreng árið 1974. Hann er sakaður um að hafa meðal annars káfað á sextán ára dreng og brotið gegn honum á annan hátt í nokkur ár. Erlent 29.7.2021 22:44
Aflétta einangrunarskyldu fyrir Covid-smitaða Íbúar Alberta fylkis í Kanada sem greinast smitaðir af Covid-19 munu ekki þurfa að fara í einangrun eftir að þeir greinast. Þetta tilkynnti yfirmaður heilbrigðismála í fylkinu í gær en breytingarnar taka gildi eftir tæpar þrjár vikur. Erlent 29.7.2021 22:31
Hreyflar nýrrar einingar fóru óvænt í gang og færðu geimstöðina af réttri sporbraut Eftir að ný rússnesk eining var tengd við Alþjóðlegu geimstöðina í dag, kviknaði óvænt á hreyflum einingarinnar svo geimstöðin færðist úr stöðu sinni á braut um jörðu. Hreyflarnir voru í gangi í nokkrar mínútur og voru hreyflar annarra eininga geimstöðvarinnar notaðir til að vega upp á móti hinum. Erlent 29.7.2021 18:40
Gagnrýninn milljarðamæringur dæmdur í átján ára fangelsi Sun Dawu, kínverskur milljarðamæringur sem hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld þar í landi, hefur verið dæmdur í átján ára fangelsi fyrir ýmsar sakir, þar á meðal fyrir að „ýta undir ósætti“. Erlent 29.7.2021 16:08
Norskum áhrifavöldum skylt að tilgreina ef búið er að eiga við sjálfsmyndirnar Fyrr í mánuðinum voru lög samþykkt í Noregi sem skylda áhrifavalda til þess að merkja þær myndir sérstaklega sem búið er að eiga við. Lögin taka gildi í júlí á næsta ári og munu brot á þeim varða sekt. Erlent 29.7.2021 12:16
Netflix skyldar starfsfólk í bólusetningu Efnisveitan og framleiðandinn Netflix hyggst gera bólusetningu gegn Covid-19 að skyldu fyrir allt starfsfólk og tökulið sem kemur að framleiðslunni. Erlent 29.7.2021 10:06
Ísland einn besti staðurinn til að búa á komi til ragnaraka Nýja Sjáland, Ísland, Bretland, Tasmanía og Írland eru bestu staðirnir til að búa á ef siðmenningin myndi ríða til falls. Þessu er í það minnsta haldið fram í nýrri rannsókn sem breska blaðið Guardian fjallar um. Erlent 29.7.2021 07:50
Flóðbylgjuviðvörun í gildi eftir að jarðskjálfti að stærð 8,2 skók Alaska Jarðskjálfti að stærð 8,2 mældist við strendur Alaska í morgun, samkvæmt tölum frá bandarísku jarðvísindastofnuninni. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út fyrir hluta ríkisins. Erlent 29.7.2021 07:19
Vill blása til kosninga í Haítí sem fyrst Forsætisráðherra Haítí segist ætla að blása til kosninga eins fljótt og auðið er eftir að Jovenel Moise, forseti landsins, var myrtur fyrr í þessum mánuði. Erlent 28.7.2021 23:29
Þingmenn deila vegna grímuskyldu: „Hann er svo mikill fáviti“ Miklar deilur áttu sér stað í þinghúsi Bandaríkjanna í dag eftir að grímuskyldu var komið á í fulltrúadeildinni aftur, að ráðleggingu læknis þingsins. Repúblikanar hafa fordæmt ákvörðunina og margir þingmenn hafa neitað að vera með grímur, þó þeim hafi verið hótað sektum. Erlent 28.7.2021 23:06
Hafa áhyggjur af auknum árásum á almenna borgara Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fregnum af auknum árásum á almenna borgara í Afganistan. Sameinuðu þjóðirnar segja þær árásir hafa náð nýjum hæðum að undanförnu samhliða stórri sókn Talibana, sem hafa lagt undir sig stóran hluta landsins síðustu mánuði. Erlent 28.7.2021 22:31
Stjörnufræðingar námu ljós fyrir aftan svarthol Stjörnufræðingar hafa í fyrsta skipti numið ljós sem barst til þeirra hlémegins svarthols, á svæðinu fyrir aftan það. Uppgötvunin er talin staðfesting á lýsingum hinnar almennu afstæðiskenningu á því hvernig þyngdarkraftur sveigir ljós í kringum svarthol. Erlent 28.7.2021 22:30
Endurræsing símtækja geti gert símaþrjótum erfiðara fyrir Fulltrúi leyniþjónustunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur deilt ráði sem á að gera óprúttnum aðilum erfiðara fyrir brjótast inn í síma og stela upplýsingum. Ráðið er athyglisvert fyrir þær sakir að það gæti ekki verið einfaldara. Erlent 28.7.2021 17:02
Staðan í Bandaríkjunum varpar nýju ljósi á delta-afbrigðið Bandaríkjamenn standa nú frammi fyrir svipaðri stöðu og við Íslendingar; smituðum einstaklingum fjölgar ört og bíða menn í ofvæni eftir að sjá hversu alvarlegum veikindum delta-afbrigðið getur valdið hjá þeim sem eru bólusettir. Það ætti að koma í ljós á næstu dögum eða viku. Sérstaða Bandaríkjanna sýnir þó ágætlega hversu virk bóluefnin eru gegn afbrigðinu. Erlent 28.7.2021 14:21
Bólusettir frá Evrópu og Bandaríkjunum þurfi ekki að fara í sóttkví í Bretlandi Búist er við að stjórnvöld í Bretlandi muni tilkynna í dag að tíu daga sóttkvíarskylda verði afnumin fyrir bólusetta ferðamenn sem koma frá svæðum innan Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem eru á appelsínugulum lista. Erlent 28.7.2021 11:59
Lögregluþjónar þingsins segja sögu sína: „Þú munt deyja á hnjánum“ Yfirheyrslur hófust í dag fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings vegna árásarinnar á þinghúsið í Washington DC í byrjun árs. Lögregluþjónar sem voru á vakt þann dag voru þeir fyrstu sem mættu fyrir þingnefnd sem ætlað er að rannsaka árásina á þinghúsið þann dag. Erlent 27.7.2021 23:00
Reyndi að ganga til New York en rak á land í Flórída Heppnin var ekki með manni á fimmtugsaldri sem ætlaði að ganga til New York frá Flórída, yfir sjóinn, í heimagerðu hamstrahjóli sem útbúið var flothylkjum. Erlent 27.7.2021 21:56
Einn lést í sprengingu í Þýskalandi Minnst einn lést í sprengingu á iðnaðarasvæði fyrir efnavinnslufyrirtæki í Þýskalandi í morgun og tugir slösuðust. Fjögurra er enn saknað. Mikill eldur kviknaði við sprenginguna og mátti sjá mikinn reyk yfir borginni Leverkusen í morgun. Erlent 27.7.2021 17:52