Erlent
Skipsskaði í Eystrasalti Þrettán skipverjum var bjargað við illan leik,og eins er saknað, eftir að flutningaskip sökk í fárviðri á Eystrasalti í nótt. Fyrst valt skipið og komust sjómennirnir á kjöl, en ekki var viðlit að beita þyrlum við björgun þeirra vegna óveðurs. Erlent 2.11.2006 08:45
Bókunum á ferðum til Íslands fækkar Breskum ferðamönnum á leið til Íslands á vegum ferðaskrifstofunnar Discover the World hefur fækkað um allt að 25% síðan hvalveiðar hófust. Þetta kemur fram á vefsíðu enska dagblaðsins Times í morgun. Erlent 2.11.2006 08:30
Nýjar árásir á Gaza-strönd Að minnsta kosti sex Palestínumenn og einn Ísraeli týndu lífi í árás á Gaza-strönd snemma í gærmorgun. Hezbollah-samtökin segja viðræður hafnar um fangaskipti fyrir milligöngu Kofi Annans. Erlent 2.11.2006 06:45
Aðalræðisskrifstofa í Þórshöfn Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær, eftir að um málið náðist samkomulag við danska og færeyska ráðamenn, að ríkisstjórn Íslands hefði ákveðið að opna aðalræðisskrifstofu í Færeyjum bráðlega. Erlent 2.11.2006 06:30
Rannveig móðgar Færeyinga Jógvan á Lakjuni, þingmaður íhaldsmanna á færeyska lögþinginu og samstarfsráðherra Norðurlanda í færeysku landsstjórninni, sakaði Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar, í gær um að hafa móðgað færeysku þjóðina með framgöngu sinni í umræðu á Norðurlandaráðsþingi um réttindi samkynhneigðra í Færeyjum. Erlent 2.11.2006 06:15
Áframhaldandi einangrun Fimm menn, sem handteknir voru í byrjun september í Óðinsvéum í Danmörku, grunaðir um að skipuleggja stórfelld hryðjuverk, hafa verið dæmdir í áframhaldandi fjögurra vikna einangrun. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken. Erlent 2.11.2006 06:00
Óheppilegur brandari Öldungadeildarþingmaðurinn John Kerry baðst afsökunar í gær á „misheppnuðum brandara“ um Íraksstefnu Bush Bandaríkjaforseta. Kerry hafði sagt unglingum í skóla sem hann heimsótti að þeir skyldu stunda nám sitt af kappi, annars ættu þeir á hættu að „festast í Írak“. Erlent 2.11.2006 05:45
Borpallur og áhöfn í hættu Norski olíuborpallurinn Bredford Dolphin var á reki í Norðursjó í gær með 75 manns innanborðs í miklu roki og öldugangi. Dráttarbátur var með borpallinn í eftirdragi þegar togvírarnir slitnuðu á þriðjudaginn, en veður var þá afar slæmt. Draga átti pallinn frá Noregi til Póllands vegna viðhalds og endurnýjunar. Erlent 2.11.2006 05:30
Finnar fá menningarmálin Í ljósi þess hve Finnum þótti freklega framhjá sér gengið er ákveðið var að Halldór Ásgrímsson yrði næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, en ekki finnski ráðherrann Jan Erik Enestam, kom það ekki á óvart þegar það fréttist í gær að ákveðið hefði verið að ný norræn menningarmálaskrifstofa, „KulturKontakt Nord“, yrði staðsett í Finnlandi. Erlent 2.11.2006 05:00
Rafmagnsleysi í aftakaveðri Stórhríð olli rafmagnsleysi á fimmtíu þúsund heimilum í Svíþjóð í gærmorgun, þegar vindhviður brutu niður rafmagnsstaura. Erlent 2.11.2006 04:45
Hverfandi í Bretlandi Kynbundinn launamunur fer minnkandi í Bretlandi og meðal yngri kynslóða er hans lítt vart, kemur fram í frétt breska blaðsins Financial Times. Erlent 2.11.2006 04:30
Rússneska mafían og ölgróði Rússneska mafían hefur tögl og hagldir í ölgeiranum í Rússlandi og Ekstrablaðið segir það furðu sæta að Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson hafi sloppið þaðan auðugir menn. Erlent 2.11.2006 03:45
Fleiri NATO-lönd fái afnot af Keflavíkurflugvelli Utanríkisráðherrar Norðurlandanna ræddu um breytta stöðu öryggismála Íslands á fundi í Kaupmannahöfn. Norðmenn og Danir segjast reiðubúnir að leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi í lögsögu Íslands. Erlent 2.11.2006 03:30
Kerry biðst afsökunar John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata í Massachusetts, lét í kvöld undan þrýstingi og bað hermenn í Írak afsökunar, sem og fjölskyldur þeirra og nákomna. Hann sagðist harma það að orð sín hefðu verið mistúlkuð, hann hefði ekki viljað særa neinn. Repúblikanar hafa gert sér mat úr orðum hans og er talið að þetta gæti jafnvel haft áhrif á kosningaúrslit. Erlent 1.11.2006 23:27
Guðfaðir korsísku mafíunnar látinn í bílslysi Jean-Baptiste Colonna, "hinn eini sanni guðfaðir korsísku mafíunnar" samkvæmt rannsóknarskýrslu franska þingsins, lést í bílslysi á Korsíku í kvöld. Sterkur grunur lék á að hann tengdist heróínmsmyglhringnum French connection sem smyglaði gríðarlegu magni af heróíni til Bandaríkjanna á árunum 1937-1973 en hann var sýknaður eftir áfrýjun. Erlent 1.11.2006 22:59
260 þúsund tonn af olíu gætu lekið í Eystrasaltið Flutningaskipið Finnbirch hafði fulla tanka, samtals um 260 þúsund tonn af olíu þegar það sökk í aftakaveðri í kvöld á milli eyjanna Eylands og Gotlands. Vaktstjóri hjá sænsku strandgæslunni segir engin merki um það enn að olían sé farin að leka en segir að möguleikinn sé alltaf til staðar. Hvöss norðnorðaustanátt er enn á slysstaðnum og eins er enn saknað. Erlent 1.11.2006 22:43
Líbanskur klerkur segir Íran stjórna Líbanon í gegnum Hisbollah Einn æðsti klerkur súnnímúslima, Mohammad Ali Jouzou, mufti í fjallahéraðinu Mt Lebanon, gagnrýnir Hisbollah-hreyfingu sjíamúslima fyrir að þjóna hagsmunum Írans og Sýrlands. "Öll afrek sem Hisbollah montar sig af eru verk Persa sem ekki þjóna aröbum á nokkurn hátt," sagði Jouzou í ræðu í dag. Frá þessu er greint í líbanska dagblaðinu Daily star. Erlent 1.11.2006 21:53
Tveggja enn saknað eftir skipsskaða í Eystrasalti Flutningaskipið Finnbirch er horfið í hafið við sænsku eyna Gotland eftir að hafa marað í hálfu kafi síðan um hálfsjö-leytið að íslenskum tíma. 4-5 metra ölduhæð og kafaldsbylur hafa hamlað björgunarstörfum en 12 af 14 manna áhöfn hefur þó verið bjargað um borð í þyrlu. Þyrlur og nærstödd skip leita enn að þeim tveimur sem saknað er. Erlent 1.11.2006 21:40
Forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar fær aukin völd Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag að veita forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar til þess að hann geti stýrt landinu farsællega til kosninga á næsta ári. Forseti landsins, Laurent Gbagbo, er þar með sviptur nær öllum völdum. Erlent 1.11.2006 21:38
Kerry iðrast klaufalegs brandara John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata, sagðist í sjónvarpsviðtali iðrast þess að hafa sagt klaufalegan brandara um hermenn í Írak. Hann neitar hins vegar að biðja hermenn í Írak formlegrar afsökunar og segir skeytið hafi átt að beinast gegn repúblikönum og stjórnarháttum þeirra. Erlent 1.11.2006 21:26
Marokkómaður átti verðlaunaskopmynd í helfararkeppni Marokkómaðurinn Abdellah Derkaoui fór með sigur af hólmi í teiknimyndasamkeppni íranska dagblaðsins Hamshahri um bestu helfararskopmyndina. Að sögn skipuleggjenda keppninnar bárust 1.193 myndir í keppnina frá 63 löndum. Abdellah fékk í sigurlaun ríflega 800 þúsund íslenskra króna. Frakki og Brasilíumaður skiptu með sér 540 þúsundum fyrir annað sætið. Erlent 1.11.2006 20:30
Búið að bjarga 9 af 14 eftir skipsskaða við Gotland Tvær þyrlur hafa bjargað níu manns úr sjónum eftir að flutningaskip fór á hliðina skammt frá sænsku eyjunum Eylandi og Gotlandi í aftakaveðri. Alls voru 14 manns í áhöfn skipsins, 4 Svíar og 10 Filippseyingar. Mikil ölduhæð og blindbylur gera allt björgunarstarf ákaflega erfitt. Erlent 1.11.2006 20:26
Bush vill Rumsfeld áfram og tafarlausar viðræður við N-Kóreu George Bush, forseti Bandaríkjanna, staðfesti traust sitt á Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra í ræðu í dag. Mikill þrýstingur hefur verið á Rumsfeld að segja af sér vegna Íraksmála. Þá sagðist Bush vilja sjá viðræður við Norður-Kóreumenn halda áfram eins fljótt og auðið væri. Erlent 1.11.2006 19:42
Friðarviðræðum frestað í Sómalíu Friðarviðræðum í Sómalíu hefur verið frestað um sinn en sáttasemjarar hvetja stríðandi aðila til að sýna biðlund og þolinmæði. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar og íslamskra uppreisnarmanna mættu ekki til sáttafundar og dró það nokkuð úr bjartsýni á að friðarsamkomulag geti náðst. Erlent 1.11.2006 19:00
Óveður í Evrópu 22 menn hafa látist í miklum flóðum í suðaustanverðu Tyrklandi undanfarinn sólarhring. Þá rak norskan olíuborpall stjórnlaust í Norðursjó í fárviðri sem gekk yfir norðanverða Evrópu í nótt. Erlent 1.11.2006 18:30
Bandaríkjamenn óttast að ríkisstjórn Líbanons verði steypt Yfirvöld í Bandaríkjunum trúa því að Sýrland, Íran og Hisbollah séu að reyna að kollvarpa líbönsku ríkisstjórninni sem Fouad Siniora, forsætisráðherra, fer fyrir. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins, sagði Sýrlendinga beita sér að þessu marki til að koma í veg fyrir rannsókn sérstaks dómstóls á máli þeirra sem sakaðir eru um að hafa myrt Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Erlent 1.11.2006 18:19
De Beers vill útrýma blóðdemöntum Demantarisinn De Beers óttast að frumsýning kvikmyndarinnar "Blóðdemanturinn" með Leonardo DiCaprio hafi neikvæð áhrif á gimsteinasölu og hvetur því til áhrifaríkari herferðar gegn svokölluðum átakademöntum eða blóðdemöntum sem uppreisnarmenn og vígahópar í mörgum Afríkuríkjum selja á svörtum markaði til að fjármagna áframhaldandi átök. Erlent 1.11.2006 17:58
Demókratar leiða í skoðanakönnunum Skoðanakannanir sem Reuters skýrði frá í dag sýna að demókratar í Bandaríkjunum eru með meiri stuðning en Repúblikanar í 12 af 15 lykilsætum í komandi þingkosningum. Erlent 1.11.2006 12:10
Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifa undir friðarsamkomulag Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifuðu undir nýtt friðarsamkomulag í morgun. Vonast er til þess að það eigi eftir að koma skriði á viðræður sem er ætlað að binda endi á eina lengstu og hrottalegustu borgarastyrjöld í Afríku. Erlent 1.11.2006 11:50
Varnarmálaráðherra Rússlands líklegur arftaki Pútíns Rússneski varnarmálaráðherrann, Sergei Ivanov, neitaði í morgun að svara spurningum um hvort að hann væri líklegur til þess að taka við af Pútin Rússlandsforseta þegar hann leggur niður völd árið 2008. Erlent 1.11.2006 11:14