Erlent
Morðvopn Palme mögulega fundið Sænska lögreglan rannsakar nú byssu sem grunur leikur á að hafi verið notuð til að myrða Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, árið 1986. Það voru kafarar á vegum sænska blaðsins Expressen sem fundu byssuna í vatni í Dalarna og afhentu lögreglu. Erlent 21.11.2006 19:12
Sýrlendingar neita sök Pierre Gemayel, iðnaðarráðherra Líbanons og einn leiðtoga kristinna, var skotinn til bana í bíl sínum í Beirút í dag. Bandamenn hans fullyrða að Sýrlendingar standi á bak við morðið en stjórnvöld í Damaskus vísa því á bug. Erlent 21.11.2006 18:56
Páfinn að gefa út bók um Jesú Benedikt Páfi hefur ákveðið að gefa út bók um ævi Jesú Krists. Upphaflega ætlaði hann sér að gefa út eina stóra bók en þar sem hann er ekki viss um að hann muni hafa orku og þrek til þess að klára hana ákvað hann að gefa fyrstu tíu kaflana út sem fyrstu bókina í ritröð um Jesú Krist. Erlent 21.11.2006 18:28
Jafnrétti kynjanna eykst á Íslandi Samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum er Ísland í 4. sæti yfir þjóðir þar sem jafnrétti kynjanna er komið hvað lengst á veg. Svíþjóð skipar efsta sætið, Noregur annað sætið, Finnland það þriðja og Íslendingar það fjórða. Erlent 21.11.2006 17:46
Vefurinn um Litvinenko flækist enn Ítalskur öryggissérfræðingur að nafni Mario Scaramella hélt fréttamannafund í dag þar sem hann viðurkenndi að hafa verið maðurinn sem Alexander Litvinenko hitti á veitingastað skömmu áður en hann veiktist. Scaramella sagðist ekki hafa etið á veitingastaðnum. Erlent 21.11.2006 17:29
Buj Dubai gæt orðið hærri en Esjan Bygging Burj Dubai við Persaflóann, hæsta skýjakljúfs heims, gengur samkvæmt áætlun. Reistar hafa verið 84 hæðir og byggingin er orðin 302 metra há. Áætlað er að smíðinni ljúki 2009. Ef marka má nýlega grein eftir einn af undirtverktökum við bygginguna gæti Burj Dubai orðið 940 metra hár og allt að 195 hæða. Til samanburðar er Esjan 914 metra há (sjá mynd). Erlent 21.11.2006 17:27
Leikstjórinn Robert Altman allur Bandarískir leikstjórinn Robert Altman lést í gærkvöld á sjúkrahúsi í Los Angeles 81 árs að aldri. Frá þessu greindi framleiðslufyrirtæki hans í dag. Altman skipar sér á bekk með fremstu leikstjórum síðustu aldar. Meðal mynda sem hann leikstýrði voru Leikmaðurinn, Nashville og Gosford Park auk MASH, eða Spítalalífs, en þættir með sama nafni eru Íslendingum að góðu kunnir. Erlent 21.11.2006 17:00
Sögulegir friðarsamningar í Nepal Stjórnvöld í Nepal skrifuðu í dag undir friðarsamninga við skæruliða maóista sem marka eiga endalok tíu ára borgarastyrjarldar í landinu. Samkvæmt samningnum munu maóistar fá aðild að bráðabirgðaríkisstjórn sem skipuð verður í landinu og hafa þeir því ekki lengur stöðu uppreisnarmanna. Erlent 21.11.2006 16:46
Hugsanlegt að Litvinenko hafi verið byrlað geislavirkt eitur Hugsanlegt er að Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB og rússnesku leyniþjónustunni, hafi verið byrlað geislavirkt eitur. Breska ríkisútvarpið hefur eftir eiturefnasérfræðingi að sjúkdómseinkenni Litvinenko bendi til þess að honum hafi ekki verið byrlað hundrað prósent hreint talíum heldur hafi það hugsanlega verið geislavirkt. Erlent 21.11.2006 15:51
Segir Sýrlendinga standa á bak við morðið á Gemayel Saad Hariri, þingforseti í Líbanon og sonur Rafiks Hairis, sem myrtur var í Beirút fyrir tæpum tveimur árum, sakar sýrlensk stjórnvöld um að standa á bak við morðið á Pierre Gemayel, iðnaðarráðherra Líbanons. Byssumenn skutu Gemayel til bana í árás á bílalest hans í úthverfi kristinna manna í Beirút fyrr í dag. Erlent 21.11.2006 15:34
Iðnaðarráðherra Líbanons myrtur í Beirút Iðnaðarráðherra Líbanons, Pierre Gemayel, var myrtur í höfuðborginni Beirút í dag. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir talsmönnum öryggismála í landinu. Byssumenn munu hafa skotið á bílalest ráðherrans sem var á ferð um Sin el-Fil hverfið í Beirút í dag. Erlent 21.11.2006 14:23
40% landnemabyggða Ísraela á einkalandi Palestínumanna Rúmlega 40% landnámsbyggða gyðinga í Palestínu eru á einkalandi Palestínumanna, sem oft hefur verið lýst ríkisland með vafasömum aðferðum. Þetta eru aðalatriðin í skýrslu mannréttindasamtakanna Peace now sem byggir á rannsókn þeirra á eignarhaldi landnemabyggðanna. Erlent 21.11.2006 12:45
Assad Sýrlandsforseta boðið til viðræðna í Teheran Íranar hafa boðið forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, til viðræðna í Teheran, þar sem hann getur tekið þátt í viðræðum íranskra og íraskra stjórnmálamanna. Jalal Talabani, forseti Íraks, er á leið til Teheran um helgina til langþráðra viðræðna við Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans. Erlent 21.11.2006 12:38
Framboð af fiski lítið vegna veðurs Framboð af fiski á fiskmörkuðum í Hull og Grimsby á Englandi var í lágmarki í vikubyrjun vegna þess að flutningaskip sem koma átti með fiskinn frá Íslandi tafðist vegna veðurofsans á miðunum undanfarna daga. Þetta er í annað skiptið í mánuðinum sem þetta gerist. Vefmiðill Fiskifrétta, www.skip.is, greinir frá þessu. Erlent 21.11.2006 11:28
Helmingur framhaldsskólanema í verkfall í Danmörku Liðlega helmingur framhaldsskólanema í Danmörku fer í verkfall í dag, að því er Jótlandspósturinn greinir frá, og víðtæk mótmæli eru skipulögð í Kaupmannahöfn, Óðinsvéum, Árósum og fleiri stórum bæjum í Danmörku. Slagorðaköll og mótmælaspjöld munu setja svip sinn á bæina þegar nemendurnir yfirgefa kennslustofurnar og halda út á göturnar til að mótmæla fjársvelti framhaldsskólanna. Erlent 21.11.2006 10:10
Eggert kominnn á Upton Park Eggert Magnússon kom nú fyrir stundu á Upton Park, heimavöll West Ham United, og skoðaði hann ásamt Alan Pardew, knattspyrnustjóra félagins. Þeir gengu svo út á grasið og fengu báðir trefla með merki og nafni liðsins og leyfðu ljósmyndurum að taka myndir af tímamótunum. Erlent 21.11.2006 10:08
N-Kórea aftur að samningaborðinu um miðjan desember Aðalsamningamaður Bandaríkjamanna í viðræðunum við Norður-Kóreu telur að viðræður við Norður-Kóreu við fimm önnur ríki vegna kjarnorkuvígbúnaðar landsins gætu hafist um miðjan desember en lagði jafnframt áherslu á að viðræðurnar yrðu vandlega undirbúnar. Norður-Kórea samþykkti í síðasta mánuði að snúa aftur að samningaborðinu eftir að hafa sniðgengið viðræðurnar í liðlega eitt ár. Erlent 21.11.2006 09:46
Ciampino-flugvelli í Róm lokað vegna sprengjuhótunar Allri flugumferð var beint frá Ciampino-flugvelli í morgun eftir nafnlaust símtal þar sem tilkynnt var um sprengju um borð í vöruflutningavél, samkvæmt tilkynningu frá flugvallaryfirvöldum. Flestum flugvélum var beint til stærri flugvallarins sem oft er nefndur eftir Leonardo da Vinci. Erlent 21.11.2006 09:29
Pardew ánægður með kaup Eggerts á West Ham Alan Pardrew, knattspyrnustjóri West Ham, er mjög ánægður með að kaup Eggerts Magnússonar á liðinu séu í höfn. Í viðtali við NFS sagði hann að honum lítist vel á Eggert og þær fyrirætlanir sem hann hefur fyrir liðið. Hann segir gott að nú sé á hreinu hver kaupi liðið, tímarnir hafi verið óvissir fyrir liðið. Erlent 21.11.2006 09:11
Írak og Sýrland taka upp stjórnmálasamband að nýju Írak og Sýrland ætla að taka upp stjórnmálasamband á ný, nærri aldarfjórðungi eftir að því var slitið. Utanríkisráðherrar landanna skrifuðu undir yfirlýsingu þessa efnis í dag. Írösk stjórnvöld eru mjög ánægð með þessa þróun og telja að þetta sé skref í rétta átt til þess að draga úr flæði skæruliða yfir landamærin frá Sýrlandi. Erlent 21.11.2006 08:42
Flóttamannasmygl á Eyrarsundsbrúnni Tveir menn voru handteknir í nótt á Eyrarsundsbrúnni milli Danmerkur og Svíþjóðar fyrir að reyna að smygla 14 Írökum til Svíþjóðar. Bíll þeirra var stöðvaður við komuna til Malmö og sögðust Írakarnir þá hyggjast sækja um pólitískt hæli í Svíþjóð. Írakarnir voru ekki í felum, heldur sátu allir í mestu makindum í smárútunni. Erlent 21.11.2006 08:30
Berlusconi ætlar ekki að stýra ríkisstjórn að nýju Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, sagði í dag að hann myndi ekki leiða ríkisstjórn að nýju þó að flokkur hans komist til valda á ný, sem hann þó efast ekki um að muni gerast. Hann sagðist heldur ekki ætla að bjóða sig fram til forseta. Þetta birtist í litlu dagblaði á Ítalíu. Berlusconi fer fyrir rétt í dag í Mílanó vegna ákæru fyrir skattsvik og bókhaldsfölsun. Erlent 21.11.2006 08:07
Rússar segjast ekki hafa eitrað fyrir njósnaranum Yfirvöld í Moskvu neita staðfastlega að hafa eitrað fyrir fyrrum njósnara KGB sem nú er búsettur í London. Alexander Livtinenko var fluttur á gjörgæsludeild á ný í gærkvöldi eftir að honum snögghrakaði. Læknar segja tvísýnt hvort hann muni halda lífi. Erlent 21.11.2006 08:00
Morðsaga Simpsons ekki gefin út Fjölmiðlafyrirtæki Roberts Murdoch hefur hætt við að gefa út umdeilda bók O.J. Simpsons, þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði drepið eiginkonu sína, ef hann hefði framið verknaðinn. Viðtalsþáttur með sama nafni og bókin: "Ef ég hefði gert það", verður heldur ekki sýndur. Erlent 21.11.2006 07:30
Loftárásir á Sri Lanka Stjórnarher Sri Lanka hóf í morgun loftárásir nærri einu höfuðvígi Tamíltígra í Kilinochi, að sögn tígranna. Talsmenn uppreisnarliðsins segir að 20 sprengjur hafi fallið, svo nærri bænum að húsin nötri. Þeir segja að stjórnarhernum hafi ekki verið ögrað eða eða ráðist á hann eða aðra til að útskýra þessar árásir. Erlent 21.11.2006 07:10
Berlusconi fyrir rétt Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, fer fyrir rétt á morgun vegna ásakana um að hann hafi haft rangt við í viðskiptum. Berlusconi, sem hefur haft hægt um sig síðan hann tapaði í kosningum fyrir Romano Prodi fyrr á árinu, neitar öllum ásökunum og segir þetta pólitískar ofsóknir. Erlent 20.11.2006 23:42
Egypska lögreglan finnur tvö og hálft tonn af sprengiefnum Egypska lögreglan sagði frá því í kvöld að hún hefði fundið tvö og hálft tonn af sprengiefnum og mikið magn af vopnum í Sinai. Einn yfirmaður, sem talaði undir nafnleynd, sagði að þetta hefði fundist á tveimur felustöðum í Libni-fjöllunum á Sinai svæðinu. Ekki er vitað hvort að vopnin hafi átt að fara til palenstínsku svæðanna. Erlent 20.11.2006 23:30
Simpansar velja sér eldri maka Ný rannsókn á mökunarferli simpansa gefur í skyn að karlkyns simpansar sækist eftir sem elstum maka og að það skemmi ekki fyrir ef hún eigi afkvæmi fyrir. Rannsóknin var gerð til þess að athuga hvort að simpansar hegðuðu sér eins og frændur sínir mannfólkið og vildu frekar vera með yngri kvenkyns simpönsum. Erlent 20.11.2006 23:20
Engar sannanir fyrir því að Íran sé að þróa kjarnavopn Bandaríska leyniþjónustan hefur ekki fundið neinar sannanir fyrir því að Íran sé að reyna að þróa kjarnavopn. Þetta kemur fram í leynilegri skýrslu sem blaðið New Yorker sagði frá í dag. Einnig kom fram að ráðamenn í Washington virtu þessa skýrslu að vettugi. Erlent 20.11.2006 22:56
Bandaríkin hóta aðgerðum gegn Súdan Sérstakur erindreki Bandaríkjanna í Súdan, Andrew Natsios, sagði í dag að ríkisstjórnin í Súdan yrði að ná árangri í Darfur-héraði fyrir fyrsta janúar næstkomandi og ef það hefði ekki gerst myndu Bandaríkin og aðrir aðilar grípa til aðgerða. Erlent 20.11.2006 22:25