Erlent
400 Rambóar Bæjarstjórnin í smábænum Cherry Tree, í Pennsylvaníu, mun taka ákvörðun um það á miðvkudag, hvort hún biður alla bæjarbúa um að eignast byssur og læra að nota þær. Íbúar í Cherry Tree eru um 400 talsins. Erlent 11.12.2006 10:07
Ungur kynferðisglæpamaður Fjögurra ára gamall drengur í La Vega, í Bandaríkjunum, var settur í skammarkrókinn fyrir að áreita unga aðstoðar kennslukonu kynferðislega. Drengurinn hafði knúsað kennslukonuna og nuddað andlitinu við brjóst hennar. Erlent 11.12.2006 09:47
Arababandalagið reynir að miðla málum Arababandalagið ætlar að reyna að miðla málum í þeirri stjórnarkreppu sem við blasir í Líbanon. Mörg hundruð þúsund manns komu saman í höfuðborginni Beirút í gær og kröfuðst þess að Fouad Saniora, forsætisráðherra landsins, afsalaði völdum að hluta til stjórnarandstöðunnar eða segði af sér. Liðsmenn Hizbollah og stuðningsmenn Sýrlendinga fóru fyrir mótmælendum. Talið er að svo fjölmenn mótmæli hafi ekki verið haldin fyrr í Líbanon. Erlent 11.12.2006 09:00
3 börn Fatah-liða myrt í morgun Byssumenn myrtu í morgun þrjú börn yfirmanns í leyniþjónustu Palestínumanna. Skotið var á þau fyrir utan skóla þeirra í Gaza-borg. Faðir barnanna, Baha Balousheh er sagður tengjast Fatha-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og mun hafa leitt aðför gegn Hamas-hreyfingunni fyrir áratug. Tvö börn til viðbótar særðust í árásinni og einn vegfarandi féll. Stuðningsmenn Fatah hafa hótað hefndum. Erlent 11.12.2006 08:45
Öflug sprenging í Tyrklandi Hluti fimm hæða byggingar í borginni Diyarbakir í Suður-Tyrklandi hrundi í öflugri sprengingu í morgun. Fjölskyldur trykneskra hermanna búa þar. Svo virðist sem miðstöðvarketill í byggingunni hafi sprungið. Vitað er að minnst tveir særðust í sprengingunni en óvíst hvort einhverjir týndu lífi. Björgunarmenn eru komnir á vettvang og leita fólks í rústunum. Erlent 11.12.2006 08:30
Viðræður hefjast á ný Viðræður sexveldanna svokölluðu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna hefjast að nýju 18. þessa mánaðar að sögn kínverskra fulltrúa. Fundað verður í Peking. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir ári síðan þegar fulltrúar stjórnvalda í Pyongjang gengu frá samningaborðinu vegna refsiaðgerða Bandaríkjamanna. Erlent 11.12.2006 08:15
Geimæði í Svíþjóð Mikið geimæði hefur gripið um sig í Svíþjóð af því tilefni að fyrsti Svíinn er nú úti í geimnum. Hann fór með geimferjunni Discovery upp í alþjóðlegu geimstöðina og hefur upplýst að hann hafi tekið með sér disk með ABBA. Erlent 11.12.2006 08:10
Misstu af tveimur og hálfum milljarði Þrjátíu íbúar í bænum Mouscron í Belgíu sitja nú eftir með sárt ennið eftir að hafa misst af stóra vinningnum í Evrópulottóinu skömmu fyrir helgi. Aðalvinningurinn nam jafnvirði rúmlega tveggja milljarða íslenskra króna þegar dregið var á föstudagskvöldið. Erlent 11.12.2006 07:26
Ohran Pamuk fær uppreisn æru Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk tók við bókmenntaverðlaunum Nóbels við hátíðlega afhöfn í Stokkhólmi í gær. Í umsögn Nóbelsakademíunnar segir að með verkum sínum hafi Pamuk reynt að finna jafnvægi milli menningar í austri og vestri. Erlent 11.12.2006 07:19
Ráðstefna um Helförina haldin í Íran Tveggja daga, alþjóðleg ráðstefna um Helförina hefst í Teheran, höfuðborg Írans í dag. Það er alþjóðastofnun á vegum íranska utanríkisráðuneytisins sem annast ráðstefnuna. Erlent 11.12.2006 07:15
Átök milli andstæðinga og fylgjenda Pinochet Til átaka kom í Santiago, höfuðborg Chile, í gærkvöldi eftir að fréttir bárust af því að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, væri látinn. Pinochet var níutíu og eins árs. Hann fékk fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Andstæðingar Pinochets fögnuðu dauða hans í höfuðborginni á meðan stuðningsmenn syrgðu hann. Erlent 11.12.2006 07:12
54 týnt lífi í 3 eldsvoðum í Rússlandi Eldar kviknuðu í tveimur heilbrigðisstofnunum í Rússlandi í nótt. 9 týndu lífi á geðsjúkrahúsi í Síberíu en öllum var bjargað frá bráðum bana af sams konar sjúkrahúsi norðvestur af Moskvu. 54 hafa því týnt lífi í eldum á sjúkrahúsum í Rússlandi um helgina. Erlent 10.12.2006 19:00
Augusto Pinochet er allur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, lést í dag, níutíu og eins árs að aldri. Pinochet hafði verið heilsutæpur um nokkurt skeið og fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Hann var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 og ríkti í sautján ár. Á þeim tíma voru yfir þrjú þúsund manns myrtir eða látnir hverfa. Erlent 10.12.2006 18:05
Hundruð þúsunda mótmæltu í Beirút Mörg hundruð þúsund mótmælendur komu saman í Beirút, höfuðborga Líbanons, í dag og kröfðust afsagnar Sanioras, forsætisráðherra. Það voru Hizbollah-liðar og bandamenn Sýrlendinga sem fóru fyrir mótmælendum. Þetta eru ein fjölmennustu mótmæli sem efnt hefur verið til í Beirút og tíundi dagurinn í röð sem breytinga er krafist. Saniora hefur neitað að víkja fyrir Hizbollah-liðum sem hann telur vilja ræna völdunum. Erlent 10.12.2006 17:59
Yunus tekur við friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus veitti friðarverðlaunum Nóbels viðtöku við hátíðlega athöfn í Osló í Noregi í dag. Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði deila með sér verðlaununum í ár. Erlent 10.12.2006 13:25
Tveir danskir hermenn særðust Í Írak Tveir danskir hermenn úr skriðdrekasveit Dana eru særðir eftir átök norður af borginni Basra í Írak. Annar mannanna særðist á hálsi og var fyrst talinn alvarlega særður en hinn fékk skot í handlegginn. Hvorugur er í lífshættu, að sögn læknis dönsku herdeildarinnar, Sørens Dervings. Hermennirnir tveir eru á hersjúkrahúsi á herstöðinni Shaiba Log, þar sem dönsku bækistöðvarnar, Danevang, eru einnig staðsettar. Erlent 10.12.2006 13:01
Vísar á rússnesk yfirvöld Marina Litvinenko, eiginkona KGB njósnarans Alexanders Litvinenko, segir margt benda til þess að rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á dauða hans. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirka efninu polon 210 í síðasta mánuði. Erlent 10.12.2006 12:30
Risatjald reist í heimalandi Borats Forseti Kazakstan, Nursultan Nazarbayev, slær ekki slöku við í uppbyggingu hinnar nýju höfuðborgar landsins á steppunum norðan Baikalvatns. Hann hefur öðru sinni fengið hinn heimsfræga arkitekt Norman Foster, lávarð, til að hanna byggingu í borginni, í þetta skiptið risavaxið tjald, sem nær 150 m hæð, og þekur svæði á við 10 knattspyrnuvelli. Erlent 10.12.2006 11:51
Óvænt heimsókn í 13. sinn Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Þetta var í 13. sinn sem hann heimsótti bandaríska hermenn þar. Erlent 10.12.2006 11:00
Fyrsta næturgeimskot í 4 ár Næturhiminn á Flórída í Bandaríkjunum lýstist upp í nótt þegar geimflauginni Discovery var skotið á loft frá Canaveral höfða. Þetta var í fyrsta sinn í fjögur ár sem geimflaug var skotið á loft að nóttu til. Erlent 10.12.2006 10:30
8 týndu lífi í bruna í Síberíu Að minnsta kosti 8 týndu lífi og 6 brenndust illa þegar eldur kviknaði á geðsjúkrahúsi í Síberíu í Rússlandi í gærkvöldi. Rúmlega 200 manns voru í byggingunni þegar eldurinn kviknaði. Erlent 10.12.2006 10:00
Svíinn bíður enn geimskots á Canaveral Enn er óvíst hvort geimferjan Discovery með Svíann Fuglesang innanborðs, komist á loft frá Kennedy geimferðamiðstöðinni á Florida og á braut umhverfis Jörðu í kvöld eins og áætlað er. Líkurnar á að veðrið leyfi geimskot að þessu sinni eru ekki nema 30%. Samt er byrjað að fylla á eldsneytistanka ferjunnar. Erlent 9.12.2006 19:04
Konungur Sáda segir Arabaheiminn suðupott sem gæti sprungið Leiðtogar arabaríkja við Persaflóa funda í dag og á morgun á vegum leiðtogaráðs Persflóaríkja (GCC) í Riyadh höfuðborg Saudi Arabíu til að ræða sameiginlegt gjaldeyrisbandalag ríkjanna, sem fyrirhugað er að koma á laggirnar 2010. Vaxandi áhrif Írana á Persflóasvæðinu verða líka til umræðu. Abdullah, konungur Sádí Arabíu varaði við því í opnunarræðu, að arabaheimurinn væri eins og suðupottur sem lokið væri við það að springa af. Erlent 9.12.2006 18:33
Starfsfólk reyndi ekki að bjarga konunum Talið er að kveikt hafi verið í sjúkrahúsi í Moskvu, höfuðborg Rússlands, þar sem fjörtíu og fimm konur létust í nótt. Slökkvilið borgarinnar deilir á starfsfólk fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út. Þetta er mannskæðasti bruni í borginni í þrjú ár. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. Erlent 9.12.2006 17:59
Opinberir starfmenn skjóta mótmælaskotum á Gaza 2500 lögreglumenn í Palestínu þustu í dag inn í byggingu ríkisstjórnarinnar í miðborg Gaza, til að mótmæla því að fá ekki greidd laun. Þeir saka stjórnmálaarm Hamas um að greiða eigin öryggissveitum, en ekki laun hundrað sextíu og fimm þúsund opinberra starfsmanna. Erlent 9.12.2006 17:09
Nýjar rannsóknir á dauða Díönu en sama niðurstaða DNA rannsókn hefur leitt í ljós að Henri Paul, ökumaður Díönu prinsessu, var ölvaður hina örlagaríku nótt París 1997 þegar hann ók á steinstólpa og Díana lést. Þetta kemur fram í heimildarmynd BBC sjónvarpsstöðvarinnar. Mohamed al Fayed hefur samt barist fyrir opinberum vitnaleiðslum um málið sem fara fram í næsta mánuði. Erlent 9.12.2006 13:47
Staða Palestínumanna verri en blökkumanna undir Apartheid Stefna Ísraelsmanna í málefnum Palestínu býr Palestínumönnum verri aðbúnað en svartir bjuggu við á tímum aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Þetta sagði Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseti þegar hann svaraði spurningum um efni bókar sinnar um Palestínumálið. Erlent 9.12.2006 12:12
45 konur dóu í spítalabruna 45 konur létu lífið í spítalabruna í Moskvu í nótt. Þetta er mannskæðasti bruni í Moskvu í þrjú ár. Yfirvarðstjóri slökkviliðsins í borginni telur að kveikt hafi verið í spítalanum, en verið er að kanna orsakir brunans. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. Erlent 9.12.2006 10:01
Indverskir karlmenn með of stutt typpi Rannsókn á rúmlega 1000 indverskum karlmönnum hefur leitt í ljós að alþjóðlegar staðalstærðir á smokkum eru fullrúmar fyrir indversk typpi. Samkvæmt niðurstöðum vísindamannanna er rúmur helmingur indversku mannanna með of stutta limi til að fylla upp í verjurnar. Þess vegna verður núna boðið upp á smokka í mismunandi stærðum á Indlandi. Erlent 8.12.2006 23:15
Aldurstakmörk á fyrirsætur í Brasilíu Skipuleggjendur tískuvikunnar í Sao Paulo, sem haldin verður í næsta mánuði, ætla að setja 16 ára aldurstakmark á fyrirsætur sem koma fram á tískusýningum, eftir að brasilísk fyrirsæta lést úr anorexíu í síðasta mánuði. Ríkisstjórn Brasilíu stendur nú fyrir átaki gegn átröskunarsjúkdómum. Erlent 8.12.2006 22:59