Erlent

Haniyeh kominn aftur til Gaza

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, er nú kominn yfir Rafha-landamærin og aftur inn á Gaza-svæðið eftir heimsókn til Egyptalands. Hann fékk ekki að hafa heim með sér gífurlegar fjárhæðir frá helstu bakhjörlum Palestínumanna en takmark ferðalagsins var að ná í fjárstuðning til Palestínumanna.

Erlent

Bandaríska LÍÚ styður Íslendinga gegn botnvörpubanni

Forseti Bandalags bandarískra útgerðarmanna tekur undir sjónarmið Íslendinga þegar þeir lögðust gegn algjöru botnvörpubanni á úthöfunum í bréfi til Washington Post. Þetta kemur fram á vef LÍÚ í dag. John Connelly segir í bréfinu að bannið hafi ekki verið samþykkt einfaldlega vegna þess að það hafi verið slæm niðurstaða.

Erlent

Vilja banna aftökur með lyfjum

Andstæðingar dauðarefsingar kröfðust þess í dag að Hæstiréttur Flórída hætti að dæma fólk til dauða með banvænni lyfjasprautu eftir að dauðastríð dæmds morðingja tók 34 mínútur eftir slíka aftöku í gær. Sprauta þurfti manninn tvisvar en hann engdist engu að síður í rúman hálftíma, meðan flestir gefa upp öndina á nokkrum mínútum.

Erlent

Risi bjargar höfrungum í Kína

Hávaxnasti maður heims bjargaði í dag lífi tveggja höfrunga sem höfðu gleypt plaststykki. Bao Xishun var kallaður til þar sem hann var sá eini sem hafði nógu langar hendur til þess að teygja sig niður í maga höfrunganna. Bao er 2,36 metrar á hæð og hendurnar á honum hvor um sig 1,06 metrar. Höfrungarnir braggast vel eftir inngrip Baos.

Erlent

Fé leitar þangað sem fjölmiðlar eru

Janfvirði 1200 milljarða íslenskra króna var veitt til hjálparstarfs víða um heim í fyrra, samkvæmt nýrri hamfaraskýrslu Alþjóða Rauða krossins. Fénu er misskipt, að mati skýrsluhöfunda. Sem dæmi hafi ekki nægilega miklu fé verið veitt til hjálparstarfs í Malaví og segir íslenskur sendifulltrúi matvælaverkefnis Rauða krossins þar að fé leiti þangað sem fjölmiðlar séu.

Erlent

Haniyeh fær ekki að koma heim með peninga

Ísraelsk yfirvöld hafa lokað landamærum Gaza að Egyptalandi og þannig komið í veg fyrir að Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, komist heim. Hann mun hafa í fórum sínum margar milljónir bandaríkjadala sem á að nota til að rétta af fjárhag heimastjórnarinnar. Það vilja Ísraelar ekki.

Erlent

Flugöryggi á Kastrup rannsakað

Tvö nýleg atvik á Kastrup-flugvelli sem næstum því enduðu með flugslysi eru kveikjan að rannsókn á flugstjórn og rekstri flugvallarins. Flugumferðareftirlitið danska mun fara ofan í saumana á flugvellinum. Síðan í september hefur tvisvar munað 15 metrum eða minna að tvær farþegavélar rækjust saman.

Erlent

Ban Ki-moon sver embættiseið

Ban Ki-moon sór í dag embættiseið sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Hann tekur formlega við embættinu af Kofi Annan um áramótin. Ban Ki-moon var áður utanríkisráðherra Suður-Kóreu en sagði því starfi nýverið lausu. Hann er fyrsti Asíubúinn sem gegnir þessu starfi síðan U Thant dró sig í hlé árið 1971.

Erlent

Líklega myrtar í bíl

Breska lögreglan hefur upplýst að lík vændiskvennanna fimm, sem þegar hafa fundist, hafi öll verið nakin, að frátöldum skartgripum þeirra. Talið er líklegast að þær hafi verið kæfðar eða kyrktar. Greinileg merki um kyrkingu fundust á hálsi að minnsta kosti einnar stúlku.

Erlent

Forsætisráðherrann fær ekki að hafa með sér peninga

Ísraelar ætla ekki að hleypa Ismail Haniyev, forsætisráðherra Palestínumanna, aftur inn í landið, með milljarða króna fjárhagsaðstoð sem hann hefur safnað erlendis, á undanförnum vikum. Til að hindra endurkomu hans hafa þeir lokað Rafha landamærastöðinni á landamærum Gaza og Egyptalands.

Erlent

Eyrarsundsbrúin annar ekki umferð

Umferð um Eyrarsundsbrúna milli Danmerkur og Svíþjóðar er svo miklu meiri en gert var ráð fyrir að það horfir til vandræða. Svíar vilja skipa nýja Eyrarsundsnefnd til þess að taka á málinu. Danir hafa þegar ákveðið að bæta við vögnum sín megin frá.

Erlent

Demokratar að missa meirihluta í öldungadeildinni

Demokratar í Bandaríkjunum bíða nú með öndina í hálsinum eftir að sjá hvort þeir missa meirihluta sinn í öldungadeild þingsins, á nýjan leik. Tim Johnson, öldungadeildarþingmaður, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir skurðaðgerð á heila.

Erlent

Forsætisráðherra stöðvaður á landamærunum

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, var ekki hleypt inn á Gaza svæðið, í dag, þegar hann kom úr nokkurra vikna heimsókn erlendis frá. Búist er við að hann hafi með sér milljónir dollara í fjárhagsaðstoð við ríkisstjórn sína. Óljóst er hvort Ísraelar hleypa honum inn í landið, með peningana.

Erlent

Tony Blair í yfirheyrslu hjá Scotland Yard

Breska lögreglan Scotland Yard hefur yfirheyrt Tony Blair, forsætisráðherra, við rannsókn á hneykslismáli sem snýst um mútugreiðslur fyrir aðalstitla. Talsmaður Blairs segir að hann hafi verið kallaður sem vitni, en ekki haft réttarstöðu sakbornings.

Erlent

Tuttugu trúarbragðaglæpir á mánuði í Danmörku

Danska lögreglan segir að þar í landi séu framin tuttugu afbrot í mánuði, sem eru trúarlegs eðlis, allt frá heiðursmorðum til ýmiskonar þvingana. Óttast er að ungar konur séu neyddar til þess að fremja sjálfsmorð. Danir hafa af þessu áhyggjur, en tölurnar koma ekki á óvart.

Erlent

Eiturlyfjafíkn var óttanum yfirsterkari

Þótt mikill ótti ríki meðal vændiskvenna í Ipswich, eftir morðin á fimm starfssystrum þeirra, halda þær áfram að falbjóða sig á götum úti. Lögreglan hefur aukið eftirlit í hverfi þeirra, en virðist ekki geta komið í veg fyrir að þær haldi áfram starfi sínu.

Erlent

Er morðinginn á bláum BMW?

Breska lögreglan leitar nú að feitlögnum manni á bláum BMW sem er sagður hafa tekið eina af myrtu vændiskonunum í Ipswich upp í bílinn hjá sér og ekið með hana á brott. Lögreglan segist hafa býsnin öll af upplýsingum til þess að vinna úr.

Erlent

30 manns rænt í Sadr-hverfi

Byssumenn rændu á bilinu 20 til 30 Írökum í höfuðborginni, Bagdad, í morgun. Að sögn vitna óku mennirnir í tíu lögreglubílum að fólkinu, sem var statt í iðnaðarhverfi í miðborginni, og höfðu það á brott með sér. Flestir þeirra sem rænt var eru búðareigendur sem reka iðnaðarvöruverslanir í hverfinu.

Erlent

Sprakk í höndum sprengjusérfræðinga

Tveir íraskir sprengjusérfræðingar týndu lífi þegar sprengja, sem þeir voru að reyna að aftengja, sprakk í höndunum á þeim í Sadr-hverfi Bagdadborgar í morgun. Fjórir almennir borgarar særðust þegar sprengjan sprakk. Öðrum hópi sprengjusérfræðinga tókst að aftengja aðra sprengju í næsta nágrenni.

Erlent

Möguleg valdaskipti í öldungadeild

Svo gæti farið að Repúblíkanaflokkur Bush Bandaríkjaforseta nái aftur meirihluta í Öldungadeild Bandaríkjaþings, og það án kosninga. Sem kunnugt er hafa Demókratar nú eins þingsætis meirihluta í deildinni.

Erlent

Sonarsonur Pinochet rekinn úr her Chile

Sonarsonur Augusto Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur verið rekin úr her landsins. Augusto Pinochet Molina olli miklu uppnámi í heimalandinu með orðum sem hann lét falla við jarðarför afa síns á þriðjudaginn.

Erlent

Danskur ráðherra segir af sér

Lars Barfoed sagði af sér sem fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur í gærkvöldi, stuttu eftir að Danski þjóðarflokkurinn lýsti andstöðu við hann sem ráðherra og þar með er meirihluti þingmanna andsnúinn honum. Hann þykir hafa brugðist trausti almennings með því að bregðast ekki nógu hart við endurteknum vandamálum tengdum hreinlæti í matvælavinnslu og matvælaöryggi.

Erlent

Bandarískum hermönnum fjölgað í Írak í óþökk hersins

Bandaríska herráðið leggur til að stefnubreyting verði í Írak og bandarískum hersveitum frekar falið að þjálfa íraskar hersveitir en að taka þátt í bardögum við andspyrnumenn. Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá þessu og hefur eftir heimildarmönnum innan Hvíta hússins.

Erlent

Ungbörn hugsanlega myrt

Blaðamenn BBC segjast hafa heimildir fyrir því að heilbrigð úkraínsk ungbörn hafi verið myrt á sjúkrahúsi í Úkraínu, svo að hægt væri að taka stofnfrumur úr líkamsleifum þeirra, að því er kemur fram á fréttavef BBC.

Erlent

Þörf á frekari kynfræðslu í Evrópu

Sérfræðingar á heilbrigðissviði hvöttu í gær Evrópulönd til að auka kynfræðslu ungs fólks og sögðu gríðarlegan mun vera á þessu námsefni innan álfunnar. Kynfræðsla er skylduefni í skólum flestra landa, en ekki í Búlgaríu, Bretlandi, Póllandi og á Kýpur og Ítalíu.

Erlent

Pólskir andófsmenn heiðraðir

Pólverjar minntust þess í gær að rétt 25 ár eru liðin frá því að kommúnistastjórnin í landi setti herlög til að brjóta á bak aftur andóf sem verkalýðshreyfingin Samstaða hafði forgöngu um.

Erlent

Mexíkóar minntust meyjarinnar frá Guadalupe

Á þriðjudaginn var mikil hátíð í Mexíkó á degi Maríu meyjar frá Guadalupe. Milljónir manna streymdu út á götur Mexíkóborgar og annarra borga landsins til þess að halda daginn hátíðlegan.

Erlent